Viðburðaríkt sumar hjá Guðmari Frey Magnússyni - Tilnefndur sem efnilegasti knapi landsins

Guðmar Freyr Magnússon og Ljósvíkingur frá Steinnesi eftir Fákaflug. Fengu þeir félagar Hnokkabikarinn að launum eftir sigur í A og B-flokki ungmenna. Mynd: Berglind Ósk
Guðmar Freyr Magnússon og Ljósvíkingur frá Steinnesi eftir Fákaflug. Fengu þeir félagar Hnokkabikarinn að launum eftir sigur í A og B-flokki ungmenna. Mynd: Berglind Ósk

Sumarið hjá hinum unga og bráðefnilega knapa Guðmari Frey Magnússyni reyndist heilladrjúgt þrátt fyrir skakkaföll sem næstum kom í veg fyrir að hann næði að keppa á helstu hestamótum landsins. Árangurinn var það góður að valnefnd Landssambands hestamanna tilnefndi hann sem efnilegasta knapa ársins 2021, ásamt fjórum öðrum. Auk þess er Íbishóll tilnefndur sem keppnishestabú ársins hvar Guðmar keppir fyrir og þaðan kemur aðal hestakosturinn. Úrslit verða kunngjörð í dag 30. október á verðlaunahátíð sem einungis er ætluð boðsgestum en beina útsendingu frá verðlaunaafhendingunni verður hægt að nálgast á Alendis TV kl 17. Þá er Guðmar einnig tilnefndur til afreksknapa í ungmennaflokki hjá Hestamannafélaginu Skagfirðingi en úrslit þar ráðast á árshátíð félagsins sem haldin er 6. nóvember í Árgarði.

Guðmar segist hafa komið fullur sjálfstraust inn í sumarið eftir mjög gott gengi í KS deildinni í fyrravetur. Þar endaði hann í fjórða sæti í einstaklingskeppninni og var í vinningliði Íbishóls í liðakeppninni þar sem hann vann eina grein og var í úrslitum í öðrum. En keppni sumarsins hófst á íþróttamóti á Hólum þar sem Guðmar sigrar í tölti, fimmgangi og slaktaumatölti eða í öllum þeim greinum sem hann tók þátt í á mótinu. Einnig sýndi hann nokkur hross á kynbótasýningu um vorið þar sem tvö þeirra enduðu inni á Fjórðungsmóti, sem haldið var í Borgarnesi dagana 7.-11. júlí.

Snillingur frá Íbishóli í gæðingafimi Meistaradeildar KS.
Mynd: Bjarney Anna Þórsdóttir. 

 „Svo þegar ég kem heim af yfirlitssýningu þeirrar sýningar, þá ætla ég að fara að æfa mig fyrir úrtöku fyrir fjórðungsmót, sem fer ekki betur en svo að ég fótbrotna þetta kvöld. Það skapaðist einhver misskilningur milli mín og lítillar gerðar hryssu sem varð eitthvað hrædd og lítil í sér og prjónar yfir sig og ég lendi á milli hennar og útigerðisins og klemmist á milli en hún kemur á hnéð á mér sem yfirbeygist aftur á bak. Ég var fluttur með sjúkrabíl á heilsugæslu og það sem kom út úr skoðun var að ég væri ekki brotinn þannig að ég lá í hvíld alla helgina. Svo var ég ræstur á Akureyri í fleiri myndatökur eftir vísbendingar um að ég gæti verið brotinn við hnéð. Þar er ég greindur fótbrotinn en þurfti að bíða í fjórar vikur eftir að fá segulómskoðun á hné meðan bólgur minnkuðu og út úr henni kom í ljós að krossböndin væru sködduð.

Ég ligg eftir þetta í einhvern mánuð og fæ þá tíma hjá bæklunarlækni og þá var ég búinn að vera með rangar upplýsingar hvernig ég ætti að vinna úr þessu. Var í spelku og alveg kyrr í sex vikur og hnéð stirðnaði svo mikið við það. Ég gat hvorki beygt né rétt úr hnénu. En þarna fæ ég réttar upplýsingar en ég átti að fara að labba með eins fljótt og ég gæti en samkvæmt fyrri upplýsingum átti ég að liggja í sex vikur og láta brotið góa. Vegna krossbandanna hefði ég átta að hreyfa mig og gera æfingar,“ útskýrir Guðmar sem sá keppnissumarið fyrir sér líklega fyrir bí. En Guðmar spurði þó lækninn hvort að hann héldi að það væri einhver möguleiki á að hann gæti tekið þátt í Íslandsmóti. Sá sagðist ekki halda það en ef knapinn yrði í standi taldi hann í lagi að skrá í eina grein.

„En greinin mátti ekki innihalda stökk né skeið og kom þá bara ein til greina fyrir mig. Ég skráði Sigurstein frá Íbishóli í tölt og hvort það voru fjórir dagar í Íslandsmót þegar ég fer á bak í fyrsta skiptið frá broti. Ég settist þrisvar á hestinn fyrir forkeppnina og það fór svona ljómandi vel. Svo fór ég vikuna eftir, og sama uppi á teningnum með Eld frá Íbishóli, hafði ekkert sest á hann en ég æfði hann fyrir úrtöku fyrir Fjórðungsmót.“

Fræknir feðgar í verðlaunaafhendingu
í flokki 7 vetra og eldri hesta á
Fjórðungsmóti Vesturlands. Mynd: Eiðfaxi 

Á Fjórðungsmót

Það fór þó svo að Guðmar tók ekki þátt í úrtökunni sjálfri en fékk síðar leyfi til að keppa á Fjórðungsmótinu þar sem ungmenni Skagfirðings fylltu ekki keppniskvótann sem félagið átti fyrir á mótið. „Ég fer þá inn á Fjórðungsmót og tek þátt með Eld frá Íbishóli í ungmennaflokki og það sigrast einnig. Svo tók ég líka þátt í ræktunarbússýningu með Íbishóli, ásamt pabba og vel völdum liði, sem við sigruðum líka. Svo fór nú að réttast úr kútnum. Á Fjórðungsmótinu prófaði ég einn dagspart að vera án hækjunnar og eftir að ég kom þaðan varð mikil framför hjá mér svo ég fór að geta keppt aðeins meira,“ segir Guðmar sem þátt tók í Fákaflugi sem haldið var um miðjan ágúst á félagssvæði Hestamannafélagsins Skagfirðings. Þar hlaut Guðmar Hnokkabikarinn sem veittur er fyrir árangur í sem flestum greinum, eftir að hafa unnið A- og B- flokk ungmenna en einnig keppti hann í gæðingatölti með Ljósvíking frá Steinnesi og endaði í 2.-3. sæti.

Stórmót Hestamannafélagsins Hrings á Dalvík fór fram seinni partinn í ágúst og þangað hélt Guðmar með Eld frá Íbishóli og landaði fyrsta sætinu í ungmennaflokki, 2. sæti í tölti T4 á Gnýfara frá Ríp og á Brimari frá Varmadal vannst gæðingaskeiðið með einkunnina 7,29.

Þaðan lá leiðin til Akureyrar á Haustmót Léttis þar sem Guðmar var skráður með Rosa frá Berglandi og Ljósvíking frá Steinnesi í fimmgangi í opnum flokki. Gerði hann sér lítið fyrir og kom klárunum í tvö efstu sætin í forkeppni en sigraði svo á Rosa í úrslitunum. Þá varð hann einnig efstur í T1 ungmenna á Gnýfara frá Ríp með 7,50 í einkunn í úrslitum. Samkvæmt heimildum Feykis er sú einkunn sem Guðmar fékk í fimmgangi sé sú hæsta sem ungmenni hefur fengið í þeirri grein.

