Meistaradeild KS 2018 – Liðskynning Þúfur

Annað liðið sem kynnt er til leiks í KS deildinni í hestaíþróttum er lið Þúfna. Það lið er eins og Hrímnisliðið skipað fjórum bráðflinkum konum og þeim fylgir einn karl sem reyndar er enginn meðalmaður. Liðsstjóri er Mette Mannseth sem ávallt hefur verið við toppinn í einstaklingskeppninni.

Með henni eru : Barbara Wenzl, Lea Busch, Freyja Amble og Gísli Gíslason og koma Lea og Freyja nýjar inn í liðið. Það er vitað að þetta lið býr yfir góðum hestakosti og ætlar sér stóra hluti í vetur. Þjálfari liðsins verður Artemisia Bertus.

 

21.feb - Gæðingafimi

7.mars - T2

21.mars - 5-gangur - Akureyri

4.apríl - 4-gangur

13.apríl - Tölt & Skeið

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir