Menningarhús á Sauðárkróki, miðstöð menningar og sviðslista, hefur verið hluti af framtíðarsýn okkar í tvo áratugi. Með samningi sem undirritaður var vorið 2023 á milli ríkisins og sveitarfélagsins er bygging Menningarhúss komin í fastan farveg og áætluð verklok í lok árs 2027.
Hinn 9. desember 2025 voru liðin 120 ár frá fæðingu Guðmundar L. Friðfinnssonar, skáldbónda á Egilsá. Hann var fæddur á Egilsá 9. desember 1905, og voru foreldrar hans Friðfinnur Jóhannsson og Kristín Guðmundsdóttir. Guðmundur var búsettur á Egilsá alla ævi og stundaði þar búskap samhliða ritstörfum, sem hann sinnti jafnan í hjáverkum.
Út er komin bókin Í framlínu – lögreglumenn segja frá og er hún þegar komin í helstu bókaverslanir. Höfundur er Júlíus Ó. Einarsson þjóðfræðingur, sem jafnframt er fyrrverandi lögreglumaður. Í bókinni lýsa tugir lögreglumanna starfi sínu, einstökum verkefnum og upplifunum á meira en 250 blaðsíðum. Einnig eru þar hugleiðingar um eðli lögreglustarfins og áhrif þess á þá sem því sinna og þeirra nánustu.
Herra Hundfúll fylgdist með keppni í Skólahreysti með öðru auganu nú á laugardaginn. Hann gladdist talsvert yfir gengi skólanna á Norðurlandi vestra. Varmhlíðingar voru sendir upp á svið til að taka við verðlaunum fyrir þriðja sætið en nemendur Grunnskóla Húnaþings vestra enduðu í fjórða sæti en með jafnmörg stig og Varmahlíðarskóli. En svo var farið að reikna ... aftur...
Helstu tónlistarafrek: Vinna músíktilraunir 2009 með Bróðir Svartúlfs, spila í böndum eins og Fúsaleg Helgi, Contalgen Funeral, Multi Musica og fleirum. Taka upp og produsera nokkrar plötur. Einn af skipuleggjendum Tónlistarhátíðinni Gæran.