Vestur-Húnavatnssýsla | 7.9.10 | 8:19

Það verður lítið lát á blíðunni næstu daga en næsta sólahringinn gerir spáin ráð fyrir hægri austlægari átt, skýjuðu veðri og úrkomulitlu. Léttir heldur til í dag og skýjað með köflum á morgun. Hiti 12 til 20 stig en heldur svalara á morgun.
Þegar litið er til næstu daga gerir spáin ráð fyrir tveggja stafa hitatölum [...]
Meira »
Vestur-Húnavatnssýsla | 6.9.10 | 8:32

Menningarráð Norðurlands vestra ákvað að hafa tvær úthlutanir á árinu 2010, með umsóknarfrestum um verkefnastyrki til og með 15. mars og nú 15. september og af því tilefni verður Menningarfulltrúi Norðurlands vestra með eftirfarandi viðtalstíma:
Mánudagur 6. september:
Kl. 11.00-12.00 – Hótel Varmahlíð
Kl. 13.00-16.30 – Faxatorg 1, efri hæð, Sauðárkróki
Kl. 17.00-18.00 – Sögusetur íslenska hestsins, Hólum í [...]
Meira »
Vestur-Húnavatnssýsla | 6.9.10 | 8:17

Fyrstu réttir haustsins fóru fram um helgina í blíðskaparveðri og var m.a. réttað í Miðfjarðarrétt. Ágætlega er talið hafa smalast af heiðinni og má gera ráð fyrir að fullorðin hross hafi verið rúmlega 300 stykki en ekki er vitað um hve margt sauðfé skilaði sér en það skiptir þúsundum samkvæmt upplýsingum réttarstjóra.
Helgi Pálsson á Heggstöðum [...]
Meira »
Vestur-Húnavatnssýsla | 3.9.10 | 8:38

Fyrir skömmu fóru krakkarnir í fyrsta til fjórða bekk Grunnskóla Húnaþings vestra, ásamt umsjónarkennurum, að taka upp grænmeti úr skólagarðinum á Hvammstanga. Uppskeran þetta árið var góð, enda hefur tíðarfar verið með ágætum í sumar.
Þarna rækta krakkarnir meðal annars kartöflur, kál og gulrætur sem koma að góðum notum í mötuneyti grunnskólans. Gekk þetta allt saman [...]
Meira »
Vestur-Húnavatnssýsla | 2.9.10 | 11:38

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur tilkynnt breytingar á ríkisstjórn. Út fara þau Kristján Möller, Álfheiður Ingadóttir, Gylfi Magnússon og Ragna Árnadóttir. Í þeirra stað koma Guðbjartur Hannesson og Ögmundur Jónasson inn í ríkisstjórnina.
Jóhanna tilkynnti ákvörðun sína á þingflokksfundi og flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar á Hótel Loftleiðum.
Klukkan 11:30 hefst ríkisráðsfundur á Bessastöðum þar sem ný ríkisstjórn tekur formlega til [...]
Meira »
Vestur-Húnavatnssýsla | 2.9.10 | 9:32

Minnisvarði um Guðmund Bergþórsson, rímaskáld, hefur verið settur upp að Stöpum á Vatnsnesi. Guðmundur var uppi á árunum 1657-1705 og var eitt af mikilvirkustu rímnaskáldum allra tíma.
Guðmundur lamaðist á fótum á fjórða ári og visnaði á honum hægri höndin. Hann skrifaði því allt með vinstri hendinni. Það er Kvæðamannafélagið Vatnsnesingur og kvæðamannafélagið Iðunn, ásamt styrkveitendum, [...]
Meira »
Vestur-Húnavatnssýsla | 2.9.10 | 9:22

Sú ákvörðun sjávarútvegsráðherra að gefa ekki út aflamark í úthafsrækju á komandi fiskveiðiári er ólögleg samkvæmt lögfræðiáliti sem unnið hefur verið fyrir Landssamband íslenskra útvegsmanna og ráðuneytinu hefur verið kynnt.
Í álitinu segir m.a. að ákvörðun ráðherra „ … stenst ekki lög um stjórn fiskveiða og er því ólögmæt og ógildanleg.“
Þegar fiskveiðiárinu 2009/2010 lauk hafði allur [...]
Meira »