Eldur frá Íbishóli á Fákaflugi.
Mynd: Ingunn Ingólfsdóttir.

Góður stuðningur fjölskyldunnar

Það er óhætt að segja að sumarið hafi verið viðburðaríkt hjá Guðmari og árangurinn kannski framar vonum ef litið er til fótbrotsins sem hann hlaut og þær hömlur sem það hefði getað orsakað. En Guðmar segist heppinn með fólkið sem að honum stendur og er þakklátur því.

„Það hefði verið auðvelt að gefast upp á þessu öllu og leggja árar í bát og hætta. Fjölskyldan mín og tengdafjölskylda hjúkruðu mér og sáu til þess að maður sykki ekki í svartsýni í þessu broti. Ég man að það var einn dagur sem var mjög svartur en þá vaknaði ég í einhverju svakalegu stemmuáfalli og svartsýniskasti. Ég skráði mig út úr landsliðshópnum á Facebook, síðasta árið mitt í ungmennaflokki og hugsaði að ég myndi ekki keppa framar sem landsliðsmaður. Svo blessaðist það nú heldur betur. Maður þurfti á stuðningi að halda í þessu ferli og maður fékk hann, bæði andlegan og verklegan stuðning til að framfylgja því öllu sem búið var að leggja grunn að í vetur og búið að undirbúa. Ég gæti ekki verið þakklátari og ánægðari með mitt fólk sem að mér stendur.

Uppáhalds hesturinn
Verandi með slíkan hestakost sem Guðmar hefur aðgang að er kannski ósanngjarnt að spyrja hver uppáhaldshesturinn sé en ekki stendur á svari hjá kappanum. „Uppáhaldshesturinn minn er Sigursteinn frá Íbishóli. Hann er einn allra besti hestur á tölti sem ég hef sest á, alveg ótrúlegt geðslag og samvinnufús og mjög sporlangur. Það er ótrúlega kraftmikið spor í honum og er algerlega eins og hugur manns. Hann komst í gegnum þetta Íslandsmót með alveg ótrúlega lítilli hjálp frá knapanum sínum,“ segir Guðmar sposkur á svip.

Guðmar viðurkennir að hann búi einstaklega vel þegar kemur að hestakosti og kannski betur en aðrir. „Já, þetta er betra en maður þorði nokkurn tímann að vona. Sem krakki, þegar ég hugsaði til þess hvað ég myndi gera þegar Fjölnir frá Sjávarborg og Frami yrðu gamlir, hélt ég að þá yrðu ákveðin tímamót. En ég hef alltaf verið svo heppinn að um leið og einn hestur fer kemur annar í staðinn og núna síðast til að mynda er annar af mínum aðalhestum í sumar að fá nýtt heimili, Eldur frá Íbishóli. Ég hef fulla trú á því að hans skarð verði fyllt fljótlega. Það er alveg einstaklega magnaður einstaklingur sem slíkur sá hestur. En auðvitað get ég ekki annað en þakkað fyrir. Pabbi sá líka til þess að ég gæti keppt á Íslands- og Fjórðungsmóti en hann hélt hestunum mínum við þann mánuð sem ég var frá.“

Eldur frá Íbishóli eftir sigur á Fjórðungsmóti.
Mynd: Brynja Gná 

Efnilegasti knapinn

Eins og fram kemur í inngangi viðtalsins er Guðmar tilnefndur sem efnilegasti knapi ársins 2021 af valnefnd Landssambands hestamanna, sem er mikil viðurkenning í hestaheiminum. Aðspurður segir hann það ánægjulegt enda ekki fengið þá tilnefningu áður.

