    <language>is</language>
Hvað segja bændur? | Feykir.is
Forréttindi að fá að vera hluti af íslenskum landbúnaði | Sigrún Eva Helgadóttir
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/sigrun-eva.jpeg" alt=">Sigrún Eva Helgadóttir. MYND AÐSEND" />
Sigrún Eva Helgadóttir er bóndi Feykis þessa vikuna. Sigrún býr á Reynistað í Skagafirði með manni sínum og þremur börnum. Sigrún starfar sem bóndi á Reynistaðarbúinu í mjólkurframleiðslu. Þessa dagana er verið að byggja nýtt fjós og er mikil eftirvænting að byrja að mjólka í nýja fjósinu þegar það er klárt.]]></description>
Erum öll úr sömu sveit
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/bondinn.jpg" alt=">Kiddi við mjaltarþjóninn. MYND AÐSEND" />
Það er Kristinn Sævarsson sem tekur við bóndaspjallinu af nágranna sínum, Davíð á Egg. Nú lætur blaðamaður líta út fyrir að þetta sé einhver áskorendapenni sem þetta er alls ekki heldur ræður tilviljunin ein. Kristinn er bóndi á Hamri í Hegranesi ásamt spúsu sinni, Ásdísi Helgu Arnarsdóttur. Þau eru bæði menntaðir búfræðingar frá Hvanneyri, Kristinn lærði líka vélstjórn og járnsmíði og Ásdís er að ljúka námi sem viðurkenndur bókari. Þau eiga börnin Eyþór Smára tíu ára, Ingunni Ósk sjö ára og Sævar Helga tveggja ára. Foreldrar Kristins búa líka á jörðinni en það eru þau Sævar Einarsson og Unnur Sævarsdóttir.]]></description>
Ekki bjartsýn en vongóð
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/hvadsegjabaendur_egg.jpg" alt=">Davíð Logi við eldhúsborðið. MYND AÐSEND" />
Davíð Logi Jónsson er fæddur og uppalinn Blöndhlíðingur, sonur hjónanna í Réttarholti, Auðar og Jóns. Davíð er í dag bóndi á Egg í Hegranesi og giftur Emblu Dóru Björnsdóttur. Saman eiga þau dæturnar Auði Fanneyju sem er í 5. bekk í Árskóla og Guðrúnu Heklu sem er í 2. bekk. Davíð og Embla eru með um 60 mjólkandi kýr, nokkur hross og 40ha skóg. Að auki er Embla í hlutastarfi í Farskólanum á Sauðárkróki. Fyrst liggur beinast við að spyrja hvernig gengur í sveitinni.]]></description>
Flest í þokkalegri rútínu 
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/bessi-.jpg" alt="> Bessi ásamt einum af afastrákunum sínum. MYND TEKIN AF FACEBOOK" />
Bessi Freyr Vésteinsson í Hofsstaðaseli, nánar tiltekið í Viðvíkursveit í Skagafirði, býr þar ásamt konu sinni Sólrúnu Ingvadóttur. „Einnig búa hér sonur okkar Ingvi Þór Bessason og kona hans Fanndís Viðarsdóttir ásamt sonum þeirra Braga Frey sex ára, Bjarka Viðari fjögurra ára og Birki Þór tveggja ára.“ Öll vinna þau við reksturinn auk 4-6 starfsmanna, en það fer aðeins eftir árstíma. Feykir heyrði í Bessa til að taka stöðuna í sveitinni en viðtalið var birt í fréttablaðinu Feyki í byrjun febrúar á þessu ári. ]]></description>
Hestarnir viku fyrir kálfunum 
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/thumbnail_img_5876.jpg" alt="> Helgi Fannar, Harpa Ósk og börnin þeirra Ægir Freyr og Hugrún Ída. MYNDIR AÐSENDAR" />
Helgi Fannar Gestsson býr á Flugumýri í Blönduhlíð með sambýliskonu sinni Hörpu Ósk Jóhannesdóttur og börnum þeirra, þeim Ægi Frey og Hugrúnu Ídu. Helgi með menntun í vélvirkjun og vélstjórn frá FNV og búfræðingur frá LBHÍ. Harpa er dýralæknir og vinnur nú að doktorsverkefni sínu við LBHÍ. „Við erum að leigja búreksturinn hér á Flugumýri þar sem er tveggja róbóta fjós og örfáir hestar. Við erum með um 83 árskýr og kvígu uppeldi sem fylgir því eða um 160 nautgripi í það heila. Hrossin eru 37 talsins (ég veit þetta er of nákvæm tala af hrossabúi í Skagafirði).“ Þau hjónaleysin vinna aðeins út frá búinu, Harpa fer í einstaka dýralækna vitjanir og Helgi fer í rúning og vélaverktöku.]]></description>
Kýrnar afskaplega skemmtilegt samstarfsfólk
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/thumbnail_thumbnail_img_8955.jpg" alt=">Katharina Sommermeier. MYNDIR AÐSENDAR" />
Katharina Sommermeier (Rína) býr í Garðakoti í Hjaltadal með Jakobi Smára Pálmasyni sem er einmitt frá Garðakoti og tveimur börnum. Rína er landfræðingur, framhaldsskólakennari og sjálfmenntuð bóndína. Rína og Jakob tóku við mjólkurbúskapnum í Garðakoti 2017. „Hér er einn mjaltarþjónn með 74 árskýr og uppeldi, nokkur hross og einn köttur í langtímapössun.“]]></description>
Dalamaðurinn í Hrútafirðinum
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/391735756_10168229844735026_5010859208384946974_n.jpg" alt=">Ingimar á Kjörseyri. MYND AÐSEND" />
Ingimar Sigurðsson býr á Kjörseyri í Hrútafirði vestanverðum. Er fráskilinn, býr einn og er með um 500 fjár. Ingimar er rafmagnstæknifræðingur að mennt og er löggildur rafverktaki. Vinnur sem rafvirki meðfram búskapnum eins og hann hefur tíma til. Á eina dóttur og tvö fósturbörn sem hjálpa til í sveitinni þegar þau geta.]]></description>
Kláruðu heyskap í október
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/1731066710_unknown-1.jpeg" alt=">Fjölskyldan í Glaumbæ 2. MYND AÐSEND" />
Þorbergur Gíslason og Birna Valdimarsdóttir eru kúabændur í Glaumbæ 2 í Skagafirði og búa þar ásamt börnunum þrem þeim, Valdimar Árna, Vigni Frey og Kristjönu Dís. Mjólkurkýrnar eru 60 og gripauppeldið telur 100. Ef allt er talið með þá eru merarnar sjö, hænunar tíu og einn köttur. Birna er menntuð í háriðn og Þorbergur húsasmíðameistari en hafa verið bændur síðan þau keyptu búið.]]></description>
Snati smaladróni snýr á féð
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/thumbnail_img_3617.jpg" alt=">Högni Elfar Gylfason.MYND AÐSEND" />
Hjónin Högni Elfar Gylfason og Monika Björk Hjálmarsdóttir eru sauðfjárbændur á Korná í Lýtingsstaðahreppi hinum forna í Skagafirði. Hjá þeim býr Birna Hjördís Jóhannesdóttir móðir Bjarkar. Björk er búfræðingur frá Hólaskóla, en Högni er vélfræðingur og vélvirkjameistari frá VMA og Vélskóla Íslands. Þau búa með vel á fjórða hundrað fjár ásamt fáeinum merum og reiðhestum. Högni grípur í fjölbreytileg verkefni utan bús þegar tími gefst og þá aðallega fyrir bændur í Skagafirði, en Björk sér um bústörfin á meðan.]]></description>
Lifi íslenskur landbúnaður
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/1725533450_unknown-4.jpeg" alt=">Atli Már með eldri sonarson sinn Veigar Má.MYND AÐSEND" />
Atli Már Traustason er bóndi og frjótæknir á Syðri Hofdölum í Skagafirði. Hann er stúdent frá FNV og búfræðingur frá Hvanneyri, giftur Klöru Helgadóttur og eiga þau þrjú börn og tvö barnabörn. Á Syðri Hofdölum er rekið blandað bú,80 mjólkurkýr, sem stefna senn í 100, og uppeldi sem því fylgir og einnig talsverð nautakjötsframleiðsla,alls eru um 300 nautgripir á búinu.]]></description>
