Sumarið gert upp hjá krökkunum í GSS

Myndarlegur hópur ungra Golfleikara ásamt þjálfara sínum Atla Frey Rafnssyni (efstur til hægri). Mynd: GSS.
Myndarlegur hópur ungra Golfleikara ásamt þjálfara sínum Atla Frey Rafnssyni (efstur til hægri). Mynd: GSS.
Alexander Franz Þórðarson og Rebekka Helena Róbertsdóttir þóttu sýna mestar framfarir í sumar. Mynd: GSS.

 Lokahóf barna- og unglingastarfs Golfklúbbs Sauðárkróks var haldið í gær í húsi klúbbsins að Hlíðarenda. Vel var mætt af börnum og foreldrum sem spiluðu bingó og gæddu sér á veitingum, auk þess sem viðurkenningar voru veittar fyrir sumarið.

Arnar Freyr Guðmundsson og Hildur Heba Einarsdóttir hlutu viðurkenningar fyrir mestu framfarir í flokki 12 ára og eldri. Með þeim á myndinni er Atli Freyr Rafnsson þjálfari. Mynd: GSS.

                   

 

 

 

 

 

Á heimasíðu GSS segir að fyrir mestu framfarir yngri en 12 ára hlutu þau Alexander Franz Þórðarson og Rebekka Helena Róbertsdóttir en hjá 12 ára og eldri komu þau í hlut Arnar Freys Guðmundssonar og Hildar Hebu Einarsdóttur. Allir iðkendur fengu viðurkenningarskjal og glaðning frá VÍS.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir