Grjóthleðslunámskeið á Reykjum í Hrútafirði

Grjóthleðslumeistararnir Guðjón og Benjamín. Mynd af Mbl.is, Kjartan Þorbjörnsson.
Grjóthleðslumeistararnir Guðjón og Benjamín. Mynd af Mbl.is, Kjartan Þorbjörnsson.

Á vef Húnaþings vestra er greint frá því að þann 29. október mun Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna standa fyrir grjóthleðslunámskeiði. Það verður haldið á Reykjum í Hrútafirði í tengslum við varðveislu fallbyssustæðis frá tímum hernámsins sem er í fjörunni við hlið safnsins. Hlaðinn verður frístandandi, boginn skjólveggur vestan við byggðasafnið við hlið fallbyssustæðisins og er ætlunin að búa til fallegt útivistarsvæði ásamt því að miðla grjóthleðslukunnáttu til áhugasamra. 

Það eru hinir grjóthörðu Strandamenn, Guðjón og Benjamín Kristinssynir, grjóthleðslumeistarar frá Dröngum, sem munu stjórna námskeiðinu. Bræðurnir hafa starfað við grjóthleðslu um árabil, þekkja vel til helstu aðferða og er hleðsluverk eftir þá að finna um land allt. Þeir eru báðir sagnamenn miklir, segja ekki sögur nema þær séu stórlega ýktar eða verulega bættar. Því á ekki eftir að skorta skemmti- eða umræðuefni, að því er segir á vef Húnaþings vestra. Í því samhengi er bent á frétt á Mbl.is, Íslendingar eru að verða aumingjar, þar sem fjallað er á léttu nótunum um grjóthleðslukunnáttu bræðranna.  

Námskeiðið hefst kl. 11 og lýkur þegar veggurinn er tilbúinn. Það er án endurgjalds og er létt hressing í boði á byggðasafninu fyrir þátttakendur.

Fullbókað er á námskeiðið en tekið verður inn af biðlista og haft samband ef einhver forfallast. Vegna mikillar eftirspurnar er möguleiki á að haldið verði annað námskeið og munu þeir sem skrá sig á biðlista fá tilkynningu um það áður en það verður auglýst. Það er Sólveig H. Benjamínsdóttir sem veitir upplýsingar og tekur á móti skráningu á netfangið solveig@hunathing.is eða í síma 771-4961.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir