Gestum fækkar í Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Húnaþingi vestra
Tekið var á móti 1.679 gestum fyrstu þrjá mánuði ársins í Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Húnaþingi vestra sem rekin er á Selasetri Íslands að því er kemur fram á heimasíðu Selasetursins. Á sama tímabili á síðasta ári voru gestir Upplýsingamiðstöðvarinnar 1.958 og er hér um að ræða 14% fækkun milli ára. Einnig fækkaði þeim sem keyptu sig inn á Selasafnið á fyrsta ársfjórðungi um 10% frá því í fyrra.
Sé hver mánuður fyrir sig skoðaður má sjá að gestum fækkaði alla þrjá mánuði ársfjórðungsins eða um 17% í janúar, um 16% í febrúar og um 13% í mars. Í janúar og febrúar má að einhverju leyti kenna rysjóttu veðurfari um en því var ekki til að dreifa í mars.
„Langsamlega fæstir heimsækja Selasetrið á fyrsta og fjórða ársfjórðungi, svo þessi fækkun hefur lítið að segja um þróun heildarfjölda gesta á ársgrundvelli – en þessar tölur kunna að vera vísbending um ákveðna kólnun í ferðaþjónustunni, sérstaklega á svokölluðum jaðarsvæðum," segir á heimasíðu Selasetursins.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.