„Þegar maður horfði á þessa krakka sem voru að fá þessa útnefningu þegar ég var að alast upp sem barn þá hugsaði maður til þess hvað það væri gaman að standa einhvern tímann þarna. Já, þetta er mjög spennandi og er ánægður með minn árangur og mína framkomu í sumar, alveg burt séð frá því hvort ég hljóti þessa nafnbót eða viðurkenningu eða ekki. Það eru aðrir verðugir einstaklingar tilnefndir þarna líka og bara mjög flott hestafólk.“

Guðmar er einnig tilnefndur til afreksknapa í ungmennaflokki hjá Skagfirðingi en hjá því félagi hefur hann verið hlotið margar viðurkenningar í gegnum tíðina. M.a. var hann valinn skeiðknapi ársins hjá félaginu á seinasta ári. Guðmar er þakklátur fyrir upphefðina en bendir á að hann sé í stöðugri samkeppni við aðra knapa félagsins sem gefa honum ekkert eftir. Hann er þó pínu uggandi yfir endurnýjuninni hjá félaginu sem hann telur ekki nógu góða. „Það vantar fleira ungt fólk í hestamennskuna í Skagafirði. Við stöndum frammi fyrir þeirri staðreynd að við erum orðin svolítið fá. Eins og t.d. með fjórðungsmótið. Ungliðahreyfingin er ekki að skila eins öflugu starfi og var um og eftir 2000 þegar 15 - 20 krakkar voru að keppa í barnaflokki og maður var aldrei öruggur með að komast í úrslit. Þannig að það mætti eitthvað skoða þetta betur en kannski er komið meira sem kallar á krakka en áður. 

Ásamt Guðmari eru fjögur önnur tilnefnd, þrjár stúlkur og einn piltur og segir Guðmar þau hafa veitt sér harða samkeppni. „Það hjálpar mér mikið að halda mér á tánum. Það er nú þannig að við þekkjumst öll og vitum nokkurn veginn hvað hvert og eitt okkar höfum til brunns að bera þannig að maður gerir sér aðeins grein fyrir hvað þarf að gera og leggja á sig til að bera sigur úr býtum. Ég hef mjög oft þurft að láta í minni pokann fyrir þessum einstaklingum enda mjög flinkir og frambærilegir hestamenn. Ég segi að við séum ekki sérlega mörg en þessa krakka sé ég fyrir mér sem fólk sem mun starfa við þessa grein í framtíðinni. Við erum að skila af okkur hestafólki en það er spurning hve stór hreyfingin okkar verður eftir ákveðið mörg ár.“

Glymjandi frá Íbishóli þar sem slaktaumatölt vannst
í Meistaradeild KS. Mynd: Bjarney Anna Þórsdóttir.  

Framtíðaráform ljós

Nú nemur Guðmar reiðlist í Háskólanum á Hólum en hann er á öðru ári í hestafræðideild og segir hann það ganga prýðilega. Hann var á fyrsta ári fyrir tveimur árum síðan en tók sér frí í fyrra þar sem pabbi hans varð fyrir sambærilegu áfalli og sonurinn í sumar, og lá fótbrotinn heima. Þá þurfti vinnumann í tamningarnar í hans stað. Eftir áramót er stefnan sett á verknám og segist Guðmar ætla að halda sig í Skagafirði þar sem hann verður í Þúfum hjá Mette Mannseth og Gísla Gíslasyni svo segja má að nokkuð ljóst er hvert stefnan er sett.

„Ég myndi alla vega halda það. Þetta hefur einhvern veginn alltaf verið stefnan og legið ágætlega fyrir mér þannig. Það er þannig að þegar ég hitti hest er eins og þar sé einstaklingur sem ég skil sem maður upplifir ekki alltaf þegar maður hittir fólk,“ segir Guðmar.

Fyrir þá sem ekki koma kappanum fyrir sig er hann sonur Magnúsar Braga Magnússonar á Íbishóli og Valborgar Jónínu Hjálmarsdóttur á Sauðárkróki. Feykir óskar honum velfarnaðar á lendum hestamennskunnar og keppnisvöllum framtíðarinnar.

Áður birst í 41. tbl.  Feykis 2021.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir