Það er misjafnt hvað mennirnir hafast að. Nú standa sem hæðst veisluhöld valdhafanna, sínu meira þó hjá D-listanum enda hafa þeir fengið mest fjármagn frá sveitarfélaginu í sína kosningabaráttu vegna mesta fylgis í síðustu kosningum.
Davíð Logi Jónsson heiti ég og er kúabóndi. Ég bý ásamt Emblu konunni minni og tveimur dætrum okkar á bænum Egg í Hegranesi. Ég er fæddur og uppalinn í Réttarholti í Akrahreppinum hinum forna, og þar hafa foreldrar mínir og nú síðar bróðir minn og konan hans einnig búið með kýr. Þó ég sé einungis 38 ára gamall hef ég því yfir 30 ára reynslu í að mjólka kýr og afla þeim fóðurs. Landbúnaðarmál eru því ofarlega í huga mér flesta daga og í raun atvinnurekstur yfir höfuð.
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Skólamanninn Sölva Sveinsson kannast eflaust flestir við en hann er cand. mag. í sagnfræði og hefur lengst af starfað við kennslu og skólastjórnun, ásamt ritstörfum, fæddur árið 1950, alinn upp á Króknum, aðallega í fjörunni segir hann.