Meistaradeild KS 2018 - Lið Hofstorfunnar

Þriðja liðið sem kynnt er til leiks er lið Hofstorfunnar en það er skipað miklu keppnisfólki sem finnst allt annað en sigur vera tap. Liðsstjóri er Elvar E. Einarsson en með honum í liði er dóttir hans Ásdís Ósk, Bjarni Jónasson, Gústaf Ásgeir Hinriksson og Lilja S. Pálmadóttir.

Ásdís kemur ný inn í liðið, bráðefnilegur ungur knapi sem kemur til með að styrkja þetta lið mikið og Bjarni Jónasson hefur ætíð verið í baráttunni um stigahæsta einstaklinginn. Þarna verður ekkert gefið eftir og metnaður lagður í hlutina.

21.feb - Gæðingafimi

7.mars - T2

21.mars - 5-gangur - Akureyri

4.apríl - 4-gangur

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir