Sina og Nói sigruðu í fimmgangi í gær
Í gærkvöldi fór fram keppni í fimmgangi Meistaradeildar KS og í annað sinn á tveimur árum sem hún fer fram í Léttishöllinni á Akureyri. Á vef Eiðfaxa segir að ljóst hafi verið fyrir leika að keppni yrði jöfn og skemmtileg enda úrvals knapar og hestar skráðir til leiks.
Sina Scholz tók forystu í forkeppni og lét hana aldrei af hendi, segir á eidfaxi.is. Samspil hennar og Nóa frá Saurbæ einkennist af næmni og léttleika, knapi og hestur virðast hafa gaman af því að koma fram og keppa sem er til fyrirmyndar.
Lið Hrímnis sigraði liðaskjöldinn enda voru allir knapar þeirra í úrslitum, þau Sina, Þórarinn og Líney. Lið Þúfna kom fast á hæla þeirra og voru einnig með alla knapa í úrslitum þau Gísla, Artemisiu og Mette.
Úrslit:
1 Sina Scholz Nói frá Saurbæ 7,55
2 Þórarinn Eymundsson Þráinn frá Flagbjarnarholti 7,38
3 Artemisia Bertus Herjann frá Nautabúi 7,07
4 Snorri Dal Engill frá Ytri-Bægisá I 6,93
5 Gísli Gíslason Trymbill frá Stóra-Ási 6,81
6 Mette Mannseth Kalsi frá Þúfum 5,31
Staðan í Liðakeppni:
Hrímnir 164
Skoies/Prestige 157
Þúfur 154
Hofstorfan 115
Leiknisliðið 115
Lið Kerckhaert 87,5
Lið Flúðasveppa 76,5
Team BYKO 62
Nú eru tvær keppnir eftir og verða þær haldnar í reiðhöllinni á Sauðárkróki 27. mars, þegar fjórgangurinn fer fram, og 12. apríl en þá reyna hestar og knapar með sér í tölti og flugskeiði.
Sjá nánari úrslit HÉR
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.