    <language>is</language>
SiggaSiggaSigga | Feykir.is
Skelltu í vöfflur í dag
Í dag er alþjóðlegi vöffludagurinn og því er tilvalið að skella í vöfflur. Ég ætla að deila með ykkur fjölskylduuppskriftinni sem hefur verið notuð síðan sautjánhundruð og súrkál og klikkar aldrei. Nú ef þið nennið ekki að setja í þessa auðveldu uppskrift þá mæli ég með Vilko pakkavöfflunum. ]]></description>
Leiðari: Hvar er krummi?
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/hrafn_stor_090718.jpg" alt="> Mynd tekin af vísindavefnum. " />
Leiðari vikunnar er meira svona hugleiðing um hvað varð af krummanum hér á Króknum því á tal við Feykisfólkið kom ágætur áskrifandi sem hafði áhyggjur, já eða skildi ekki hvað hefði orðið af krumma. Þannig vill til að þar sem maðurinn heldur til við sín störf hafa yfirleitt verið nokkuð mörg krummapör í gegnum árin og hann fylgst með þeim og taldi, þegar mest var, um 17 pör.]]></description>
Ertu hjátrúafullur? 
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/fostudagur_13_130412.jpg" alt="> Mynd tekin af Visindavefnum." />
Já það er kominn föstudagur mér til mikillar gleði.... eða hvað? Í dag er nefnilega föstudagurinn 13. sem á það til að koma upp einu sinni til þrisvar á ári. Talan 13 er fyrir suma  óhappatala og þá sérstaklega ef þessi mánaðardagur ber upp á föstudegi. Þessi hjátrú er meðal útbreiddustu hjátrúa í heimi og kallast paraskevidekatriaphobia og er tengd óttanum við töluna þrettán eða triskaidekaphobia og setti sálfræðingnum Donald Dossey þetta hugtak fram. Á þessum degi, föstudeginum þrettánda, verða hjátrúafullir hræddari sem aldrei fyrr og telja að eitthvað slæmt eigi eftir að gerast og sumir ganga svo langt að mæta ekki til vinnu á þessum degi. Í sumum borgum er þrettándu breiðgötu sleppt og t.d. í Sacramento eru gatnamót þar sem þrettánda stræti sker þrettándu breiðgötu en ekki fylgir sögunni hvort fleiri umferðarslys eigi sér stað þar en annars staðar. Sum hótel ganga svo langt að sleppa þrettándu hæðinni eða réttara sagt merkja þrettándu hæð sem þá fjórtándu út af hjátrú en á vísindavefnum er að finna mjög langa grein um töluna þrettán sem ég ætla að láta fljóta með fyrir þá sem vilja lesa lengra.   ]]></description>
Leiðari: Að vera stolt Tindastólsmamma
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/387471908_1516736209094120_1838030246028365146_n.jpg" alt="> Strákarnir í MB11 að gæða sér á Hubbu-ís. Mynd: SG " />
Það er svo mikil gleðitilfinning að vera stolt hvort sem það er af sjálfum sér, maka sínum eða fólkinu í kringum sig. En stoltið sem umlykur mann þegar börnin eiga í hlut situr meira í manni, því þau eru manni allt.]]></description>
Notar þú gælunafn yfir bílinn þinn? 
Gráni gamli, þruman og kagginn eru algeng gælunöfn á bílum og er þetta ótrúlega skemmtileg hefð sem ég hef fallið fyrir. Ég hef yfirleitt notað bílategundina til að nefna bílana mína eins og t.d Yarrinn (Yaris) og Rollan (Corolla). Þannig að ef þú ert ekki nú þegar búin/n að gefa bílnum þínum gælunafn þá er um að gera að gera það í dag því það er alþjóðlegi gefðu bílnum þínum nafn í dag.  En hvað segja lesendur Feykis, þeir sem eru löng búnir að skíra bílana sína skemmtilegum nöfnun, hvað heita þeir? ]]></description>
Nagaði göt á öryggisnetið á trampólíninu | Ég og gæludýrið mitt
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/gaeludyrathattur.jpg" alt="> Telma og Kakó uppi í sófa:) Myndir aðsendar" />
Það er fátt mýkra en kanínur og ef þær eru til í knús þá er yndislegt að kúra með þessi dýr. En þær geta verið misjafnar þessar elskur en kanínan sem Telma Ýr í Kvistahlíðinni á Króknum á er mikið fyrir að vera nálægt mannfólkinu sínu og láta brasa með sig. Telma Ýr er dóttir Hildar Haraldsdóttur og Skarphéðins Stefánssonar og á hún eina systur, Ardísi Hebu. ]]></description>
Erfiðast að finna þær! | Ég og gæludýrið mitt
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/briet-dyravinur.jpg" alt="> Bríet Rán - Aðsend mynd" />
Bríet Rán Stefánsdóttir, 9 ára, býr í Stekkholti rétt fyrir utan Sauðárkrók ásamt móður sinni, Hilmu Eiðsdóttur, föður, Stefáni Inga Sigurðssyni og systur, Heiði Fanneyju. Í Stekkholti er að finna bæði hesta og kindur en Bríeti Rán langar að segja okkur aðeins frá hömstrunum Karólínu og Kex. Þær systur (Bríet og Heiður) voru svo heppnar að fá sinn hvorn hamsturinn í gjöf frá vinkonu Heiðar fyrir nokkrum árum síðan og hjálpuðust þær að við að gefa þeim og halda búrunum hreinum.]]></description>
Gerir ekkert nema  fá borgað fyrir það | Ég og gæludýrið mitt
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/hekla.jpg" alt="> Hekla og hundarnir Ludo og Astro. Mynd aðsend. " />
Í Gilstúninu á Króknum býr Hekla Eir ásamt eiginmanni sínum, Óla Birni, og syni þeirra Birni Helga. Þau eru ein af mörgum hundaeigendum á Króknum og eiga tvo hreinræktaða Tíbetan Spaniel hunda sem heita Ludo (The magical gamer Ludo) og Astro (Glowing Astro, sable boy). ]]></description>
Nokkrar skemmtilegar hugmyndir til að útbúa Halloween kökur
Sá þessar sniðugu hugmyndir þar sem notaðar eru bollakökur og svo er kremið smurt ofan á.]]></description>
„Hey, sjáið þið köttinn í glugganum!?“ | Ég og gæludýrið mitt
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/gaeludyr1.jpg" alt="> Kristjana Ýr og Mosi. AÐSEND MYND" />
Kristjana Ýr Feykisdóttir (12 ára) sem býr á Víðimel í Varmahlíð á eina kisulóru sem heitir Mosi og er níu ára. Margir kannast eflaust við Mosa á Sauðárkróki frá því að Kristjana bjó þar því hann var duglegur að lenda í ævintýrum sem enduðu yfirleitt alltaf vel. ]]></description>
Feykir mælir með grilluðum kjúkling með sataysósu og Camembert í ofni
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/feykir-maelir-med...-kjullinn.jpg" alt="> Uppskriftirnar og myndirnar eru teknar af síðunni www.eatrvk.is " />
Loksins er að koma smá vorfílingur í mann og þá byrjar allsherjar grillvertíð á mínu heimili. Kjúklingur er eitthvað sem er auðvelt að fá krakkana til að borða og það er eins og þau ætli úr límingunum þegar maður bíður þeim upp á kjúklingaspjót. Ég mæli með að gera tvöfalda uppskrift því þau eru líka góð daginn eftir og ekki skemmir fyrir að notast við þessa sataysósu því hún er guðdómlega góð. Ég hef svo náð að klúðra Camembert osti í ofni, já þið lásuð rétt, en ástæðan var að ég setti hann á eitthvað glerfat sem ég hélt að ætti að þola smá hita en viti menn það gerði það ekki. Fyrir vikið sat ég uppi með að taka ofninn minn í gegn og á þar að leiðandi ennþá eftir að prufa þessa uppskrift sem verður vonandi um helgina.    ]]></description>
Katla er afskaplega lítil, ljúf og góð
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/dyrathattur1.jpg" alt="> Katla með Kristófer Elmar, Fanndísi Völu og Þórð Braga. AÐSEND MYND" />
Á Ríp í Hegranesinu í Skagafirði búa systkinin Þórður Bragi og Fanndís Vala. Foreldrar þeirra eru Sigurður Heiðar Birgisson og Sigurlína Erla Magnúsdóttir og eiga þau lítinn bróður sem heitir Kristófer Elmar. Þau ætla að segja okkur frá uppáhalds hestinum sínum henni Kötlu. ]]></description>
Græðir oft gotterí frá litla vini sínum
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/steinthor-og-breki.jpg" alt="> Breki og Steinþór sælir saman. AÐSEND MYND" />
Þau Hólmfríður Lilja Böðvarsdóttir og Hafþór Smári Gylfason, sem búa á Steinsstöðum í Skagafirði ásamt syni sínum, Steinþóri Sölva, eiga mjög fallegan hund af tegundinni Vorsteh eða þýski bendirinn. Hann ber nafnið Zeldu BST Breki og er tegundin snögghærð, greind, vinaleg og nærgætin, mjög húsbóndaholl og mikið fyrir börn sem gerir hundinn einstaklega góðan félaga. Hann er mjög háður og tryggur húsbónda sínum en getur verið hlédrægur og feiminn við ókunnuga en er mjög auðveldur í þjálfun.]]></description>
Athyglissjúk á við alheimsdrottningu
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/eg-og-gaeludyrid-embla-og-raggy.jpg" alt="> Embla og Ragndís. MYND AÐSEND. " />
Mini Shnauzer eða dvergshnauzer eru mjög glæsilegir og kröftugir hundar sem er með feld sem fellir ekki hárin og gefur frá sér litla sem enga hundalykt. Feldurinn er strýr og þarf reglulega að reyta hann og hefur hann þann eiginleika að hrinda frá sér vatni og óhreinindum. Þeir eru bæði sjálfstæðir og forvitnir, eru með langt höfuð, skegg og augabrýr sem einkennir þessa mögnuðu tegund.]]></description>
Fékk harðfisk í jólapakkann!
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/dyrajol-dimma.jpg" alt="> Elísa Bríet og Dimma Lind í hátíðarskapi. - AÐSEND MYND" />
Á Skagaströnd er lítill fallegur hundur sem heitir Dimma Lind og er af tegundinni Silky terrier. Dimma Lind er fimm ára og er eigandi hennar Elísa Bríet Björnsdóttir, 13 ára, dóttir Þórunnar Elfu Ævarsdóttur og Björns Sigurðssonar. Elísa eignaðist Dimmu þegar fjölskyldan var í Reykjavík og mamma hennar var að velta því fyrir sér hvort þau ættu kannski að fá sér hund. Eftir mikið suð í Elísu lét Þórunn undan og duttu þau heldur betur í lukkupottinn með hana Dimmu sem þau fengu í Keflavík.]]></description>
Jólatréð girt af með pappakössum fyrstu jólin
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/img_1227.jpg" alt="> Daði er Skagfirðingur, fæddur og uppalinn á bænum Víðiholti í Seyluhreppi hinum forna. Erna kemur …" />
Daði Hlífarsson og Erna Ósk Björgvinsdóttir á Króknum eiga rosalega fallegan hvítan hund af tengundinni Samoyed en þeir eiga uppruna sinn að rekja til Síberíu. Þeir eru með tvöfaldan þykkan feld og voru upphaflega ræktaðir sem sleðahundar og til að smala hreindýrum. ]]></description>
Stefanía á átta hesta
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/eg-og-gaeludyrid-stefania-sigfusdottir.jpg" alt="> Vinirnir Klettur og Stefanía. AÐSEND MYND" />
Ef það er eitthvert dýr sem Skagafjörður getur státað af þá er það hesturinn en um þessar slóðir má finna fjöldann allan af flottum ræktendum sem eru að gera góða hluti með íslenska hestinn bæði í keppnum og í ræktun og sölu erlendis. Þar sem ég er nokkuð viss um að margir lesendur Feykis viti meira um hesta en ég ákvað ég að leita uppi nokkrar staðreyndir um hesta sem hugsanlega einhverjir hafa ekki hugmynd um að væri rétt.]]></description>
Hátt í 15 ár að gera upp fyrsta bílinn
Samgöngusafnið í Stóragerði Skagafirði er staður þar sem margt rusl hefur orðið að fjársjóði en safnið, sem aldrei átti að verða safn, hefur nú verið starfrækt í 17 ár. Gunnar Kr. Þórðarson, stofnandi safnsins, sá að nokkuð ljóst væri að byggja þyrfti skemmu undir alla dýrgripina svo þeir yrðu ekki fyrir skemmdum, því mikill tími og peningar voru farnir í uppgerð á hinum ýmsu tækjum.]]></description>
Elskar að fara í rjúpu
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/gaeludyrid1.jpg" alt="> Margrét og Baron á hundasýningu" />
Þýskur fjárhundur eða german shepherd, eins og flestir þekkja þá undir, eru mjög fallegir, sterkbyggðir og tignarlegir hundar. Þeir eru oftast svartir/brúnir á litinn en grár/brúnn er einnig þekkt. Þar sem þeir eru þekktir fyrir að vera mjög ákveðnir, óhræddir, áhugasamir, kjarkaðir, athuglir og hlýðnir þá eru þeir oftast notaðir sem vinnuhundar því þeir eru einnig einstaklega fljótir að læra. Þeir eru mjög húsbóndahollir og elska ekkert meira en að vera með fjölskyldunni sinni þó það sé ekki annað en að fara í smá bíltúr að kaupa sér ís, þeir vilja bara vera með.]]></description>
Mangó sett í aðhald
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/gaeludyrid-mitt-brynjar.jpg" alt="> Brynjar Þór með Magnó og Kiwi. Aðsend mynd" />
Deguar eru lítil loðin nagdýr, ljósbrún að lit og með gula flekki. Þeir geta orðið 25-31 sm og um 170-400 grömm. Lífslíkur eru yfirleitt um sex til átta ár en geta verið allt að 13 ár. Þessir litlu loðboltar eru mikil félagsdýr og eru mjög virk á daginn og hafa góða sjón. Þeir eru gjarnir á að naga plast og verða því að vera í málmbúrum. Þeir gefa frá sér um 15 sérstök hljóð sem þeir tjá sig með.]]></description>