Það styttist í þorranum ef ég skil þetta allt saman rétt. Blaðakona Feykis hefur verið á útopnu í þorrablóts-upplifunum síðustu vikurnar og sennilega hefur hún toppað sjálfa sig um liðna helgi. Átti að leika lækni í stuttum skets sem ætti ekki að hafa verið vandamál því áður en hún fór að skrifa fréttir og viðtöl vann hún á sjúkrahúsinu á Króknum. Maðurinn hennar lék sjúklinginn. Nú er ráð fyrir mig að skipta um umræðuefni...
Á síðastliðnum þremur árum hafa Háskóli Íslands og Háskólinn á Hólum unnið að því að stofna Háskólasamstæðu með það að markmiði að bæta samkeppnishæfni háskólanna ásamt því að auka gæði náms, rannsókna, stoðþjónustu og auka tengsl við atvinnulíf og samfélag um land allt. Sértæk markmið með stofnun Háskólasamstæðunnar eru að styrkja Háskóla Íslands sem leiðandi háskóla í íslensku samfélagi og Háskólann á Hólum sem sérhæfðan háskóla á landsbyggðinni. Jafnframt verður áhersla lögð á að samstæðan verði eftirsóknarverð fyrir fleiri háskóla og rannsóknastofnanir.
Fjallað er um það í grein Eiríks Bergmanns Einarssonar, prófessors í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst, í ritinu Crisis in Context: An Interdisciplinary Analysis of Crisis Management, Perceptions, and Organizational Responses in Iceland, sem nýkomin er út, að ríkisstjórn Verkamannaflokksins í Bretlandi hafi tekið meðvitaða og strategíska ákvörðun um að fella íslenzka bankakerfið haustið 2008 þegar stóru viðskiptabankarnir þrír féllu með tilheyrandi efnahagserfiðleikum fyrir þjóðina. Þá er komið inn á þá staðreynd að brezk stjórnvöld nutu stuðnings Evrópusambandsins í Icesave-deilunni.
Herra Hundfúll fylgdist með keppni í Skólahreysti með öðru auganu nú á laugardaginn. Hann gladdist talsvert yfir gengi skólanna á Norðurlandi vestra. Varmhlíðingar voru sendir upp á svið til að taka við verðlaunum fyrir þriðja sætið en nemendur Grunnskóla Húnaþings vestra enduðu í fjórða sæti en með jafnmörg stig og Varmahlíðarskóli. En svo var farið að reikna ... aftur...
Kristján Baldvinsson býr á Akranesi um þessar mundir. Kappinn er fæddur 1968 og ólst upp í gamla bænum á Sauðárkróki. Hljóðfærið hans Kidda er trommur og sá hann í nokkrar vertíðir um að halda taktinum í skagfirsku sveiflunni svo eitthvað sé nefnt.