Meistaradeild KS 2018 - Lið Líflands - Kidka

Fjórða liðið sem kynnt er til leiks í KS deildinni í hestaíþróttum er lið Líflands – Kidka en fyrir því fara þau Elvar Logi og Fanney Dögg. Hafa þau fengið til liðs við sig þrjá knapa sem kepptu fyrir Íslands hönd á síðasta HM í Hollandi.

Liðsstjóri er skagfirski Húnvetningurinn Elvar L Friðriksson en auk hans eru í liðinu Fanney Dögg Indriðadóttir, Finnbogi Bjarnason, Konráð Valur Sveinsson og Svavar Ö Hreiðarsson.

Nýr inn í þetta lið kemur Konráð Valur Sveinsson sá mikli skeiðreiðarmaður en með Konna og Svabba Hreiðars innanborðs ætti skeiðkeppnin að verða formsatriði, segir í tilkynningu frá Meistaradeildinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir