„Man best eftir Ragga Bjarna og Jóni Bassa syngja Úti í Hamborg“ / GUNNI RÖGG

Það er alltaf stutt í gleðina og glensið hjá Gunnari Rögnvaldssyni á Löngumýri í Skagafirði. Hannar er fæddur á Hrauni á Skaga árið 1967, sonur heiðurshjónanna Valda og Gillu.

Gunni er gítareigandi og er lunkinn að setja saman texta og syngja, oftar en ekki með Jóni Halli Ingólfssyni. Nú á dögunum setti hann, í félagi við marga fína tónlistarmenn í Skagafirði, á svið barnalagatónleikana Ara og Alladín í Miðgarði í Varmahlíð. Helsta afrek sitt á tónlistarsviðinu segir hann þó vera að eiga helminginn í þremur músíkkölskum börnum, en það eru þau Jakob, Sigvaldi Helgi og Dagný.

Uppáhalds tónlistartímabil? Finn eitthvað áhugavert á öllum áratugum, en varð mjög ”svag” fyrir Kim Larsen og Dire Straits á uppgangsárum þeirra. Síðan eiga allar þær íslensku sveitir sem leggja metnað í góða textagerð uppá pallborðið. Þar koma Stuðmenn og Baggalútur t.d. við sögu. Hrærist mikið í sönglögum af öllu tagi.

Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun þessa dagana? Af sérstökum ástæðum eru það barnalög af ýmsum toga. En reyni að fanga  þau lög sem einfalt er að spila á gítar og semja við heimsósómatexta gerist þess þörf.

Hvers konar tónlist var hlustað á á þínu heimili? Jahá. Útvarpsskilyrði voru óáræðanleg  á Hrauni, rafveiturafmagn kom fyrst 1975, tveir takmarkandi þættir.  Að vísu stóð gamli Listerinn vaktina á kvöldin fram að því. Af einhverjum ástæðum kemur mér því fyrst í huga Jólamessan í útvarpinu á aðfangadagskvöld! En þar til eldri bræður mínir eignuðust plötuspilara og kasettutæki að ég tali nú ekki um þegar kom útvarp í dráttarvélina, þá var það látið duga. Plötusafn piltanna hafði svo að geyma allt mögulegt. En voru ekki safnplötur geysi vinsælar á þessum árum? Svo maður gleymi nú ekki Halla og Ladda og Ríó tríóinu.......má nefna ABBA??

Hver var fyrsta platan/diskurinn/kasettan/niðurhalið sem þú keyptir þér? Ætli fyrsta íslenska platan hafi ekki verið með  Ríó tríóinu og erlenda með Tracy Ullman, en kasettan sem var hlustað á í flækju var einhver safngripur. Man best eftir Ragga Bjarna og Jóni Bassa syngja ” Úti í Hamborg”. Fyrstu diskana keypti ég í Þýskalandi um leið og fyrsta spilarann. Dire Straits varð fyrir valinu.

Hvaða græjur varstu þá með? Finlux plötuspilari leysti af hólmi kasettutæki í axlaról sem bróðir minn átti. Fyrir fermingarpeningana keypti ég svo einhverja hálf vonlausa samstæðu hjá Itta minnir mig.  Síðar eignaðist ég vasadiskó sem hálfpartinn bjargaði lífi mínu eða amk. mér og félögum mínum frá því að verða rændur að kvöldlagi á þjóðvegum Kenía á annan í jólum fyrir þrjátíu árum.

Hver var fyrsta platan sem þú óskaðir þér í jólagjöf (eða fyrsta lagið sem þú mannst eftir að hafa fílað í botn)? Ómar Ragnarsson var í miklu uppáhaldi. Sveitaball og svo maður tali nú ekki um Minkinn í hænsnakofanum.

Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér daginn? Ég ætla ekki að eyðileggja daginn með því að telja þau upp....

Uppáhalds Júróvisjónlagið (erlent eða innlent eða bæði)? ”All kinds of everything” gleymist seint frá fyrsta flutningi í sjónvarpinu. Svo kom Húbba húlle, sérstaklega vegna þess að hægt var að syngja hástöfum í viðlaginu:” Binni Júlla, Júlla, Júlla......og Bjarni Har.”

Þú heldur dúndurpartí í kvöld, hvað læturðu hljóma í græjunum til að koma öllum í stuð? Slekk á græjunum og reyni mig við söngkunnáttu viðstaddra.

Þú vaknar í rólegheitum á sunnudagsmorgni, hvað viltu helst heyra? Fuglasöngur er alltaf  ljúfastur, að vísu árstíðabundinn en þess utan fara Guðrún Gunnarsdóttir og Vilhálmur V vel með hlustirnar

Þú átt þess kost að fara hvert sem er í heiminum og skella þér á tónleika. Hvert færirðu, á hvaða tónleika og hvern tækirðu með þér? Ég leifði börnunum að ráða og fengi að fljóta með.

Hvaða tónlistarmaður hefur þig dreymt um að vera? Á enga slíka drauma. Væri þó til í að kunna svolítið á píanó og hafa eitthvað af kyngimagnaðri kunnáttu Braga Valdimars Skúlasonar Baggalúts sem mun bera höfuð og herðar yfir alla textasmiði næstu áratugina auk þess að vera slyngur lagasmiður.

Hver er að þínu mati besta plata sem gefin hefur verið út?  Money For Nothing Dire Straits

Sex vinsælustu lögin á Playlistanum þínum? Á ekkert svoleiðis og get ekki gert uppá milli þeirra laga sem ég flauta oftast.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir