Formaður Hollvinasamtaka HSB fékk heldur betur góða heimsók þann 5. ágúst síðastliðinn.
Þarna voru mættar þær Ingibjörg á Auðólfsstöðum formaður Kvenfélags Bólstaðarhlíðarhrepps og Guðrún á Auðkúlu formaður Kvenfélags Svínavatnshrepps.
Afhentu þær Sigurlaugu Þóru gjafabréf að upphæð kr: 737.800 upp í kaup á höggbylgjutæki í aðstöðu sjúkraþjálfara.
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB er hafin.
Greiða má atkvæði utan kjörfundar á kjörstöðum innan umdæmisins sem hér segir:
Blönduósi, aðalskrifstofu, Hnjúkabyggð 33, Blönduósi, virka daga, kl. 09:00 - 15:00.
Sauðárkróki, sýsluskrifstofu, Suðurgötu 1, Sauðárkróki, virka daga, kl. 09:00 - 15:00.
Hvammstanga, ráðhúsi Húnaþings vestra að Hvammstangabraut 5, Hvammstanga, mánudaga - fimmtudaga kl. 10:00 - 14:00 og föstudaga kl. 10:00 - 12:00.
Skagaströnd, stjórnsýsluhúsi að Túnbraut 1-3, Skagaströnd, mánudaga - fimmtudaga kl. 09:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00, frá og með mánudeginum 17. ágúst 2026.
Norðurland er fjölbreyttasta svæði landsins utan höfuðborgarsvæðisins. Akureyri er öflug menningar- og þjónustumiðstöð. Eyjafjörður og Skagafjörður eru meðal bestu landbúnaðarsvæða landsins. Dalvík, Siglufjörður og Húsavík byggja á sjávarútvegi og ferðaþjónustu. Og víða á svæðinu er verið að þróa orkuverkefni og nýsköpun.
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Kristján Baldvinsson býr á Akranesi um þessar mundir. Kappinn er fæddur 1968 og ólst upp í gamla bænum á Sauðárkróki. Hljóðfærið hans Kidda er trommur og sá hann í nokkrar vertíðir um að halda taktinum í skagfirsku sveiflunni svo eitthvað sé nefnt.