KS - deildin í kvöld – Athugið breyttan keppnisdag

Bjarni Jónasson og Randalín. Mynd: KS deildin.
Bjarni Jónasson og Randalín. Mynd: KS deildin.

Þá er komið að töltkeppni KS – deildarinnar og er athygli vakin á breyttri dagsetningu en keppnin fer fram í kvöld, þriðjudagskvöldið 21. mars, og hefst kl.19.00. Margt góðra hrossa er skráð til leiks og keppnin að verða mjög spennandi, bæði í liða og einstaklingskeppninni. Unnendur góðra hrossa eru hvattir til að mæta í Svaðastaðahöllina og fylgjast með skemmtilegri keppni þeirra bestu.

Ráslistinn er eftirfarandi:

1. Fanndís Viðarsdóttir - Dúkkulísa frá Þjóðólfshaga - Team Jötunn

2. Helga Una Björnsdóttir - Þoka frá Hamarsey - Hrímnir

3. Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir - Sara frá Lækjarbrekku - Mustad

4. Gísli Gíslason - Flygill frá Stóra-Ási - Draupnir/Þúfur

 

5. Lilja Pálmadóttir - Mói frá Hjaltastöðum - Hofstorfan/66°norður

6. Fríða Hansen - Kvika frá Leirubakka - Íbess/Top Reiter

7. Fanney Dögg Indriðadóttir - Gróska frá Grafarkoti - Lífland

8. Flosi Ólafsson - Vöndur frá Hofi – Mustad

 

9. Jóhanna Margrét Snorradóttir - Kári frá Ásbrú - Hrímnir

10. Magnús Bragi Magnússon - Hrafnfaxi frá Skeggstöðum - Íbess/Top Reiter

11. Mette Mannseth - Trymbill frá Stóra-Ási - Draupnir/Þúfur

12. Guðmundur Karl Tryggvason - Brá frá Akureyri - Team Jötunn

 

13. Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir - Kvistur frá Reykjavöllum - Lífland

14. Gústaf Ásgeir Hinriksson - Draupnir frá Brautarholti - Hofstorfan/66°norður

15. Þórarinn Eymundsson - Laukur frá Varmalæk -  Hrímnir

16. Barbara Wenzl - Hryðja frá Þúfum - Draupnir/Þúfur

 

17. Finnbogi Bjarnason - Dynur frá Dalsmynni - Lífland

18. Ísólfur Líndal - Ósvör frá Lækjamóti - Íbess/Top Reiter

19. Viðar Bragason - Þytur frá Narfastöðum - Team Jötunn

20. Bjarni Jónasson - Randalín frá Efri-Rauðalæk - Hofstorfan/66°norður

 

21. Sigurður Rúnar Pálsson - Reynir frá Flugumýri - Mustad

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir