    <language>is</language>
Íþróttir | Feykir.is
Raggi í syngjandi sveiflu gegn Sindra
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/1792856891_raggiagusts.jpg" alt=">Ekki mjög nýleg mynd af Ragga. MYND: DAVÍÐ ELDUR" />
Tindastólsmenn héldu í suðaustur frá Skagafirði í gær en liðið mætti nýliðum Sindra á Höfn í fyrsta sinn í efstu deild körfunnar í gærkvöldi. Þetta er í fyrsta sinn sem Hornfirðingar eiga lið í efstu deild og þeir sýndu að þeir geta vel bitið frá sér því Stólarnir lentu í basli. Heimamenn leiddu með einu stigi fyrir lokafjórðunginn en Stólarnir voru grimmir á lokakaflanum, skelltu í lás í vörn og fráköstuðu af miklum móð og unnu leikinn 71-78.]]></description>
Ég myndi keppa við Indriða afa í spretthlaupi
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/herdis-erla-logadottir.jpg" alt=">Herdís Erla og Griffla í góðum gír. Mynd: Eydís Ósk" />
Íþróttagarpur í síðasta tölublaði Feykis var Herdís Erla Elvarsdóttir sem verður 14 ára 29. desember n.k. og er búsett á Hvammstanga. Hestamennskugen standa að Herdísi í báðar ættir en foreldrar hennar eru Fanney Dögg Indriðadóttir frá Grafarkoti í vestur Hún. og Elvar Logi Friðriksson frá Varmalæk í Skagafirði. Herdís Erla hefur því alist upp með hestum og er núna farin að láta að sér kveða á keppnisvellinum.]]></description>
Spennandi leikir framundan í VÍS bikarnum
Í gær var dregið í 16-liða úrslit VÍS bikarsins í körfunni í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal en dregið var í beinni útsendingu á FB síðu KKÍ. Bæði meistaraflokkslið Tindastóls voru í pottinum og fengu strákarnir heimaleik gegn Stjörnunni en stelpurnar þurfa að sækja lið Hauka heim í Hafnarfjörðinn.]]></description>
Barátta fáliðaðra Stólastúlkna dugði ekki til í Garðabænum 
Stólastúlkur heimsóttu Garðabæinn í gær í fjórðu umferð Bónus deildar kvenna og var leikið í ÞG Verk höllinni. Heldur var lið Tindastóls fámennt en aðeins sjö stúlkur voru í hópnum og hafði það að sjálfsögðu talsvert að segja um það hvernig leikurinn þróaðist. Eftir góða byrjun gestanna náðu Garðbæingar yfirhöndinni og lönduðu sigri, 93-80, þrátt fyrir stórleik Florenciu sem gerði 41 stig.]]></description>
Nemanja Đurišić er kominn í Tindastól!
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/stolar_duricic.jpg" alt=">Nemanja. MYND AF NETINU" />
„Við erum gríðarlega ánægð að tilkynna að Nemanja Đurišić hefur gengið til liðs við Tindastól,“ segir í tilkynningu á Facebook-síðu körfuknattleiksdeildar Tindastóls sem birt var í hádeginu. Nemanja er 2,03 m hár framherji með mikla reynslu.]]></description>
Stólarnir áfram í VÍS bikarnum eftir sigur í Hafnarfirði
Ríkisapparatið sýndi frá VÍS bikarnum í gærkvöldi en það fór nú kannski að mestu fram hjá landsmönnum. Stólarnir reimuðu á sig körfuboltaskóna á Ásvöllum í Hafnarfirði þar sem þeir mættu 1. deildar liði Hauka. Úr varð hressilegur leikur þar sem heimamenn héldu í við gesti sína alveg fram í fjórða leikhluta en þá skildu leiðir. Lokatölur 80-103 og Stólarnirþví komnir í pottinn fyrir 16 liða úrslitin.]]></description>
Öruggur sigur á Ármanni í Síkinu
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/taiwo_armann.jpg" alt=">Taiwo tekur flugið að loknu Evrópuskrefinu. MYND AF SÍÐU KKD. TINDASTÓLS" />
Það var leikið í Síkinu í gærkvöldi en þá kom lið Ármanns í heimsókn. Það fór svo að lið Tindastóls var töluvert sterkari aðilinn og vann alla leikhlutana en það má þó segja að Stólarnir hafi svo gott sem gert út um leikinn í öðrum leikhluta en í hálfleik var staðan 54-37. Mest varð forysta Stólanna 30 stig í síðari hálfleik en gestirnir náðu að laga stöðuna örlítið á lokakaflanum. Lokatölur 109-86.]]></description>
Tindastóll – Ármann í kvöld
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/davis.jpg" alt=">Geks og félagar verða á flugi í Síkinu í kvöld. Mynd: Davíð Már" />
Þá er komið að fyrsta heimaleik hjá Tindastóli í Bónusdeild karla. Mótherjarnir eru kapparnir í Ármanni en þeim er ekki spáð góðu gengi í deildinni. Spekingarnir á karfan.is segja: „Ingvi Þór Guðmundsson er frábær leikmaður. Lið Ármanns að öðru leyti? Neibb, lóðbeint niður eins og staðan er núna.” Þeir segja líka: „Hvernig tekst Tindastóli að leysa verkefnið í Síkinu með ökkla Drunga laskaðan? Getur Ingvi Þór Guðmundsson haldið Ármanni á floti gegn Stólunum og afsannað hrakspárnar?”
Sumarið gekk vel, var annasamt og skemmtilegt | BRYNJAR MORGAN
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/brynjarmorgan.jpg" alt=">Brynjar Morgan á góðum degi á Hlíðarendavelli í byrjun sumars. MYNDIR AÐSENDAR" />
Íþróttagarpur Feykis að þessu sinni er Brynjar Morgan Brynjarsson en hann er fæddur í janúar á því góða ári 2012. Hefur búið á Skagfirðingabrautinni á Sauðárkróki frá því daginn áður en hann kom í heiminn en þá fluttu foreldrar hans allt sitt hafurtask á Krókinn.]]></description>
Ólseigir Grindvíkingar of stór biti fyrir Stólastúlkur
„Við mættum liði Grindavíkur sem er líklega sterkasta lið deildarinnar í vetur,“ sagði Israel Martín í morgun þegar Feykir spurði hann út í leik Tindastóls og Grindavíkur sem fram fór í gærkvöldi. Liðin voru á toppi deiildarinnar þegar leikurinn hófst (að loknum tveimur umferðum) en Grindavíkurliðið reyndist allt of stór biti fyrir Stólastúlkur í þetta skiptið og létu lið Tindastóls líta illa út á löngum köflum í leiknum. Lokatölur 62-84]]></description>
Stólastúlkur fá sterkt lið Grindavíkur í heimsókn
Toppliðin í Bónus deild kvenna, Tindastóll og Grindavík, mætast í Síkinu í kvöld og hefst veislan kl. 19:15. Liðin hafa unnið báða leiki sína til þessa, líkt og lið KR, og því þarf eitthvað undan að láta í kvöld. Að sjálfsögðu verða borgarar á grillinu fyrir leik og í Tindastólsbúðinni bíða glænýir bleikir bolir í tilefni af bleikum október.]]></description>
Góður sigur í Njarðvík en meiðsli Drungilas áfall
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/1791735761_504065485_18284642635268617_1651986856261337715_n.jpg" alt=">Drungilas meiddist illa í Njarðvíkurleiknum. Feykir sendir honum batakveðjur. MYND: DAVÍÐ MÁR" />
Tindastólsmenn heimsóttu Njarðvík á föstudaginn í fyrstu umferð Bónus deildar karla í körfubolta. Heimaliðið vantaði marga sterka leikmenn en ef eitthvað er öruggt í þessum heimi þá er það það að það vængbrotin Suðurnesjalið geta barið duglega frá sér. Stólarnir voru þó sterkara liðið og þeim tókst að standa af sér þetta bananahýði sem beið þeirra í Njarðvík. Lokatölur 77-85.]]></description>
U21 Landsliðshópur Íslands í hestaíþróttum valinn
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/landslid-21.jpg" alt=">21.árs landsliðið ásamt Sigurbirni Eiríkssyni formanni landsliðsnefndar og Sigvalda Lárusi landslið…" />
Á næsta ári er stóra verkefni landsliðsins HM íslenska hestsins í Rieden í Þýskalandi. Sigvaldi Lárus Guðmundsson landsliðsþjálfari U21 landsliðs Íslands í hestaíþróttum hefur valið landsliðshóp sinn fyrir starfsárið 2026-2027. Hópurinn var kynntur í húsakynnum Icelandair Cargo við Flugvelli í Hafnarfirði. „Þangað ætlum við með okkar allra sterkustu keppnispör. Einungis fimm sæti eru í boði á HM í ungmennaflokki þannig að baráttan um sæti á HM er hörð. U21-landsliðshópurinn er skipaður knöpum sem verða 17-21 árs á keppnisárinu 2027, yngstu knapar hópsins verða því á síðasta ári í unglingaflokki en aðrir knapar í ungmennaflokki,“ segir í tilkynningu frá LH
Nýliðar Fjölnis lítil hindrun fyrir Stólastúlkur
Önnur umferð í Bónus deild kvenna í körfuknattleik kláraðist í gærkvöldi. Þá sótti lið Tindastóls nýliða Fjölnis heim í Dalhús þeirra gulu í Grafarvoginum. Heimastúlkur fengu skell í fyrstu umferð þegar þær mættu Haukum og Stólastúlkur, sem höfðu borið sigurorð af liði Keflavíkur í fyrsta leik, gáfu ekki þumlung eftir í leiknum í gær og unnu afar þægilegan sigur, 67-101.]]></description>
Ungir skagfirskir pílukastarar fóru á kostum
Um helgina tók Pílukastfélag Skagafjarðar þátt í Íslandsmóti félagsliða U18 sem fram fór á Akranesi og stóðu keppendur félagsins sig með glæsibrag. PKS náði þeim frábæra árangri að hafna í 2. sæti í heildarstigakeppni mótsins, þar sem stig allra liða voru lögð saman. Þetta er sérstaklega glæsilegt í ljósi þess hversu ungu og reynslulitlu liði PKS tefldi fram á mótinu.]]></description>
Framtíðin er björt hjá Guðna Bent
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/gudni-.jpg" alt=">Knattspyrnukappinn Guðni Bent Helgason. Mynd: Af netinu." />
Guðni Bent Helgason skrifaði sig í sögubækurnar þegar hann varð yngsti markaskorari í Meistaraflokki í sögu Tindastóls. Guðni kom inn á í hálfleik gegn Víði í lokaleik  tímabilsins og lét heldur betur til sín taka og skoraði ekki eitt, heldur TVÖ mörk, aðeins 14 ára og 218 daga gamall.]]></description>
Evrópustuð á Stólunum
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/1790848597_taiwobadmus.jpg" alt=">Taiwo Badmus gerði strandhögg í Bristol. Þetta er nú reyndar gömul mynd. MYND: DAVÍÐ MÁR" />
Tindastólsmenn kláruðu Evrópurúntinn í gærkvöldi með góðum sigri á liði Bristol Flyers í Brexitlandi. Heimamenn hófu leik af krafti en Stólarnir voru fljótir að grípa til vopna og verja og gerðu nánast út um leikinn með frábærum leik í öðrum leikhluta þar sem þeir héldu heimamönnum í átta stigum. Eftirleikurinn reyndist tiltölulega auðveldur og gátu Stólarnir leyft sér að taka fótinn af bensíngjöfinni á lokakaflanum. Úrslitin 68-85 og Stólar í Evrópustuði.]]></description>
Einn besti varnarleikur okkar frá upphafi
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/1790763291_israelmartin.jpg" alt=">Israel Martín. MYND: DAVÍÐ MÁR" />
Feykir hafði samband við Israel Martín þjálfara í morgun og byrjaði á að spyrja hvað honum fannst um leik Tindastóls og Keflavíkur sem Stólastúlkur unnu í gærkvöldi. „Við höfum verið að aðlaga varnarleikinn okkar vegna þess hve fámennur hópurinn er, og meginmarkmið okkar núna er að spila eins góða vörn og mögulegt er þegar við spilum á hálfum velli. Stelpurnar fylgdu leikskipulaginu nánast fullkomlega. Mikil einbeiting. Sennilega einn besti varnarleikur okkar frá upphafi.]]></description>
Stólarnir spila í Bristol í kvöld
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/1790767640_1749735414_arnarbjornsson.jpg" alt=">Sigtryggur Arnar er klár í slaginn í kvöld. Mynd: Davíð Már." />
Körfuknattleikslið Tindastóls hefur verið á frægðarferð um Evrópu þar sem þeir leika í ENBL-deildinni. Búið er að leggja tvö lið í parket en það eru BC Jonava frá Litháen og Liapaja frá Lettlandi. Í kvöld mæta Stólarnir Bristol Flyers frá Englandi. Leikurinn hefst kl: 18.45 og er sýndur á þeirri góðu rás. TindastóllTV. ]]></description>
Fyrsti sigur Stólastúlkna á liði Keflavíkur í sögunni
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/karfan_stolastulkurfagna.jpg" alt=">Það var ástæða til að fagna í gærkvöldi. Klara, Kolla og Rannveig ásamt Martín þjálfara. Myndin rey…" />
Bónus deild kvenna í körfubolta hófst í gærkvöldi og í Síkinu tóku Stólastúlkur á móti liði Keflavíkur – sem var eina liðið í efstu deild sem Tindastólsliðið hafði aldrei sigrað. En það hlaut að koma að því. Eftir 25 tapleiki í röð í deild, bikar og úrslitakeppni þá áttu Stólastúlkur í fullu tré við gestina úr Keflavík, leiddu nánast allan leikinn þar sem vörnin var þétt og orkan mikil. Lokatölur 73-58 og Stólastúlkur fara því vel af stað í Bónus deildinni.]]></description>