Auglýst eftir umsóknum um Eyrarrósina 2018

Auglýst hefur verið eftir umsóknum um Eyrarrósina 2018 en Eyrarrósin er viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á starfssvæði Byggðastofnunar. Markmið viðurkenningarinnar er að beina sjónum að og hvetja til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar, á sviði menningar og lista. Frá upphafi hafa ByggðastofnunFlugfélag Íslands og Listahátíð í Reykjavík staðið saman að verðlaununum, eða frá árinu 2005.

Umsækjendur um Eyrarrósina geta meðal annars verið stofnun, tímabundið verkefni, safn eða menningarhátíð. Valnefnd, skipuð fulltrúum Byggðastofnunar, Listahátíðar í Reykjavík og Flugfélags Íslands ásamt einum menningarfulltrúa á starfssvæði Byggðastofnunar, tilnefnir þrjú verkefni. Eitt þeirra hlýtur Eyrarrósina ásamt veglegum peningaverðlaunum. Hin tvö verkefnin hljóta einnig peningaverðlaun en á þessu ári var Vesturfarasetrið á Hofsósi einmitt annað þeirra. 

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um Eyrarrósina 2018 og skal skila umsóknum með því að fylla út rafrænt umsóknareyðublað hér. Umsóknarfrestur er til 15. janúar 2018.

Verndari Eyrarrósarinnar er Eliza Reid, forsetafrú.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir