    <language>is</language>
Mannlíf | Feykir.is
Stórskemmtileg sýning í Laugardalshöllinni
Stórsýningin Íslenskur landbúnaður 2026 var haldin í Laugardalshöll-inni í Reykjavík 9.-11. október 2026. Feykir komst ekki hjá því að uppgötva að Króksarinn Benedikt Rúnar Egilsson (sem flestir þekkja sem Benna í Bílabúðinni þó hann vinni þar ekki lengur) væri einn af þeim aðilum sem ætlaði að kynna vörur og þjónustu á sýningunni. Á leiðinni suður bárust honum því skilaboð þar sem hann var spurður hvort hann gæti tekið að sér að smella myndum af sýningunni fyrir Feyki og ekki síst ef hann rækist á kunnugleg andlit. Það reyndist sjálfsagt mál og þegar myndirnar bárust í tugatali þá varð ekki hjá því komist að spyrja hann aðeins út í bissnesinn og sýninguna.]]></description>
Enn er barist fyrir lauginni
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/laugin.jpg" alt=">Svona er sundlaugin engum til gagns. Mynd: Magnús Barðdal" />
Feykir sagði frá því að Skagfirsku sundmeyjarnar sem stóðu fyrir undirskriftum til að mótmæla lokun endurhæfingarlaugarinnar, hafi sent frá sér listann sem taldi 1232 manns, til allra helstu ráðamanna með kröfu um að lokunin verði dregin til baka. ]]></description>
Umferðarsöryggisáætlun í endurskoðun
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/umferdaroryggisaaetlun.png" alt=">Börnin þurfa að vera örugg í umferðinni. Mynd: hunabyggd.is" />
Húnabyggð vinnur nú að endurskoðun umferðaröryggisáætlunar fyrir sveitarfélagið. Markmið áætlunarinnar er að móta aðgerðaráætlun sem stuðlar að auknu öryggi, fækkun slysa og betri lífsgæðum fyrir íbúa og aðra vegfarendur.]]></description>
Opinn fundur um vegamál hjá Rótarý
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/rot.jpg" alt=">Fundur um vegamál í kvöld fimmtudag. Mynd: Af netinu" />
Rótarýklúbbur Sauðárkróks lætur sér fátt óviðkomandi en í kvöld boðar hann til opins fundar kl. 18:00 – 19:00. Fundurinn fer fram á Kaffi Krók, neðri sal. Húsið opnar kl. 17:45.]]></description>
Húnaþing vestra hlaut viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026
Húnaþing vestra hlaut nýverið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. „Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem við höfum verið á sem er að skapa vinnustað þar sem við höfum öll jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif,“ segir í tilkynningu á vef Húnaþings vestra.]]></description>
Opið hús í Höfðaskóla í dag
Fimmtudaginn 22. október verður opið hús í Höfðaskóla á Skagaströnd á milli kl. 15 og 17 og eru foreldrar, fjölskyldur og aðrir áhugasamir hjartanlega velkomnir í heimsókn! Á heimasíðu skólans segir að nemendur og starfsfólk skólans hafi tekið höndum saman og undirbúið fjölbreyttar og skemmtilegar stöðvar þar sem gestum gefst tækifæri til að kynnast því skapandi og fjölbreytta starfi sem fram fer innan veggja skólans.]]></description>
Börnin í Varmahlíðarskóla mynduðu bleika slaufu
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/bleiku-bornin-2.jpg" alt=">Bleika slaufan í Varmahlíð. Mynd: Kristín Halla." />
Dags bleiku slaufunnar er minnst með ýmsum hætti í dag. Skemmtileg uppákoma var í Varmahlíðarskóla í morgun þegar leik-, grunn- og tónlistarskólabörn mynduðu bleika slaufu sem síðan var mynduð úr lofti.]]></description>
Munum Bleikan dag
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/849476746_1144701391454397_4304797916835422670_n.jpg" alt=">Glaumbæjarkirkja í morgunsárið á bleikum degi. Mynd: HMJ" />
Upplýst Glaumbæjarkirkja minnir á Bleika daginn sem helgaður baráttunni við krabbameini hjá konum.]]></description>
Undirskriftasöfnun lokið 
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/1792505495_heilbrigdisstofnunin-saudarkroki-pib.jpg" alt=">Séð yfir Sauðárkrók, Heilbrigðistofnunin neðst til vinstri. Mynd: Pétur Ingi" />
Undirskriftasöfnuninni til stuðnings Endurhæfingarsundlauginni á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki er lokið. Alls skrifuðu 1228 undir listann sem verður nú sendur til stjórnar HSN, Heilbrigðisráðherra og sveitarstjórnar Skagafjarðar. Alls söfnuðust 1228 undirskriftir.]]></description>
Elín heiðruð fyrir störf í þágu ferðaþjónustu á Norðurlandi
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/elinsig.jpg" alt=">Elín S. Sigurðardóttir forstöðumaður Heimilisiðnaðarsafnsins á Blönduósi tekur við viðurkenningunni…" />
Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi fór fram á Norðurhjarasvæðinu þann 15. október en þar komu ferðaþjónustuaðilar saman, kynntu starfsemi sína og fögnuðu árangri liðins árs. Á hátíðinni voru veittar viðurkenningar í þremur flokkum. Elín S. Sigurðardóttur, forstöðumaður Heimilisiðnaðarsafnsins á Blönduósi, var á meðal þeirra sem fékk verðskuldaða viðurkenningu fyrir góð störf.]]></description>
Fjölbreyttir leikar í Fjölbraut
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/reipitog.jpg" alt=">Lið starfsfólks í gífurlegum átökum í reipitogi. Mynd:HMJ" />
FNV leikarnir voru haldnir í annað sinn miðvikudaginn 7. október og var dagurinn fullur af fjöri, keppnisskapi og góðri stemningu. Leikarnir eru að fyrirmynd Fjölbrautaskóla Suðurnesja, þar sem sambærilegir leikar hafa verið haldnir í um 20 ár. Markmiðið er að efla samheldni meðal nemenda, skapa góða stemningu og brjóta upp hefðbundið skólastarf.]]></description>
„Ooo, ef ég gæti nú bara farið aftur í tímann og séð hvað hér gekk á“
Hvernig var lífið í verbúðum við ysta haf á 12. öld? Hvernig stytti fólk sér stundir þegar enginn var síminn eða sjónvarpið? Undanfarin sumur hefur fornleifarannsókn farið fram í Hafnabúðum á Hjallanesi í landi Hafna á Skaga þar sem umfangsmikil verbúðabyggð hefur verið við sjávarsíðuna. Markmiðið með rannsókninni var að rannsaka líf og starf fólks í gamalli verstöð og hvernig sjávar- og strandauðlindir voru nýttar. Rannsóknirnar benda til þess að starfsemin hafi verið fjölbreytt. Þar fundust meðal annars vísbendingar um fiskveiðar, hvalveiðar, selveiðar, textílvinnu og matargerð. Konur, menn og börn hafa dvalið á staðnum, en ekki eingöngu karlmenn líkt og uppistaðan í seinni tíma hugmyndum um verstöðvar og sjómennsku hefur oft verið.]]></description>
Sumarið gekk vel, var annasamt og skemmtilegt | BRYNJAR MORGAN
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/brynjarmorgan.jpg" alt=">Brynjar Morgan á góðum degi á Hlíðarendavelli í byrjun sumars. MYNDIR AÐSENDAR" />
Íþróttagarpur Feykis að þessu sinni er Brynjar Morgan Brynjarsson en hann er fæddur í janúar á því góða ári 2012. Hefur búið á Skagfirðingabrautinni á Sauðárkróki frá því daginn áður en hann kom í heiminn en þá fluttu foreldrar hans allt sitt hafurtask á Krókinn.]]></description>
Og það er Helga og Helga og Helga og ...
Það er ekki öll vitleysan eins eins og segir í kvæðinu. Í ágætri frétt á vef Varmahlíðarskóla segir af því að af 34 starfsmönnum skólans bera átta nafnið Helga. Ekki kemur fram hvort þetta hafi valdið veseni hjá nemendum og öðru starfsfólki.]]></description>
Heimsókn í Snælduna - samþætta heimaþjónustu
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/mg_9445.jpg" alt=">Snældan er til húsa í eldri hluta sjúkrahússins á Hvammstanga. Mynd: Aðsend." />
Á dögunum komu fulltrúar félagsmálaráðuneytisins sem halda utan um verkefnið Gott að eldast í heimsókn í Snælduna heimaþjónustu á Hvammstanga. Aðgerðaáætlunin Gott að eldast var samþykkt á Alþingi í maí árið 2023 og tekur til 19 aðgerða sem á að vera búið að ljúka í árslok 2027. Aðgerðirnar eru mismunandi, sumar ívið umfangsmeiri en aðrar en allar eiga það sameiginlegt að stuðla að bættum lífsgæðum eldra fólks. Sex heilbrigðisumdæmi og tuttugu og tvö sveitarfélög taka þátt í verkefninu.  ]]></description>
Ertu með hugmynd fyrir Sæluviku 2027?
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/saeluviku-styrkur.png" alt=">Opið er fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð. Mynd: Af netinu." />
Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra hefur opnað fyrir umsóknir og styður meðal annars við menningar- og samfélagsverkefni, líkt og viðburðarhald. Ef þú hefur hugsað þér að standa fyrir viðburði á Sæluviku 2027 gæti styrkur úr sjóðnum hjálpað til við að gera hugmyndina að veruleika.]]></description>
Háskólanemar eru ótrúlegar verur
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/saethormar.jpg" alt=">Sæþór Már. MYND AÐSEND" />
Nú ber svo við að í Háskólaráði Háskóla Íslands eiga tveir Skagfirðingar sæti en það eru þau Hólmfríður Sveinsdóttir, forseti Háskóla Íslands á Hólum, og Sæþór Már Hinriksson námsmaður og trúbador. Sæþór er líka fyrrum sumarstarfsmaður á Feyki – og fjölmargt annað – þannig að það lá beint við að senda honum nokkrar spurningar.]]></description>
Menningin dafnar í Miðgarði
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/midgardur-2.jpg" alt=">Þau ráða ríkjum í Miðgarði; Sigga Jóna, Snorri og Lilja Dóra. (Stefán Íslandi gægjist yfir öxlina á…" />
 Um áramótin 2024 – 2025 tóku þau Sigríður Jónína Helgadóttir og Snorri Snorrason við búsforráðum í Menningarhúsinu Miðgarði í Varmahlíð. Það var árið 2009 sem Miðgarður, eftir miklar endurbætur, fékk formlega titlilinn, Menningarhús. Saga Miðgarðs hófst þó árið 1967 þegar það var vígt sem félagsheimili. En sem sagt, þá eru Sigga og Snorri staðarhaldarar í Miðgarði núna og leit blaðamaður við í morgunkaffi nú fyrir skemmstu og fékk að fræðast um starfið og spurði fyrst hvað hefði fengið þau til að sækjast eftir þessu hlutverki?]]></description>
Kvöldopnun í Aðalgötunni á Króknum
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/olinabjork_systuriadalgotu.jpg" alt=">Systur. Ólína Björk á og rekur Drangey Studio, Rannveig er með RA handlitun og Helgarut á  Rendur s…" />
Árleg kvöldopnun í Aðalgötunni á Sauðárkróki verður þriðjudaginn 13. október en þá verða fyrirtækin í götunni með opið hjá sér og því tilvalið að kíkja á röltið í skemmtilegri kvöldstemningu og hafa gaman. Feykir heyrði aðeins í Ólínu Björk Hjartardóttur verslunarkonu í Aðalgötunni en hún rekur Drangey Stúdíó ásamt Helgurut systur sinni.]]></description>
Gulnuðu laufin hans Sigvalda
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/sigvaldihelgi.jpg" alt=">Sigvaldi í sviðsljósinu á Jólin heima 2025. MYND: ÓAB" />
Nýrri skagfirskri tónsmíð var smellt á Spottann í vikunni en það var lagið Gulnuðu laufin sem Sigvaldi Helgi Gunnarsson er skráður fyrir. Lagið er lauflétt og kántrýskotið – en ekki hvað – og haganlega sett saman af þeim Sigvalda og Andra Má Sigurðssyni og prjónað saman í stúdíóinu hjá Reyni Snæ Magnússyni. Feykir rabbaði við Sigvalda.]]></description>