Varptími fugla er hafinn

Kettir eru fallegar skepnur en afskaplega dugleg veiðidýr. Mynd:Pexels.com
Kettir eru fallegar skepnur en afskaplega dugleg veiðidýr. Mynd:Pexels.com

Sveitarfélagið Skagafjörður vekur athygli á því á heimasíðu sinni að nú er varptími fugla hafinn. Því eru hunda- og kattaeigendur vinsamlega beðnir að taka tillit til þess og gera allt sem í þeirra valdi stendur til að halda skepnum sínum frá þessum fiðruðu vorboðum.

„Þeim tilmælum er beint til kattaeigenda að halda köttum sínum innandyra á nóttunni og hengja bjöllur á hálsólar þeirra. Kettir eru öflug dýr sem geta haft neikvæð áhrif á stofn fugla sem verpa í nágrenni við mannabústaði ár hvert og því er mikilvægt að kattaeigendur fylgist með köttum sínum yfir varptíma fugla og á meðan ungar eru að verða fleygir," segir á vef Sveitarfélagsins Skagafjarðar. Þá eru hundaeigendur ennfremur beðnir um að sleppa ekki hundum sínum lausum á varpsvæðum.

Samþykkt um hunda- og kattahald í Sveitarfélaginu Skagafirði má finna  hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir