Finnur Bessi tilnefndur sem gæðingaknapi ársins
Austur-Húnvetningurinn Finnur Bessi Svavarsson í Litla-Dal hefur verið tilnefndur sem gæðingaknapi ársins, en titillinn er meðal þeirra sem veitt verða verðlaun fyrir á Uppskeruhátíð hestamanna í Gullhömrum í Reykjavík þann 5. nóvember næstkomandi.
Eins og sagt var frá hér á vefnum í gær hafa Skagfirðingarnir Ásdís Ósk Elvarsdóttir og Eyrún Ýr Pálsdóttir líka verið tilnefndar til knapaverðlauna. Sömuleiðis hefur Vestur-Húnvetningurinn Helga Una Björnsdóttir verið tilnefnd. Allar tilnefningar hafa verið birtar á vef Eiðfaxa og verða þeir sem útnefndir eru í hverjum flokki heiðraðir á Uppskeruhátíð hestamanna, auk þess sem ræktunarbúi ársins verða veitt verðlaun. Á vefnum segir að hátíðin verði glæsileg að vanda, en það eru LH og FHB sem standa saman að henni.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.