Það er opinn dagur og uppskeruhátíð hjá Fornverkaskólanum og fer dagskráin fram á Tyrfingsstöðum á Kjálka í Skagafirði á morgun, 19. júní, og hefst um kl. 14. Í tilkynningu segir: „Í ár höfum við ýmsar ástæður til að fagna; Fornverkaskólanum hlotnaðist nýverið viðurkenning frá Europa Nostra, sem eru ein virtustu minjaverndarverðlaun í Evrópu. Verðlaunahátíðin fer fram 28. maí í Nikosíu á Kýpur og á opnum degi ætlum við að fagna áfanganum með vinum og vandamönnum og afhjúpa viðurkenningarskjöld sem Europa Nostra samtökin veittu Fornverkaskólanum.“
Það var í miðri heimsstyrjöldinni fyrri að drepið var dyra heima hjá ömmu minni og afa í Þingholtsstræti 17 í Reykjavík og Nanna föðursystir mín kom til dyra, barn að aldri. Komumaður spurði hana hvaðan hún væri og hún svaraði: Ætli ég sé ekki bara Reykvíkingur. Gall þá við þrumuraust ömmu hennar og langömmu minnar ofan af lofti: Hvers lags er þetta, barn? Þú ert Skagfirðingur! Föðuramma mín, Þórunn Pálsdóttir, var Skagfirðingur og það er ég því líka og við hjónin raunar bæði. Sex löng sumur og sælurík, tvö ár alls, var ég strákur í sveit og við bræðurnir allir hjá frændum okkar á Stóra-Vatnsskarði í Skagafirði, vestasta bænum í sýslunni.
Stólastúlkurnar Inga Sólveig Sigurðardóttir og Rannveig Guðmundsdóttir framlengja við Tindastól og spila áfram með liðinu á næsta tímabili. Israel Martin, þjálfari kvenaliðs Tindastóls, lýsir yfir mikilli ánægju með að Inga og Rannveig hafi framlengt samninga sína við félagið. Hann segir það dýrmætt fyrir áframhaldandi vöxt og uppbyggingu liðsins að halda kjarnanum frá síðustu tveimur tímabilum áfram.
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Ragnheiður Petra Óladóttir er fædd og uppalin á Sauðárkróki dóttir Þórhildar og Óla Péturs Bolla. Petra er fædd árið 1996 og man ekki hvenær hún byrjaði að syngja en trúði því meira að segja lengi vel að hún gæti ekki sungið.