Listi Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi

Gylfi Ólafsson leiðir lista Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi.
Gylfi Ólafsson leiðir lista Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi.

Stjórn Viðreisnar hefur staðfest framboðslista flokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar í lok október. Listinn endurspeglar þann breiða hóp sem að framboðinu stendur; fólk úr viðskiptalífinu, menntamálum og matreiðslu. Frambjóðendurnir eru á öllum aldri, með ólíka reynslu að baki en sameiginlega sýn á framtíð Íslands. Listinn er fléttaður konum og körlum til jafns og er leiddur af Gylfa Ólafssyni, heilsuhagfræðingi og aðstoðarmanni fjármála- og efnahagsráðherra.

 

Frambjóðendurnir eru:

1.         Gylfi Ólafsson, heilsuhagfræðingur
2.         Lee Ann Maginnis, lögfræðingur
3.         Haraldur Sæmundsson, matreiðslumeistari
4.         Sigrún Helga Lund, dósent í tölfræði

5.         Jón Ottesen Hauksson, framkvæmdastjóri
6.         Ása Katrín Bjarnadóttir, nemi
7.         Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri
8.         Ragnheiður Jónasdóttir, verkefnastjóri

9.         Sturla Rafn Guðmundsson, svæðisstjóri RARIK
10.       Arnheiður Steinþórsdóttir, sagnfræðinemi
11.       Ragnar Már Ragnarsson, byggingarfræðingur
12.       Unnur Björk Arnfjörð, skólastjóri

13.       Indriði Indriðason, sveitastjóri
14.       Berglind Long, matreiðslumaður
15.       Pálmi Pálmason, fv. framkvæmdastjóri
16.       Jóhanna Guðrún Jónasdóttir, leikskólakennari

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir