Mette og Skálmöld sigruðu í gæðingafimi Meistaradeildar KS

Mette Mannseth og Skálmöld frá Þúfum. Mynd: FB Meistaradeildar KS.
Mette Mannseth og Skálmöld frá Þúfum. Mynd: FB Meistaradeildar KS.

Mette Mannseth og Skálmöld frá Þúfum stóðu uppi sem sigurvegarar í gæðingafimi Meistaradeildar KS í hestaíþróttum sem fram fór á miðvikudagskvöldið, með einkunnina 8,41. Hefur þetta glæsilega par þá sigrað í þessari grein tvö ár í röð. Þúfur tekur forystuna í liðakeppninni.

Í öðru sæti urðu þau Fredrica Fagerlund og Stomur frá Yztafelli fyrir lið Leiknis með einkunnina 8,09 og í þriðja sæti varð svo Gísli Gíslason og Trymbill frá Stóra-Ási með einkunnina 7,78.

Á  Facebooksíðu Meistaradeildarinnar kemur fram að Þúfur hafi sigrað í liðakeppninni í gæðingafimi en allir þrír knaparnir úr liðinu enduðu í efstu sex sætunum.

Niðurstöður - Gæðingafimi

  1. Mette Mannseth & Skálmöld frá Þúfum / Þúfur 8.41
  2. Fredrica Fagerlund & Stormur frá Yztafelli / Leiknir 8.09
  3. Gísli Gíslason & Trymbill frá Stóra-Ási / Þúfur 7.78
  4. Pétur Örn Sveinsson & Hlekkur frá Saurbæ / Hrímnir 7.32
  5. Védís Huld Sigurðardóttir & Stássa frá Íbishóli / Íbishóll 7.12
  6. Barbara Wenzl & Gola frá Tvennu / Þúfur 7.04
  7. Konráð Valur Sveinsson & Sena frá Hólum / Leiknir 6.94
  8. Þórgunnur Þórarinsdóttir & Hnjúkur frá Saurbæ / Hrímnir 6.85
  9. Fanney Dögg Indriðadóttir & Griffla frá Grafarkoti / Hrímnir 6.82
  10. Guðmunda Ellen Sigurðardóttir & Flaumur frá Fákshólum / Equinics 6.81
  11. Vera Evi Schneiderchen & Ramóna frá Hólshúsum / Equinics 6.73
  12. Guðmar Þór Pétursson & Ástarpungur frá Staðarhúsum Leiknir 6.67
  13. Ásdís Ósk Elvarsdóttir & Brimdís frá Efri-Fitjum / Storm Rider 6.67
  14. Vignir Sigurðsson & Stjörnuþoka frá Litlu-Brekku / Eques 6.65
  15. Sigrún Rós Helgadóttir & Hjari frá Hofi á Höfðaströnd / Hofstorfan 6.60
  16. Sigurður Heiðar Birgisson & Íshildur frá Hólum / Equinics 6.56
  17. Freyja Amble Gísladóttir & Stimpill frá Þúfum / Íbishóll 6.45
  18. Þorsteinn Björn Einarsson & Rjóður frá Hofi á Höfðaströnd / Hofstorfan 6.44
  19. Guðmar Freyr Magnússon & Rosi frá Berglandi I / Íbishóll 6.44
  20. Elvar Einarsson & Muni frá Syðra-Skörðugili / Storm Rider 6.30
  21. Bjarki Fannar Stefánsson & Vissa frá Jarðbrú / Hofstorfan 6.12
  22. Arndís Brynjólfsdóttir & Hraunar frá Vatnsleysu / Storm Rider 5.77
  23. Guðmundur Karl Tryggvason & Assa frá Miðhúsum / Eques 5.40
  24. Fanndís Viðarsdóttir & Birta frá Gunnarsstöðum / Eques 3.7

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir