Skagfirska Mótaröðin 2017

Skagfirska mótaröðin í hestaíþróttum fer senn af stað en fyrsta mót vetrarins verður haldið þann 15. febrúar í reiðhöllinni Svaðastaðir á Sauðárkróki. Keppt verður þá í léttum fjórgangi & léttu tölti fyrir börn, unglinga & ungmenni.

Mótin verða eftirfarandi:

15. feb. - Léttur fjórgangur & létt tölt - börn, unglingar & ungmenni

1. mars - Léttur fjórgangur & létt tölt - 1,2,3 flokkur

15. mars - T3, V2 & F2 - börn, unglingar & ungmenni

29. mars - T3, V2 & F2 - 1,2,3 flokkur

12. apríl - þrautabraut & skeið - allir flokkar

19. apríl - Sterkustu norðlendingarnir. Þar eiga þátttökurétt knapar úr eftirfarandi deildum: KEA deildin, Húnvetnska mótaröðin & Skagfirska mótaröðin. Þátttökurétt á þessu móti eiga efstu fjórir knapar í hverri grein (þ.e fjórgangur, fimmgangur, tölt & skeið) samtals fjórir knapar í hverri grein. Efstu tveir knaparnir keppa í A-úrslitum og næstu tveir knapar keppa í B-úrslitum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir