Fjallað er um það í grein Eiríks Bergmanns Einarssonar, prófessors í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst, í ritinu Crisis in Context: An Interdisciplinary Analysis of Crisis Management, Perceptions, and Organizational Responses in Iceland, sem nýkomin er út, að ríkisstjórn Verkamannaflokksins í Bretlandi hafi tekið meðvitaða og strategíska ákvörðun um að fella íslenzka bankakerfið haustið 2008 þegar stóru viðskiptabankarnir þrír féllu með tilheyrandi efnahagserfiðleikum fyrir þjóðina. Þá er komið inn á þá staðreynd að brezk stjórnvöld nutu stuðnings Evrópusambandsins í Icesave-deilunni.
Þau tíðindi eru í vændum að Hólaskóli á Hólum í Hjaltadal verði sviptur sjálfstæði sínu og færður sem deild undir Háskóla Íslands. Samhliða mun starfsemi skólans að stóru leyti fara frá Hóla-stað á Sauðárkrók eða til Reykja-víkur. Þá er ráðgert að hin sögufrægu skólahús – teiknuð af þeim Guðjóni Samúelssyni og Rögnvaldi Ólafssyni - er hafa hýst starfsemi skólans í meir en heila öld - verði framseld til einkaaðila.
Samkvæmt samantekt Landsnets vegna mats á umhverfisáhrifum Holtavörðuheiðarlínu 3 er framkvæmdin hluti af meginflutningskerfi raforku landsins. Hún telst mikilvægur þáttur í nýrri 220 kV kynslóð byggðalínu sem hefur það markmið að tengja landshluta með öruggum hætti frá Hvalfirði til Fljótsdalshéraðs. Núverandi raflínur, Blöndulína 1 og Laxárvatnslína 1, verði áfram mikilvægar tengingar við þéttbýliskjarna á Norðurlandi vestra og munu einnig styrkja tengingu við Vestfirði. Frá upphafi voru áform Landsnets skýr varðandi það að Holtavörðuheiðarlína 3 yrði hluti af meginflutningskerfi raforku, en aðrar raflínur myndu sinna svæðisbundnum tengingum innan landshluta.
Herra Hundfúll fylgdist með keppni í Skólahreysti með öðru auganu nú á laugardaginn. Hann gladdist talsvert yfir gengi skólanna á Norðurlandi vestra. Varmhlíðingar voru sendir upp á svið til að taka við verðlaunum fyrir þriðja sætið en nemendur Grunnskóla Húnaþings vestra enduðu í fjórða sæti en með jafnmörg stig og Varmahlíðarskóli. En svo var farið að reikna ... aftur...
Ragnheiður Petra Óladóttir er fædd og uppalin á Sauðárkróki dóttir Þórhildar og Óla Péturs Bolla. Petra er fædd árið 1996 og man ekki hvenær hún byrjaði að syngja en trúði því meira að segja lengi vel að hún gæti ekki sungið.