Fundarferð stjórnar Félags hrossabænda

Stjórn Félags hrossabænda ætlar í fundarferð um landið og mun byrja á Norðurlandi helgina 12- 14 janúar og er tilgangur ferðarinnar að hitta félagsmenn og fara yfir starfsemi félagsins.  Allir eru velkomnir á fundina sem eiga að snúast um tilgang félagsins, áherslur og tækifæri og munum stjórn kalla sérstaklega eftir ábendingum um hvaða áherslur félagsmenn vilja sjá í starfi félagsins.

Eysteinn Leifsson stjórnarmaður mun segja fundarmönnum frá starfi sínu sem hrossaútflytjandi og rifja upp hvað hesteigendur þurfa að hafa í huga þegar þeir selja hesta úr landi.

Stjórn býður alla þá sem vilja kynna sér félagið sérstaklega velkomna á fundina. Frekara fundarhald stjórnarinnar verður kynnt síðar.

Fundirnir á Norðurlandi verða á eftirtöldum stöðum :

Reiðhöllin Svaðastaðir Sauðárkróki föstudaginn 12. jan. kl 20:00.

Reiðhöllin á Akureyri laugardaginn 13. jan. kl 14:00.

Gauksmýri í Húnaþingi Sunnudaginn 14. jan. kl 1500.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir