Jólatónleikar tónlistarskólanna
Jólatónleikar tónlistarskólanna verða haldnir næstu dagana og eru það viðburðir sem alltaf er skemmtilegt að sækja.
Tónlistarskóli Húnaþings vestra ríður á vaðið og heldur sína tónleika í dag, laugardag. Þeir verða í Hvammstangakirkju og er tímasetning þeirra klukkan 13:00, klukkan 15:00 og klukkan 17:00.
Foreldrar/forráðamenn eru beðnir um að koma með kaffibrauð og foreldrafélag tónlistarskólans býður upp á kakó sem allir njóta eftir hverja tónleika.
Tónlistarskóli A-Húnavatnssýslu heldur jólatónleika sína sem hér segir:
Á Húnavöllum þriðjudaginn 12. desember klukkan 15:30.
Í Blönduósskirkju miðvikudaginn 13. desember klukkan 17:00.
Í Hólaneskirkju fimmtudaginn 14. desember klukkan 17:00.
Tónleikar Tónlistarskóla Skagafjarðar verða á eftirtöldum stöðum:
Í Grunnskólanum austan Vatna á Hólum þriðjudaginn 12. desember klukkan 15:30.
Í Höfðaborg á Hofsósi þriðjudaginn 12. desember klukkan 17:00.
Í Grunnskólanum austan Vatna á Sólgörðum miðvikudaginn 13. desember kl. 10:30.
Í matsal Árskóla fimmtudaginn 14. desember kl. 16:30 og 18:00.
Í Miðgarði föstudaginn 15. desember klukkan 16:00 og 18:00.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.