    <language>is</language>
Rabb-a-babb | Feykir.is
Rabb-a-babb 250: Högni Elfar
 „Nafnið er Högni Elfar Gylfason samkvæmt bestu heimildum úr kirkjubók-um,“ segir viðfangsefni Rabbsins að þessu sinni, aðspurður um nafn og síðan árgang og fjölskylduhagi. „Árið er 1968 þegar blómabörnin voru upp á sitt besta. Ég er kvæntur Moniku Björk Hjálmarsdóttur frá Korná í Lýdó. Hjá okkur býr tengdamóðir mín, Birna Hjördís Jóhannesdóttir, betur þekkt sem Lilla á Korná. Hún er ein sjö dætra Moniku frá Merkigili í Austurdal. Við búum á Korná í Lýtingsstaðahreppi hinum forna. Þar búum við með fáein hundruð skjáta, nokkra hesta og hund.“]]></description>
Rabb-a-babb 249: Ásthildur ÓM
Rabbið kíkir til Kristianstad í Svíþjóð í þetta skiptið en þar býr dóttir Maríu Bjarkar og Ómars Braga, Ásthildur Ómaríudóttir, eins og hún segir sjálf. Ásthildur, sem er nú lofuð Magnúsi Orra Sigþórssyni, er fædd árið 2000, alin upp í Túnahverfinu á Króknum allt þar til hún fluttist á heimavist Menntaskólans á Akureyri. Síðan er hún heldur betur búin að bralla eitt og annað og meðal annars sem þáttastjórnandi á sjónvarpsstöðinni N4.]]></description>
Rabb-a-babb 248: Sólveig Birna
Það er Sólveig Birna Elísabetardóttir sem svarar Rabb-a-babbi í þetta skiptið. Hún er að nálgast þrítugt, er fædd árið 1997, er einhleyp en býr um þessar mundir á Akureyri. „Ég ólst upp meira og minna í Breiðholti en hef einnig búið í nokkur ár á Sauðárkróki. Mamma mín hét Elísabet Sóley Stefánsdóttir, dóttir Stebba á Gili og Ólínu dóttur Valda rak. Pabbi minn heitir Halldór Þorsteinns Gestsson og er skipstjóri á Drangey.]]></description>
Rabb-a-babb 247: Víðir í Stóradal
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/rabb_vidir.jpg" alt=">Víðir í Stóradal. MYND AÐSEND" />
Jakob Víðir Kristjánsson sem er sjaldnast kallaður Jakob, alltaf Víðir, er fæddur á því herrans ári 1983 og sleit barnsskónum í Stóradal í Svínavatnshreppi hinum forna og þar er hann að slíta fullorðinsskónum líka. Víðir er faðir tveggja barna allavega, annað er óljóst eins og hann sjálfur kemst að orði. Víðir er sonur Kristjáns Jónssonar og Margrétar Rósu Jónsdóttur. Víðir starfar sem sauðfjárbóndi aðallega en fer líka stundum á hestbak annaðhvort af eigin frumkvæði eða gegn greiðslu.]]></description>
Rabb-a-babb 246: Saga Sjöfn
Rabbið rúllar áfram og að þessu sinni er það Saga Sjöfn Ragnarsdóttir, fædd 1991, sem segir frá sér. Saga Sjöfn býr á Króknum og er í sambúð með Sigurði Birki Gunnarssyni (Sigga Bigga), og þau eiga tvær skvísur, Bríeti Sunnu, 7 ára, og Heklu Björt, 4 ára. „Ég er dóttir Ragga Knúts, Knúts Aadnegard og Brynju Kristjáns, og Evu Árnadóttur, dóttur Árna Guðmundsonar og Gígju. Ég ólst upp hér á Króknum til átta ára aldurs og fluttist þá til Vestmannaeyja með mömmu, Leó bróður og Steina stjúpa. Ég var nú samt snögg til baka á Krókinn og kom hingað strax aftur að grunnskóla loknum.“]]></description>
Rabb-a-babb 245: Arney
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/arney_rabb_nett.jpg" alt=">Arney. MYND AÐSEND" />
Við röbbum við Arneyju Sindradóttur þessa vikuna, eiginkonu Þórðar Karls Gunnarssonar, móður Gunnars Atla, Ólafs Bjarna og Eldeyju Sifjar, dóttur Ernu og Sindra á Breið. Arney sleit barnsskónum fram í Lýtingsstaðarhreppi þar sem hún er næst yngst fjögurra systkina. Býr í dag á Sauðárkróki og starfar sem skrifstofustjóri á Stoð ehf. verkfræðistofu þar sem Þórður Karl teiknar og hún rukkar fyrir eins og hún kemst sjálf að orði. Spurð út í nám svarar Arney því til að það hafi fyrst verið Steinsstaðaskóli og síðar Varmahlíðarskóli sem segir allt sem segja þarf, og ei þörf á að tíunda námsferilinn neitt frekar.]]></description>
Rabb-a-babb 244: Soffía Einars
Það er Króksarinn Soffía Einarsdóttir sem svarar fyrsta Rabbi ársins í Feyki. Hún er af ´68 árganginum, alin upp á Bárustígnum en foreldrar hennar Einar Helga og Brynja Jósefs. Nú býr Soffía í Skerjafirðinum í Reykjavík og er í sambúð með Sigurði Áss Grétarssyni. „Ég á tvo drengi fædda 1996 og 2002 og sex stjúpbörn. Fimm þeirra á sambýlismaður minn og svo á ég eina stjúpdóttur af fyrra sambandi.“ Hún er kennari í grunninn með B.ed gráðu. „Sérnám eftir kennaranámið er náms- og starfsráðgjöf sem ég tók í HÍ og starfa sem sérfræðingur við ráðgjöf í starfsendurhæfingu hjá Virk í VR.“]]></description>
Rabb-a-babb 243: Sara Björk
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/sarabjork.jpg" alt=">Við Goðafoss í ágúst í sumar, Tryggvi Þór, Sigurður Elís og Birgir Steinn með mömmu sinni. MYND AÐS…" />
Í lok nóvember var farsældarráði Norðurlands vestra komið á laggirnar og þar í forsvari er Sara Björk Þorsteinsdóttir. Það var því borðleggjandi að senda henni Rabb-a-babb svo lesendur Feykis geti kynnst hinni hliðinni á henni. Sara Björk er fædd árið 1989 en staðhæfir að hún sé samt alltaf bara 23ja ára. Hún er einstæð, með þrjá stráka og býr á Blönduósi.]]></description>
Rabb-a-babb 242: Dagmar Ásdís
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/didirabb.jpeg" alt=">Dagmar með dætra dætrum sínum, Dagmar Helgu og Valgerði Rakel. MYND AÐSEND" />
Á Hofsósi býr Dagmar Ásdís Þorvaldsdóttir ásamt eiginmanni, Ragnari Þór Jónssyni. Þegar þau hjónin leggja saman eru börnin alls fimm og barnabörnin orðin 15. Dagmar eða Dídí, eins og hún er alltaf kölluð, er dóttir Diddu og Valda og alin upp í sveitinni með fallegasta útsýninu, Þrastastöðum rétt fyrir ofan Hofsós. Hreinræktuð út að austan. Dídi rak lengi vel veitingastaðinn Sólvík á Hofsósi en núna er hún matráður við Grunnskólann austan Vatna.]]></description>
Rabb-a-babb 241: Atli Gunnar
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/atli-gunnar.jpeg" alt=">Atli Gunnar. MYND GG" />
Blaðamaður fékk hinn stórskemmtilega mág sinn, Atla Gunnar Arnórsson, í Rabb við sig. Einhverjir vita hver þessi geðþekki maður er en í fjölskyldunni er hann kallaður verkfræðingurinn í eldhúsinu, því vissulega er hann verkfræðingur sem vinnur hjá Stoð ehf. en einnig úrvalskokkur. Svo gegnir hann líka því merkilega hlutverki að vera formaður Karlakórsins Heimis.]]></description>
Rabb-a-babb 240: Eydís Ósk
Eydís Ósk Indriðadóttir er kjarnorkukona í Húnaþingi vestra. Hún er árgerð 1982, er í sambandi með Ágústi Þorbjörnssyni, á 19 ára dóttur, Júlíu Jöru, og 29 ára stjúpson, Eyþór Loga. Hún er dóttir Herdísar og Indriða í Grafarkoti og er fædd þar og uppalin.]]></description>
Rabb-a-babb 239: Peta
Það er Péturína Laufey Jakobsdóttir, fædd árið 1980, sem svarar Rabb-a-babbi að þessu sinni. Peta býr á Skagaströnd og er gift Reyni Lýðs Strandamanni en saman eiga þau þrjú börn; Jóhann Almar 23 ára, Anton Loga 16 ára og Katrínu Söru 12 ára. „Ég er dóttir Katrínar Líndal og Jakobs Jónssonar sem búa á Bakka í Vatnsdal. Ég er fædd og uppalin á Blönduósi, átti sama herbergið til 16 ára aldurs á Hlíðarbrautinni. Þá flutti ég að heiman, mjög fullorðin að eigin mati, og ekki búin að átta mig á hversu ómetanlegt það er að vera á hótel mömmu. Mamma og pabbi eru nýlega flutt í sveitina en pabbi er frá Bakka í Vatnsdal og mamma er frá Bakkakoti í Refasveit.“]]></description>
Rabb-a-babb 238: Sigga í Víðidalstungu
Það er Sigríður Ólafsdóttir í Víðidalstungu í Vestur-Húnavatnssýslu sem svarar Rabbinu að þessu sinni. Hún er fædd árið 1982 og er einhleyp. Sigga er dóttir Ólafs og Brynhildar í Víðidalstungu og alin þar upp og telst vera hálfur Húnvetningur og hálfur Borgfirðingur. Hún er M.Sc í búvísindum en starfar sem sauðfjárbóndi í Víðidalstungu og ráðunautur hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins.]]></description>
Rabb-a-babb 237: Gummi Steingríms
Að þessu sinni hittir Rabbið fyrir Guðmund Steingrímsson sem er landsmönnum að góðu kunnur. Hann fæddist árið 1972 en er nú giftur tveggja barna faðir í Vesturbænum í Reykjavík. Hann stundar doktorsrannsóknir í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands. „Ég ætla að verða Dr. Gummi“ segir hann –sennilega sposkur á svipinn.]]></description>
Rabb-a-babb 236: Sandra Hilmars
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/rabb_sandrahilmars.jpg" alt=">Sandra og fjölskylda. AÐSEND MYND" />
Að þessu sinni er það Sandra Hilmarsdóttir, '90 módel, sem svarar Rabbinu í Feyki. Sandra býr á Sauðárkróki og er gift Birki Fannari Gunnlaugssyni og saman eiga þau drengina Hauk Frey 13 ára og Kára Þór 7 ára. Hún er dóttir Hilmars Aadnegard og Höllu Guðleifs. „Ég ólst upp á Króknum og skrapp svo suður á bóginn í nám en var fljót að koma mér heim aftur eftir að því lauk,“ segir Sandra en hún starfar sem ráðgjafi hjá Vinnumálastofnun og kennir spinning í 550.]]></description>
Rabb-a-babb 235: Þórdís
G. Þórdís Halldórsdóttir býr á Ytri Hofdölum í Viðvíkursveit, fædd á því herrans ári 1987, ári eftir að foreldrar hennar þau Halldór Jónasson og Halldóra Lilja Þórarinsdóttir fluttu í Skagafjörðinn úr Svarfaðardalnum, sem Þórdís segir hafa verið það gáfulegasta sem þau hafi gert.]]></description>
Rabb-a-babb 234: Karen Helga
Karen Helga R Steinsdóttir er fædd 1995 gift Jóni Helga Sigurgeirssyni og saman eiga þau þrjá drengi þá Sigurstein Finn sex ára, Þorstein Helga fimm ára og Jóhann Liljar eins árs. Fjölskyldan býr í Víkum á Skaga. Karen er fædd og uppalin á Hrauni á Skaga, dóttir Merete Rabølle og Steins Leós Rögnvaldssonar og bjó þar að mestu þangað til fjölskylda flutti í Víkur 2017. Þar reka þau sauðfjárbú og svo hefur hún unnið á Hjallastefnuleikskólanum Bjarnabóli á Skagaströnd síðan 2020 sem hún segir algjöran draum í dós.]]></description>
Rabb-a-babb 233: Baldur Hrafn
Í byrjun sumars var Baldur Hrafn Björnsson ráðinn sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs hjá sveitarfélaginu Skagafirði. Hann er að sjálfsögðu fluttur á Krókinn þar sem hann býr með henni Steinunni Önnu ásamt dóttur þeirra, Hönnu Brá, sem er tveggja ára. „Fyrir á ég svo Magnús Elí, 17 ára, sem býr hjá okkur, og Söru Maríu, 19 ára, sem býr á Ísafirði,“ segir Baldur Hrafn.]]></description>
Rabb-a-babb 232: Rósa
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/screenshot-2024-09-27-at-14.04.44.png" alt=">Rósa og fjölskylda. MYND AÐSEND" />
Gerður Rósa Sigurðardóttir á Hvammstanga svarar Rabb-a-babbi að þessu sinni. Hún er uppalin á Kolugili í Víðidal, undan Nínu Sig og Sigga, eins og hún segir sjálf. Rósa starfar sem skrifstofustjóri hjá Sláturhúsi KVH á Hvammstanga og er stundum meðhjálpari. Hún er tamningamaður að mennt frá Hólaskóla og er gift Kristjáni Svavari en saman eiga þau þrjú börn.]]></description>
Rabb-a-babb 231: Valdimar
Að þessu sinni er það Valdimar H. Gunnlaugsson sem svarar Rabb-a-babbi. Hann býr á Hvammstanga og á þrjá stráka; Viktor Kára, Róbert Sindra og Tómas Braga. „Mamma mín heitir Anna Rósa Jóhannsdóttir og pabbi minn hét Gunnlaugur Pétur Valdimarsson. Fyrstu árin mín bjó ég á Kollafossi í Miðfirði en flutti tíu ára til Dalvíkur og kláraði þar grunnskólann,“ segir Valdimar en hann er enn í grunnskólanum, kennir við Grunnskóla og Tónlistarskóla Húnaþings vestra. Hann er fæddur 1985.]]></description>