Sýning ræktunarbúa á Fjórðungsmóti 2021

Fjórðungsmót Vesturlands fer fram í Borgarnesi dagana 7. til 11. júlí í sumar. Í tilkynningu frá Framkvæmdanefnd mótsins er óskað eftir ræktunarbúum til að taka þátt í ræktunarbússýningu sem mun fara fram á mótinu.

“Sýningar ræktunarbúa skipa ávallt heiðurssess á Fjórðungsmótum, og á Fjórðungsmóti 2021 í Borgarnesi verður engin breyting þar á. Stefnt er á að tilhögun sýninga verði með svipuðu sniði og verið hefur á undanförnum mótum, þ.e. að þátttaka verði bundin við 10 ræktunarbú. Sýning ræktunarbúa eru áætluð á dagskrá mótsins föstudagskvöldið 9. júlí eftir kl. 19:00 og mun áhorfendum verða boðið að taka þátt við að velja besta ræktunarbúið með kosningu.

Það ræktunarbú sem flest atkvæði hlýtur ávinnur sér þann heiður að koma fram á laugardagskvöldinu í skemmtidagskrá kvöldvöku. Sýningartími á hvert bú er miðað við 5 mínútur. Útfærsla sýningar er alfarið á ábyrgð forráðamanna. Fótaskoðun verður viðhöfð og gilda reglur gæðingakeppni þar um, auk þeirra viðmiðana um heilbrigði sem mótstjórn FM setur. Miðað er við að 4 - 8 hross séu í hópnum, og þurfa þau að vera frá sama lögbýli, eða fædd meðlimum sömu fjölskyldu.

Þátttakendur velja tónlist sjálfir og skila inn skriflega texta fyrir þul hvernig búið skuli kynnt. Hálf síða í mótaskrá fylgir til kynningar á búinu og þeim hestum sem koma fram í sýningunni en forsvarsmenn búanna verða að skila inn upplýsingum fyrir 20. Júní.

Ræktunarbú og Keppnishestabú ársins 2020 eru boðin til mótsins og munu þau koma fram ásamt verðlaunabúinu á kvöldvöku laugardagskvöldsins 10. júlí.

Þeir hrossaræktendur sem hafa áhuga á að koma fram með sinn hóp á Fjórðungsmóti 2021 eru beðnir að senda inn umsókn um slíkt og athugið að gefa upp upplýsingar um hvaða hross er stefnt með á sýninguna. Dregin verða svo 10 bú til þátttöku úr innsendum umsóknum.

Þáttökugjaldið er kr.60.000.
Umsóknarfrestur er til 20. júní og verður tilkynnt þann 25. júní hvaða ræktunarbú munu taka þátt.”


/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir