Gamlar hrossaræktunarlínur komin út á ensku

Bókarkápa ensku útgáfunnar, Old breeding lines.
Bókarkápa ensku útgáfunnar, Old breeding lines.

Í tilefni Landsmóts hestamanna á Hólum er komin út enska útgáfa bókar um gamlar hrossaræktunarlínur sem hefur undanfarið verið mjög vinsæl í þýskumælandi löndum.

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) og Þróunarsjóður hestamennskunnar veittu styrkir til bókarinnar sem heitir „Old breeding lines“. Bókin fæst m.a. á Sögusetrinu íslenska hestsins á Hólum, hjá Eymundsson og hjá höfundinum sjálfum sem er Caroline Kerstin Mende.

Erlendis myndaðist lífsstíll sem er nátengdur íslenska hestinum og hestamenn sem eiga íslenska hesta hafa oftast sitt eigin samfélag, aðskilið frá hestamönnum annarra hrossakynja. Samt vantaði algjörlega bók um ræktunarsögu íslenska hestsins þótt mörgum erlendum hestamönnum eru bæjarnöfnin eins og Kolkuós eða Hindisvík kunnug.

Bókin „Alte Zuchtlinien“, sem var gefin út á þýsku í september 2015 og er fáanleg núna líka á ensku sem „Old Breeding Lines“, kynnir gömlu línurnar, auk þess býður hún upp á fróðleik um líf hesta og manna á Íslandi fyrr og nú, m.a. um stóðréttir sem eru sérstakt fyrirbæri á Norðurlandi vestra. Bókin nýtur mikilla vinsælda í þýskumælandi löndum, það hafa selst þegar rúmlega 1.200 eintök og margoft var spurt hvort bókin væri ekki líka til á ensku.

Forlagið Verlag Alpha Umi sérhæfir sig í bókum um íslensk efni til að fræða Íslandsvini og ferðamenn. Íslensk húsdýr standa í forgrunni, fyrst og fremst kindur og hestar. Framkvæmda-stjórinn og höfundur bókanna er Caroline Kerstin Mende eða Karólína sem býr á fyrrverandi eyðijörðinni Hvammshlíð.

Bækurnar forlagsins henta sérstaklega vel sem tækifærisgjöf handa erlendum vinum og vandamönnum, en einnig sem söluvara fyrir alla sem eru einhvern veginn tengdir erlendum hestamönnum og ferðamönnum. Bókin inniheldur 82 blaðsíður og kostar 2.500 kr, forlagið veitir endurseljendum 25 til 35% afslátt.

Hægt er að panta beint hjá Karólínu í tölvupósti info (hjá) verlag-alpha-umi.de eða í síma 865 8107. Nánari upplýsingar: www.verlag-alpha-umi.de/islenska.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir