    <language>is</language>
Skagafjörður | Feykir.is
Lögreglan á Norðurlandi vestra – Vegna rjúpnaveiða
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/1792682627_rjupa.jpg" alt=">Rjúpnaveiðar að hefjast. Mynd: Facebook" />
Hinar árlegu rjúpnaveiðar eru fram undan og veiðimenn bíða þess með tilhlökkun að komast til fjalla, njóta útiverunnar og takast á við þá áskorun sem rjúpnaveiðar fela í sér. Veiðitímabilið á Norðurlandi vestra er frá 23. október – 17. nóvember. Samkvæmt lögum nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum þurfa veiðimenn að fara eftir þeim skilyrðum sem gilda um veiðar á villtum fuglum. Þeir sem stunda rjúpnaveiðar þurfa að hafa gilt veiðikort og bera það með sér á veiðum. Einnig þarf að hafa meðferðis skotvopnaskírteini.
Leikgleðin réði ríkjum – Leikfélag Sauðárkróks sýnir Bláa hnöttinn í Bifröst
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/abea8e8d-ce38-440d-bac9-5751bbb432b9.jpg" alt=">Leikhópurinn og starfsfólk klárt fyrir frumsýningu. Mynd: HMJ" />
Leikfélag Sauðárkróks heldur áfram þeim góða sið að bjóða upp á barnasýningu á haustin. Segja má um nýjustu sýninguna sem frumsýnd var 16. okt. að hún sé barnasýning í orðsins fyllstu merkingu því að af tuttugu og einu hlutverki eru 19 leikin af börnum. Óþarfi er að eyða mörgum orðum um frammistöðu þessara barna öðrum en þeim að hér eru stórleikarar framtíðarinnar á ferð. Allur leikur er öruggur og glaðlegur og eitt vill blaðamaður sérstaklega nefna en framsögn var undantekningalítið góð og kom það sér vel fyrir jafn heyrnardaufan mann og hann er blessaður.]]></description>
Mótvindur // Fundur um ferðaþjónustu í Norðvesturkjördæmi // Í dag kl. 17.00
Samtök ferðaþjónustunnar, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða boða til mikilvægs fundar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi.
Fundurinn fer fram fimmtudaginn 22. október í Hjálmakletti, Menningarhúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi, og stendur á milli kl. 17.00 - 19.00. Fundurinn verður jafnframt sendur út í beinni útsendingu á vef SAF.
Opinn fundur um vegamál hjá Rótarý
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/rot.jpg" alt=">Fundur um vegamál í kvöld fimmtudag. Mynd: Af netinu" />
Rótarýklúbbur Sauðárkróks lætur sér fátt óviðkomandi en í kvöld boðar hann til opins fundar kl. 18:00 – 19:00. Fundurinn fer fram á Kaffi Krók, neðri sal. Húsið opnar kl. 17:45.]]></description>
Deiliskipulagstillaga fyrir Skagfirðingabraut 26 Sauðárkróki auglýst
Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti á 54. fundi sínum þann 14. október 2026 að auglýsa deiliskipulagstillögu fyrir Skagfirðingabraut 26, Sauðárkróki. Um er að ræða lóð þar sem væntanleg viðbygging verknámshúss mun rýsa. Deiliskipulagstillagan er auglýst frá 21. október 2026 til og með 4. desember 2026.]]></description>
Hálkan leynist víða og vissara að fara varlega
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/screenshot-2026-10-22-at-08.40.31.png" alt=">Umferðarkort Vegagerðarinnar frá því um kl. 8:30 í morgun. SKJÁSKOT" />
Vegfarendur á Norðurlandi vestra þurfa að hafa varann á sér þar sem víða er töluverð hálka og ekki gott að sjá hana – mögulega svokallaður svartís. Þannig er til að mynda mjög hált á Sauðárkróksbraut milli Varmahlíðar og Sauðárkróks og á Sauðárkróki og sömuleiðis er varað við hálku á Öxnadalsheiði. Þegar þetta er skrifað er unnið að mokstri á Þverárfjallsvegi en skaplegra færi er í Húnavatnssýslum þó þar megi eiga von á hálkublettum.]]></description>
Spennandi leikir framundan í VÍS bikarnum
Í gær var dregið í 16-liða úrslit VÍS bikarsins í körfunni í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal en dregið var í beinni útsendingu á FB síðu KKÍ. Bæði meistaraflokkslið Tindastóls voru í pottinum og fengu strákarnir heimaleik gegn Stjörnunni en stelpurnar þurfa að sækja lið Hauka heim í Hafnarfjörðinn.]]></description>
Börnin í Varmahlíðarskóla mynduðu bleika slaufu
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/bleiku-bornin-2.jpg" alt=">Bleika slaufan í Varmahlíð. Mynd: Kristín Halla." />
Dags bleiku slaufunnar er minnst með ýmsum hætti í dag. Skemmtileg uppákoma var í Varmahlíðarskóla í morgun þegar leik-, grunn- og tónlistarskólabörn mynduðu bleika slaufu sem síðan var mynduð úr lofti.]]></description>
Skúnaskrall – Öll saman
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/2bab3981-524b-418b-82b8-dc7101d87227.jpg" alt=">Páll Óskar að trylla Varmhlíðinga í Miðgarði. Mynd: Friðrik Þór" />
Barnamenningarhátíð Norðurlands vestra, öðru nafni Skúnaskrall, hófst í dag og verður mikið um dýrðir. Hátíðin er samstarfsverkefni allra sveitarfélaganna í landshlutanum og eitt af áhersluverkefnum SSNV. Hún hlaut veglegan styrk úr Barnamenningarsjóði og nýtur auk þess stuðnings Samfélagssjóðs Landsvirkjunar.
Í tilefni Bleika dagsins | Stefanía Hjördís Leifsdóttir skrifar
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/stafaniahjordis_bleikurdagur.jpg" alt=">Stefanía Hjördís. MYND AF FACEBOOK" />
Í Bleikum október langar mig að minna á mikilvægi þess að fara í reglulega skimun, fylgjast með breytingum á líkamanum og hlusta á eigið innsæi ef maður hefur á tilfinningunnini að eitthvað sé að. Í mínu tilfelli fann ég ekki hnút í brjóstinu heldur verk, ekki var talin þörf á nánari rannsókn og hálft ár leið þar til krabbameinið kom í ljós við hefðbundna skimum. Einskær heppni var að krabbameinið var ekki búið að dreifa sér. Þar getur skilið milli feigs og ófeigs.]]></description>
Barátta fáliðaðra Stólastúlkna dugði ekki til í Garðabænum 
Stólastúlkur heimsóttu Garðabæinn í gær í fjórðu umferð Bónus deildar kvenna og var leikið í ÞG Verk höllinni. Heldur var lið Tindastóls fámennt en aðeins sjö stúlkur voru í hópnum og hafði það að sjálfsögðu talsvert að segja um það hvernig leikurinn þróaðist. Eftir góða byrjun gestanna náðu Garðbæingar yfirhöndinni og lönduðu sigri, 93-80, þrátt fyrir stórleik Florenciu sem gerði 41 stig.]]></description>
Munum Bleikan dag
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/849476746_1144701391454397_4304797916835422670_n.jpg" alt=">Glaumbæjarkirkja í morgunsárið á bleikum degi. Mynd: HMJ" />
Upplýst Glaumbæjarkirkja minnir á Bleika daginn sem helgaður baráttunni við krabbameini hjá konum.]]></description>
Nemanja Đurišić er kominn í Tindastól!
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/stolar_duricic.jpg" alt=">Nemanja. MYND AF NETINU" />
„Við erum gríðarlega ánægð að tilkynna að Nemanja Đurišić hefur gengið til liðs við Tindastól,“ segir í tilkynningu á Facebook-síðu körfuknattleiksdeildar Tindastóls sem birt var í hádeginu. Nemanja er 2,03 m hár framherji með mikla reynslu.]]></description>
Undirskriftasöfnun lokið 
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/1792505495_heilbrigdisstofnunin-saudarkroki-pib.jpg" alt=">Séð yfir Sauðárkrók, Heilbrigðistofnunin neðst til vinstri. Mynd: Pétur Ingi" />
Undirskriftasöfnuninni til stuðnings Endurhæfingarsundlauginni á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki er lokið. Alls skrifuðu 1228 undir listann sem verður nú sendur til stjórnar HSN, Heilbrigðisráðherra og sveitarstjórnar Skagafjarðar. Alls söfnuðust 1228 undirskriftir.]]></description>
Hvaða áhrif hefur fjárlagafrumvarpið á þitt heimili? | Fréttatilkynning
Í dag opnar Framsókn vefinn utreikningur.is. Þar getur fólk fengið sundurliðað mat á því hvernig breytingar á sköttum, gjöldum og stuðningi við heimilin geta haft áhrif á heimilisbókhaldið.]]></description>
Stólarnir áfram í VÍS bikarnum eftir sigur í Hafnarfirði
Ríkisapparatið sýndi frá VÍS bikarnum í gærkvöldi en það fór nú kannski að mestu fram hjá landsmönnum. Stólarnir reimuðu á sig körfuboltaskóna á Ásvöllum í Hafnarfirði þar sem þeir mættu 1. deildar liði Hauka. Úr varð hressilegur leikur þar sem heimamenn héldu í við gesti sína alveg fram í fjórða leikhluta en þá skildu leiðir. Lokatölur 80-103 og Stólarnirþví komnir í pottinn fyrir 16 liða úrslitin.]]></description>
Aldarafmæli Huppu á Kluftum og nautgriparækt í Skagafirði | Jón Viðar Jónmundsson skrifar
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/huppa-2.jpg" alt=">Málverk Halldórs Péturssonar af Huppu Frá Kluftum." />
Tilgangur þessa greinarkorns er að hvetja áhugamenn um nautgriparækt til að taka þátt í ráðstefnu á Flúðum 3. nóvember næstkomandi. Hún er haldin til að minnast 100 ára afmælis Huppu á Kluftum þann dag. Fundur hefst kl 11 og mun standa til kl 17. Hrunamannahreppur, Nf. Hrunamanna og Bsb. Suðurlands standa að ráðstefnunni. Þar verður mjög fróðleg og þétt dagskrá um íslenska nautgriparækt með aðaláherslu á dreifingu Kluftstofnsins um allt land á síðustu öld og þær ótrúlegu framfarir í mjólkurframleiðslunni sem dreifing hans olli.]]></description>
Haustþing SSNV: Innviðir Norðurlands vestra mega ekki vera afgangsstærð
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/1792410318_nordurland_vestra.jpg" alt=">Norðurland vestra. Mynd: Af netinu." />
Haustþing Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, sem haldið var á Hótel Laugarbakka í Húnaþingi vestra 1. október sl., samþykkti ályktun um samgöngu- og innviðamál. Þingið fagnar nýrri samgönguáætlun en bendir á að fjármagn til vega, fjarskipta, raforkuflutninga og hafna í landshlutanum hafi lengi verið langt undir þörf. Þingið krefst þess að fjármögnun innviða á Norðurlandi vestra endurspegli raunverulega þörf landshlutans.]]></description>
„Ég hef ekki tölu yfir það hversu margar peysur ég hef prjónað“
Ég heiti Sandra Halldórsdóttir og er fædd árið 1986, uppalin og búsett á Sauðárkróki ásamt fjölskyldu minni. Ég á fjögur börn og eitt barnabarn sem fæddist fyrr á árinu. Ég fluttist suður um tíma til að stunda nám við Háskóla Íslands þar sem ég lærði grunnskólakennarann og tók grunnnám á textílkjörsviði, þá einstæð með tvö börn. Ég ákvað að ljúka ekki náminu fyrr en nokkrum árum seinna þegar ég var flutt aftur á Sauðárkrók og átti von á þriðja barninu. Nú starfa ég sem umsjónarkennari á miðstigi í Árskóla.]]></description>
Í syngjandi jólasveiflu í Miðgarði
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/jolatonleikar_huldageirogeiki.jpg" alt=">Hulda Jónasar, Geiri og Eiki Hilmis. MYND AÐSEND" />
Gná tónleikar og Hulda Jónasar kynna til sögunnar tónleikana Í syngjandi jólasveiflu þar sem flutt verða jólalög Geirmundar Valtýssonar. Tónleikarnir voru fyrst haldnir í Hörpu fyrir síðustu jól en nú verða jólalögin hans Geira flutt í Menningarhúsinu Miðgarði í Varmahlíð 27. nóvember og reyndar einnig í Salnum í Kópavogi 5. desember.]]></description>