Karítas knapi mótsins

Keppendur í unglingaflokki. Mynd: thytur.123.is
Keppendur í unglingaflokki. Mynd: thytur.123.is

Sameiginlegt Gæðingamót hestamannafélaganna Þyts og Neista var haldið á Blönduósi á laugardaginn sl. Karítas Aradóttir, keppandi í unglingaflokki, var valin knapi mótsins og Abel frá Sveinsstöðum hestur mótsins.

Í barnaflokki urðu Rakel Gígja Ragnarsdóttir og Grágás frá Grafarkoti efstar með 8,63 og í unglingaflokki urðu Karítas Aradóttir og Sómi frá Kálfsstöðum efst með 8,55. Birna Olivia Agnarsdóttir og Daníel frá Vatnsleysu urðu efst í ungmennaflokki með 8,47. Í B-flokki áhugamanna sigruðu Jóns Gíslason og Þjónn frá Hofi með 8,23. Ægir Sigurgeirsson og Gítar frá Stekkjardal hrepptu efsta sæti í B-flokki með 8,53 en Ólafur Magnússon og Abel frá Sveinsstöðum efsta sætið í A-flokki með 8,47. Þá urðu Ólafur og Abel fyrst í 100 metra skeiði á 8,45 sekúndum. Þess má einnig geta að Salka Kristín Ólafsdóttir keppti ein í pollaflokki. Önnur úrslit mótsins urðu sem hér segir:

Barnaflokkur

1. Rakel Gígja Ragnarsdóttir og Grágás frá Grafarkoti - 8,63

2. Dagbjört Jóna Tryggvadóttir og Sparibrúnn frá Hvoli - 8,34

3. Hlíðar Örn Steinunnarson og Blakkur frá Kolbeinsá 2 - 8,24

3. Inga Rós Suska Hauksdóttir og Feykir frá Stekkjardal - 0 (fór úr braut)

Unglingaflokkur

1. Karítas Aradóttir og Sómi frá Kálfsstöðum - 8,55

2. Ásta Guðný Unnsteinsdóttir og Glitri frá Grafarkoti - 8,44

3. Ásdís Brynja Jónsdóttir og Keisari frá Hofi - 8,28

4. Lara Margrét Jónsdóttir og Tímon frá Hofi - 8,04

5. Lilja Maria Suska og Gullmoli frá Möðrufelli - 7,99

6. Ásdís Freyja Grímsdóttir og Tígull frá Köldukinn - 7,88

Ungmennaflokkur

1. Birna Olivia Agnarsdóttir og Daníel frá Vatnsleysu - 8,47

2. Eva Dögg Pálsdóttir og Stuðull frá Grafarkoti - 8,18

3. Friðrún Fanný Guðmundsdóttir og Lóa frá Bergstöðum - 8,14

4. Vera Van Praag Sigaar og Rauðbrá frá Hólabaki - 8,09

5. Haukur Marian Suska og Viðar frá Hvammi 2 - 7,18

B-flokkur áhugamanna

1. Jón Gíslason og Þjónn frá Hofi  -  8,28

2. Kristín Jósteinsdóttir og Garri frá Sveinsstöðum  -  8,26

3. Þorgeir Jóhannesson og Sveipur frá Miðhópi  -  8,22

4. Sverrir Sigurðsson og Krummi frá Höfðabakka  -  8,21

5. Sigrún Eva Þórisdóttir og Dropi frá Hvoli  -  7,81

B-flokkur

1. Gítar frá Stekkjardal og Ægir Sigurgeirsson - 8,53

2. Gimsteinn frá Röðli og Jakob Víðir Kristjánsson - 8,43

3. Táta frá Grafarkoti og Fanney Dögg Indriðadóttir - 8,39

4. Laufi frá Syðra Skörðugili og Eline Schriver - 8,35

5. Vigur frá Hofi og Ásdís Brynja Jónsdóttir - 8,32

6. Garri frá Gröf og Jessie Huijbers - 8,27

7. Sæfríður frá Syðra Kolugili og Hörður Óli Sæmundarson - 8,27

8. Krossfari frá Kommu og Svana Ingólfsdóttir - 8,13

A-flokkur

1. Abel frá Sveinsstöðum og Ólafur Magnússon - 8,47

2. Birta frá Flögu og Valur Valsson - 8,30

3. Frægur frá Fremri Fitjum og Jakob Víðir Kristjánsson - 8,02

4. Orka frá Syðri Völlum og Pálmi Geir Ríkharðsson - 7,99

5. Heilladís frá Sveinsstöðum og Hörður Óli Sæmundarson - 7,54

100 metra skeið

1. Ólafur Magnússon og Abel frá Sveinsstöðum - 8,45 sek

2. Haukur Marian Suska og Viðar frá Hvammi 2 - 9,01 sek

3. Jakob Víðir Kristjánsson og Steina frá Nykhóli - 9,10 sek

 

 

 

 

 



 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir