Reynir að undirbúa sig vel fyrir hverja keppni :: Íþróttagarpurinn Þórgunnur Þórarinsdóttir

Þórgunnur Þórarinsdóttir og Hnjúkur frá Saurbæ á Íslandsmóti yngri flokka í Hafnarfirði síðastliðið sumar. Mynd: Sigríður Gunnarsdóttir.
Þórgunnur Þórarinsdóttir og Hnjúkur frá Saurbæ á Íslandsmóti yngri flokka í Hafnarfirði síðastliðið sumar. Mynd: Sigríður Gunnarsdóttir.

Feykir sagði frá því snemma í desember að tvö ungmenni af Norðurlandi vestra höfðu þá verið valin í U21-landsliðshóp Landssambands Hestamann fyrir árið 2022, Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal, úr Hestamannafélaginu Þyt í Húnaþingi vestra, og Þórgunnur Þórarinsdóttir, Skagfirðingi. Guðmar svaraði spurningum Feykis í síðasta blaði ársins, sem kom út fyrir jólin, og nú er komið að Þórgunni. Hún býr á Sauðárkróki, dóttir þeirra Þórarins Eymundssonar, hestahvíslara, og Sigríðar Gunnarsdóttur, sóknarprests.

Þórgunnur segir tilfinninguna hafa verið mjög góða þegar hún fékk að vita að hún hafði verið valin í U21-landsliðshóp LH 2022 enda mjög spennandi og mikill heiður. -Það er skemmtilegt að uppskera vel eftir gott ár og vita að maður hafi verið að gera vel. Þetta er líka mikil hvatning fyrir mig að gera ennþá betur, segir hún.

Segðu frá keppnum sumarsins og hvernig hafa þær gengið hjá þér? -Keppnir sumarsins gengu oftast mjög vel. Það var mikil keyrsla í sumar og mikið ferðalag á okkur fjölskyldunni eins og vanalega. Ég lærði mikið í sumar og hestarnir mínir stóðu sig frábærlega. Aðalmót sumarsins voru Fjórðungsmót Vesturlands og Íslandsmót yngri flokka. Á Fjórðungsmótið mætti ég með Hnjúk frá Saurbæ. Hann er 8 vetra stóðhestur úr ræktun foreldra minna. Við fórum í Borgarnes að keppa í unglingaflokki og það gekk prýðilega, við höfnuðum í þriðja sæti. Ég hafði ekki háar væntingar til hans þar sem hann var bara að stíga sín fyrstu skref í keppni og við höfðum ekki verið lengi saman.

Íslandsmót barna og unglinga var svo nokkrum dögum seinna. Ég vissi að Hnjúkur átti helling inni fyrir það mót og við fórum beinustu leið í A-úrslit eftir forkeppni V1. Einnig urðum við Íslandsmeistarar í fimikeppni á því móti. Hann stóð sig alveg framan vonum. Ég mætti líka með þá Takt frá Varmalæk og Djarf frá Flatatungu á mótið. Þeir fóru báðir í A-úrslit í fimmgangi og ég endaði svo í 2. sæti með Takt í úrslitum. Einnig tók ég þátt í minni mótum eins og stórmóti Hrings. Þar náði ég mínum fyrsta tíma í 100 m skeiði á Gullbrá frá Lóni, 7.72 sekúndur. Það var mjög skemmtileg upplifun.

Þau eru sigursæl feðginin, ásamt litlu systur, Hjördísi Höllu sem nældi sér í tvo Íslandsmeistaratitla síðasta sumar, svo það er forvitnilegt að vita hvort ekki sé hörð samkeppni um keppnishrossin. En eins og gott lið á að vera segir Þórgunnur samkomulagið með keppnishrossin alltaf gott: -Við erum öll bara með okkar keppnishesta en auðvitað skiptumst við stundum á, segir hún.

Íþróttafélag: -Hestamannafélagið Skagfirðingur.

Helstu íþróttaafrek: -Íslandsmeistari í fimi unglinga og að vera valin í U-21 landsliðið.

Skemmtilegasta augnablikið: -Á svo mörg skemmtileg móment, það var virkilega gaman að taka þátt í landssýningunni í Borganesi í sumar. Það var geggjað veður og við Djarfur frá Flatatungu vorum í góðum gír.

Neyðarlegasta atvikið: -Þegar ég lendi í rokum inni á keppnisvellinum.

Einhver sérviska eða hjátrú? -Ég er ekki hjátrúarfull. Það er kannski engin sérviska en ég vil alltaf vera eins vel undirbúin og ég get og vera búin að græja allt degi fyrir keppni. Mér líður mikið betur þegar ég veit að allt er klárt og þá verður líka minni líkur á einhverju óþarfa stressi.

Uppáhalds íþróttamaður? -Sara Björk Gunnarsdóttir, [knattspyrnukona].

Ef þú mættir velja þér andstæðing, hver myndi það vera og í hvaða grein mynduð þið spreyta ykkur? -Ég myndi vilja keppa í kappreiðum á Gullbrá okkar frá Lóni við meistara Konráð Val á Kjarki frá Árbæjarhjáleigu.

Hvernig myndir þú lýsa þeirri rimmu? -Það yrði allt sett í botn og við Gullbrá gæfum þeim ekkert eftir.

Helsta afrek fyrir utan íþróttirnar? -Að fara í göngur hjá Einari frænda mínum í Flatatungu.

Lífsmottó: -Hugurinn ber þig hálfa leið.

Helsta fyrirmynd í lífinu: -Foreldrar mínir eru mínar helstu fyrirmyndir í lífinu. Þau standa alltaf við bakið á mér í öllu sem ég geri og hafa kennt mér nánast allt sem ég kann. Ég er ævinlega þakklát fyrir að eiga þau að.

Hvað er verið að gera þessa dagana? -Það er bara verið að þjálfa hesta á fullu og vinna í hesthúsinu alla daga. Undirbúningur fyrir komandi keppnistímabil gengur vel og er ekki síður skemmtilegt en að keppa. Svo er ég bara í skólanum og eitthvað að reyna að læra á bíl og allskonar fleira gaman.

Hvað er framundan? -Það er að halda áfram að þjálfa og verða betri með hverjum deginum, svo byrja mótin í febrúar.

Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri? -Megi 2022 færa okkur öllum gæfu og gleði.

Áður birst í 1. tbl. Feykis 2022

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir