„Í leikskóla er gaman“ er setning sem flest okkar þekkja. Leikskólinn er einn mikilvægasti staður í lífi barna og fjölskyldna. Hann er sá staður þar sem börn stíga sín fyrstu skref í samfélaginu utan heimilisins, mynda vináttu, læra í gegnum leik og byggja upp grunn sem fylgir þeim alla ævi.
Það er fátt sem sameinar samfélag eins og íþróttir. Hvort sem það eru krakkarnir okkar eða íþróttafólk á hæsta getustigi, þá fyllumst við stolti og gleði þegar við mætum á íþróttaviðburði og tökum þátt í rússíbanareið íþróttafólksins okkar í gegnum súrt og sætt.
Þrátt fyrir háværar raddir um vaxandi skuldir og erfiðan rekstur sýnir ársreikningur Skagafjarðar fyrir árið 2025 allt aðra mynd. Staðreyndirnar eru skýrar: Reksturinn er sterkur, skuldir hafa lækkað hlutfallslega og sveitarfélagið hefur getað ráðist í auknar framkvæmdir án þess að taka ný lán.
Herra Hundfúll fylgdist með keppni í Skólahreysti með öðru auganu nú á laugardaginn. Hann gladdist talsvert yfir gengi skólanna á Norðurlandi vestra. Varmhlíðingar voru sendir upp á svið til að taka við verðlaunum fyrir þriðja sætið en nemendur Grunnskóla Húnaþings vestra enduðu í fjórða sæti en með jafnmörg stig og Varmahlíðarskóli. En svo var farið að reikna ... aftur...
Ragnheiður Petra Óladóttir er fædd og uppalin á Sauðárkróki dóttir Þórhildar og Óla Péturs Bolla. Petra er fædd árið 1996 og man ekki hvenær hún byrjaði að syngja en trúði því meira að segja lengi vel að hún gæti ekki sungið.