Vísindi og grautur - AUKIN FAGÞEKKING VIÐ HÖNNUN OG GERÐ SJÁLFBÆRRA GÖNGULEIÐA OG ÁNINGARSTAÐA

Háskólinn á Hólum 21. nóvember kl. 13:00-14:00
21nóv

Mið. 21. nóv. kl. 13:00 – 14:00 flytur Davíð Arnar Stefánsson verkefnisstjóri hjá Landgræðslu ríkisins erindi um hönnun og gerð sjálfbærra gönguleiða og áningarstaða. Erindið er hluti af fyrirlestraröð Vísinda og grautar við Háskólann á Hólum. Allir velkomnir!

Ferðamennska og útivist hefur vaxið mikið á síðustu árum hérlendis. Jafnframt hefur álag aukist á ferðamannastaði og útivistarsvæði, oft með tilheyrandi landskemmdum. Víða hefur verið brugðist við með uppbyggingu gönguleiða og áningarstaða og varið til þess háum fjárhæðum með mismunandi árangri.

Sá hluti lands sem stendur utan þjóðgarða og verndaðra svæða er sérstaklega berskjaldaður fyrir landskemmdum. Ábyrgðaraðilar hafa oft úr litlu fjármagni að spila til verndaraðgerða og víða er takmörkuð þekking á viðfangsefninu. Mikilvægt er að efla fagþekkingu á hönnun og gerð sjálfbærra ferðamannastaða og útivistarsvæða meðal sveitarfélaga, landeigenda og annarra umsjónaraðila lands, til verndar náttúru og til að  tryggja ábyrga ráðstöfun fjármuna.

Í erindinu verður fjallað um grundvallaratriði við hönnun og gerð göngustíga og áningarstaða í náttúru Íslands. Sagt verður frá ASCENT verkefni Landgræðslunnar (Apply Skills and Conserve our Environment with New Tools) og samstarfsaðila hennar. Verkefnið felur í sér þróun aðferða við að auka fagþekkingu þeirra sem fást við umsjá ferðamannastaða og útivistarsvæða.

Erindið verður aðgengilegt á www.holar.is eftir viðburðinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.