Þórarinn og Narri sigruðu í fimmgangskeppni KS-deildarinnar

Fimmtán stóðhestar voru skráðir til leiks í fimmgangskeppni KS-Deildarinnar sem fram fór í reiðhöllinni á Sauðárkróki gærkvöldi. Stefndi því í mikla stóðhestaveislu en einnig voru spennandi hryssur skráðar. Þórarinn Eymundsson og Narri frá Vestri Leirárgörðum voru efstir eftir forkeppni með einkunnina 7,03. 

Á Facebooksíðu KS deildarinnar segir að fimm stóðhestar hafi komist í a-úrslit. Þórarinn og Narri voru mjög öryggir, Narri jafnvígur á allar gangtegundir undir góðri stjórn Tóta og fékk hann 7 og yfir fyrir öll atriðin sem skilaði þeim nokkuð öruggum sigri 7,17.

Helga Una og Stálasonurinn Örvar frá Gljúfri höfnuðu í öðru sæti en þau sýndu frábæra spretti á skeiði en þess má geta að Örvar er með 10,0 fyrir skeið í kynbótadómi.

Mette og Karl frá Torfunesi enduðu í þriðja sæti. Karl frábær á tölti og sýndi einnig góða skeiðspretti. Finnbogi og Dynur vöktu verðskuldaða athygli í gær. Hesturinn góður á öllum gangtegundum og reiðmennska Finnboga til fyrirmyndar. Í úrslitum lenti Finnbogi í vandræðum með skeið sem kostaði þá sennilega eitt af efstu sætunum. Flosi og Grámann áttu góða forkeppni en hnökrar í úrslitum sérstaklega á skeiði og stökki varð þeim að falli. Grámann var þó mjög góður á tölti og brokki.

Það var lið Hrímnis sem sigraði liðakeppnina enn og aftur en þau koma mjög sterk til leiks!

A-úrslit
1.Þórarinn Eymundsson - Narri frá Vestri Leirárgörðum - 7,17
2.Helga Una Björnsdóttir - Örvar frá Gljúfri - 6,62
3.Mette Mannseth - Karl frá Torfunesi - 6,57
4.Finnbogi Bjarnason - Dynur frá Dalsmynni - 5,74
5.Flosi Ólafsson - Grámann frá Hofi - 4,60

 

B-úrslit
6. Bjarni Jónasson - Harpa Sjöfn frá Hvolsvelli - 6,67
7.Ísólfur Líndal - Ganti frá Dalbæ - 6,64
8.Magnús Bragi Magnússon - Snillingur frá Íbishóli - 6,52
9.Elvar Einarsson - Roði frá Syðra-Skörðugili - 6,12
10.Líney María Hjálmarsdóttir - Léttir frá Þjóðólfshaga 3 - 6,10

 

Liðakeppni
Hrímnir - 110
Hofstorfan/66°norður - 75
Draupnir/Þúfur - 70,5
Íbess/Top Reiter - 62
Team-Jötunn - 54,5
Lífland - 52,5
Mustad - 50,5

 

Einstaklingskeppni
Þórarinn Eymundsson - 44
Helga Una Björnsdóttir - 39
Elvar Einarsson - 31
Mette Mannseth - 31
Artimisia Bertus - 27,5
Finnbogi Bjarnason - 27
Gústaf Ásgeir Hinriksson - 27
Ísólfur Líndal - 25
Flosi Ólafsson - 24,5
Fanndís Viðarsdóttir - 24

 

Nánar má sjá umkeppnina HÉR

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir