Hvernig verður umfjöllun um rekstur sveitarfélags að skemmtilegu lesefni? Jú, það má reyna fjalla um hann á mannamáli. Það sem þú veist væntanlega lesandi góður er að sveitarfélög fá sínar tekjur að mestu leyti beint úr vasa þínum. Það gerist með útsvari sem tekið er beint af launum þínum í formi skatts. Svo er fasteignaskattur, jafnvel lóðarleiga, innheimt af húsinu þínu. Hin ýmsu gjöld greiðir þú líka eins og sorphirðugjöld, leyfisgjöld og jafnvel leikskólagjöld o.fl. Margir greiða líka fyrir vatnið sem þeir nota og svo mætti áfram telja. Ríkið greiðir svo mótframlag í formi Jöfnunarsjóðs, en þeim sjóði er dreift á byggðir landsins.
Aðalfundur félagsins var haldinn 14.apríl við góða mætingu. Stjórnin byrjaði kvöldið á að grilla ofan í félaga og síðan var farið í gegnum hefðbundin aðalfundarstörf. Guðmundur Guðmundsson stjórnarmeðlimur gekk úr stjórn og þökkum við honum fyrir óeigingjarnt starf í þágu félagsins.
Mánudaginn 13. apríl mættu nokkrir Lionsmenn á Króknum á HSN Sauðárkróki og færðu stofnuninni glaðloftstæki af fullkomnustu gerð að gjöf. Fyrr í vetur voru Lionsmenn búnir að gefa endurhæfingunni nýtt hlaupabretti. Samtals kostuðu þessar gjafir 2.360.000 kr. Eyjólfur formaður klúbbsins sagði við afhendinguna að það væri ósk félaga í klúbbnum að þessar gjafir væru nýttar sem best.
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Að þessu sinni vill svo skemmtilega til að það er spekingur í lögum sem svarar Tón-lystinni. Um er að ræða Skagstrendinginn Guðmund Egil Erlendsson (1975) sem víða hefur látið að sér kveða við strengjaslátt.