Margir keyrðu of hratt um helgina
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
18.06.2018
kl. 11.06
Síðastliðna helgi voru 134 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur í embætti Lögreglunnar á Norðurlandi vestra en sá sem hraðast ók mældist á 166km hraða. Einnig voru fimm ökumenn kærðir fyrir önnur umferðarlagabrot og þ.á.m einn fyrir að valda mikilli hættu í umferðinni með glæfralegum framúrakstri og einn ökumaður grunaður um akstur undir áhrifum ávana og fíkniefna.
Á Facebooksíðu Lögreglunnar á Norðurlandi vestra kemur fram að áfram verði haldið að sinna eftirliti á vegum umdæmisins og skorar lögreglan á ökumenn að virða þær umferðarreglur sem gilda á vegum landsins.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.