Firmakeppni Skagfirðings á sumardaginn fyrsta

Steindóra Ólöf Haraldsóttir á Toppi f. Sandfellshaga 2 í firmakeppni Léttfeta 2012. Mynd: PF
Steindóra Ólöf Haraldsóttir á Toppi f. Sandfellshaga 2 í firmakeppni Léttfeta 2012. Mynd: PF

Firmakeppni hestamannafélagsins Skagfirðings verður haldin á morgun, sumardaginn fyrsta, á félagssvæði við Tjarnarbæ. Fyrir utan það að geta fylgst með flottum gæðingum á brautinni verður myndarlegt kaffihlaðborð í Tjarnarbæ að lokinni keppni. Skráning á staðnum frá klukkan 12 – 12:45 og keppni hefst klukkan 13.

Keppt verður í pollaflokki (8 ára og yngri), barnaflokki, unglingaflokki, kvennaflokki, karlaflokki, atvinnumannaflokki og 60+.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir