Hestadagar í Skagafirði um helgina - Tekið til kostanna og Meistaradeild KS

Tekið til kostanna 2022 fer fram í reiðhöllinni Svaðastöðum föstudaginn 29. apríl nk. kl. 20:00 - Húsið opnar klukkan 18 og segir í tilkynningu frá aðstandendum viðburðarins að hamborgari og kaldur verði í boði í reiðhöllinni. Lagt verður á skeið á Hólum á laugardag.

Forsala aðgöngumiða hefst eftir hádegi í dag, miðvikudaginn 27. apríl, og verður hægt að nálgast miða á N1, Sauðárkróki. Miðaverð í forsölu er kr. 3.500 en frítt fyrir 12 ára og yngri.

Miðaverð við hurð er kr. 4.000, frítt fyrir 12 ára og yngri.

Opinn bar verður í anddyri reiðhallarinnar eftir sýningu á föstudagskvöldið þar sem leikin verður tónlist.

Á laugardeginum fer fram keppni í Meistaradeild KS þegar knapar reyna sig í gæðingaskeiði og 150m skeiði. Fer mótið fram á Hólum í Hjaltadal og hefst klukkan 13.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir