Svínavatn 2018 á morgun

Hrynur frá Hrísdal og Siguroddur Pétursson á Svínavatni 2015.
Hrynur frá Hrísdal og Siguroddur Pétursson á Svínavatni 2015.

Ísmót hestamanna á Svínavatni verður haldið laugardaginn 3. mars og hefst stundvíslega klukkan 12 á B-flokki, síðan kemur A-flokkur og endað er á tölti. Úrslit verða riðin strax á eftir hverri grein. Ráslistar, aðrar upplýsingar og úrslit þegar þar að kemur eru birtar á heimasíðu mótsins is-landsmot.is

Í tilkynningu frá mótsnefnd segir að gott hljóðkerfi og útvarpsútsending þar sem einkunnir verða kynntar jafnóðum verði á staðnum ásamt veitingasölu með heitum drykkjum, samlokum, pylsum o.fl. og að Posi sé innan seilingar. 
Aðgangur er ókeypis og allir hvattir til að koma  og njóta þessarar mestu gæðingaveislu ársins á svæðinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir