Meistaradeild KS 2018 - Íbess

Fimmta liðið sem kynnt er í Meistaradeild KS er lið Íbess þar sem Jóhann B. Magnússon á Bessastöðum í Húnaþingi er liðsstjóri sem fyrr. Með honum eru hörku liðsmenn, m.a. bróðir hans Magnús Bragi Magnússon, Fríða Hansen, Guðmar Freyr Magnússon og Hörður Óli Sæmundarson. Í tilkynningu frá Meistaradeildinni segir að vitað sé að þeir bræður búi ætíð yfir góðum hestakosti, spurning hvað þeir draga út úr hesthúsinu þennan veturinn.

Með þeim eru góðir knapar sem náð hafa góðum árangri í keppni og er þarna á ferðinni reynslumikið lið sem á eflaust eftir að láta nokkuð að sér kveða í vetur.

21.feb - Gæðingafimi

7.mars - T2

21.mars - 5-gangur - Akureyri

4.apríl - 4-gangur

13.apríl - Tölt & Skeið

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir