Íþróttir | 6.9.10 | 9:32

Það verður ekki annað sagt um leik Hvatar og KS/Leifturs en að annað liðið sótti til sigurs en hitt til að landa einu stigi. Leikmenn Hvatar voru mun meira með boltann og sköpuðu sér mun fleiri opin færi í leiknum en inn vildi boltinn ekki og því sættust liðin á skiptan hlut. Hvöt er því [...]
Meira »
Íþróttir | 4.9.10 | 16:29

Tindastóll gerði góða ferð á Selfoss í dag þar sem liðið lék við Árborg sem hefur farið mikinn í 3. deildinni í sumar. Þetta var fyrri viðureign liðanna í undanúrslitum 3. deildarinnar og fer síðari leikurinn fram á Sauðárkróksvelli næstkomandi miðvikudag kl. 17:15. Og úrslitin? Jú, 3-0 fyrir Tindastól.
Að sögn Sigga Donna, þjálfara Stólanna, var [...]
Meira »
Íþróttir | 4.9.10 | 9:50

Í vikunni sögðum við frá árlegu golfmóti burtfluttra Skagfirðinga sem fram fór á Hamarsvelli í Borgarnesi laugardaginn 28. ágúst s.l. Er þetta án efa orðið eitt stærsta og glæsilegasta átthagagolfmót sem haldið er hér á landi. Nú hafa bæst við fjölmargar myndir sem Björn Jóhann Björnsson tók og sendi Feyki.
Meira »
Íþróttir | 3.9.10 | 13:41

Sunddeild Tindastóls mun hefja vetrarstarf sitt mánudaginn 6. september. Þjálfarar þennan veturinn verða þau Fríða Rún Jónsdóttir og Fannar Arnarsson.
Æfingatafla er kominn á heimasíðu sunddeildarinnar.
Meira »
Íþróttir | 3.9.10 | 11:30

Gengi Hvatarliðsins hefur verið gott í sumar í 2. deildinni í knattspyrnu og er farið að sjá fyrir endann á góðu tímabili hjá þeim. Á morgun verður liðið í baráttu við KS/Leiftur á heimavelli.
Hvöt færði sig upp í 5. sæti deildarinnar um síðustu helgi eftir sigur á KV 4-1 á útivelli og er nú með [...]
Meira »
Íþróttir | 2.9.10 | 13:42

Þrátt fyrir að úti sé sól og yfir 20 gráðu hiti er sumarstarfi frjálsíþróttadeildarinnar lokið og stutt æfingahlé stendur yfir. Gert er ráð fyrir að æfingar byrji aftur 13. september með kastþjálfun úti fyrir alla aldurshópa.
Inniæfingar hefjast væntanlega í lok september og segir á heimasíðu deildarinnar að þær verði nánar auglýstar þegar nær dregur.
Meira »
Íþróttir | 2.9.10 | 11:31

Unglingaráð körfuknattleiksdeildar Tindastóls stendur fyrir september-körfuboltahátíð á laugardaginn kemur í íþróttahúsinu á milli kl. 13 og 15. Settar verða upp körfuboltaþrautir, farið í leiki og að lokum verða grillaðar pylsur ofan í mannskapinn.
Meðlimir unglingaráðs auk þjálfara verða á staðnum til viðtals og leikmenn meistaraflokks munu kíkja í heimsókn. Ekki verður um mjög formlega dagskrá að [...]
Meira »