Tóku fyrri sláttinn með 3ja daga áhlaupi 
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/runar-4.jpg" alt=">Rúnar í réttum með dóttur sinni, Lilju Björgu.MYND AÐSEND" />
Rúnar Aðalbjörn Pétursson, býr í Hólabæ í Langadal ásamt Auði Ingimundardóttur sambýliskonu og börnunum þeirra Pétri Inga og Lilju Björgu. Rúnar er starfandi bóndi með búfræðimenntun og sveinspróf í húsasmíði. Þau búa á blönduðu búi með tæplega 40 mjólkandi kýr og 400 vetrarfóðraðar kindur. Ásamt því vinnur Auður sem ráðunautur hjá Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins.]]></description>
Bjart framundan hjá sauðfjárbændum
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/1725018970_unknown-1.jpeg" alt=">Viðbót við fjárhúsin í byggingu. MYND AÐSEND" />
Næsti bóndi er Birgir Þór Haraldsson sem er fæddur og uppalin á Sauðárkróki og býr með Hörpu Birgisdóttur frá Kornsá og saman eiga þau tvo drengi þá Ágúst Inga og Bjarka Fannar. Í dag eru þau bændur á Kornsá í Vatnsdal og þar eru 600 vetrarfóðraðar ær og 80 hross. Birgir lauk námi í grunndeild húsasmíða við FNV og Búfræðiprófi frá LBHÍ.]]></description>
Væru ekki sauðfjárbændur ef þau væru ekki bjartsýn
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/1725010423_unknown-1.jpeg" alt=">Ingveldur og yngri börnin tvö. MYND AÐSEND" />
Áfram tökum við stöðuna á bændum og nú eru það hjónin Ingveldur Ása og Jón Ben eru bændur á Böðvars-hólum í Húnaþingi vestra og búa þar ásamt börnum sínum þrem Margréti Rögnu, Klöru Björgu og Sigurði Pétri. Þau hjónin eru bæði búfræðingar frá Hvanneyri og Ingveldur er líka þroskaþjálfi. Þau eru sauðfjárbændur og reka hundahótel og vinna þau bæði utan bús Jón við verktöku og Ingveldur vinnur í leik og grunnskólanum á Hvammstanga.]]></description>
Framtíðin björt á Syðsta-Mói
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/kristofer-og-fjolskylda.jpeg" alt=">Kristófer og Sara með dætur sínar tvær. MYND AÐSEND" />
Feykir setti sig í samband við nokkra bændur og tók stöðuna á hvernig búskapurinn gengi í tíðinni og Kristófer Orri Hlynsson sem býr á Syðsta-Mói í Fljótum ásamt Söru Katrínu konunni sinni og tveimur dætrum er fyrstur til svars. Þau erum með um 300 fjár nokkrar holdakýr og hross. Samhliða búskapnum starfar Kristófer á kúabúinu Hlíðarenda í Óslandshlíð og Sara í útibúi KS Ketilási, en hún er í fæðingarorlofi þessar stundir.]]></description>
Heyskapartíð verið erfið síðan um miðjan júlí
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/isveitinni_birgirthor.jpg" alt=">Í sveitinni. Í Feyki vikunnar eru einnig viðtöl við fjóra bændur á Norðurlandi vestra og þrátt fyri…" />
„Eins og alltaf eru aðstæður misjafnar og staða bænda því misjöfn. Jú, árferði hefur verið óvenjulegt á þessu svæði í vor og sumar. Það var víða mikill klaki í jörð sem fór mjög seint og gerði bændum erfitt fyrir með vorverk s.s. jarðvinnslu og sáningu í flög sem varð fyrir vikið óvenju seint á ferðinni. Það var líka fremur kalt í veðri og úrkomusamt sem olli því að jörðin hlýnaði hægt og spretta grasa hæg. Sláttur hófst því heldur seinna en flest undanfarin ár. Spretta hefur hins vegar almennt verið góð þegar liðið hefur á sumar og er háarspretta góð,“ sagði Eiríkur Loftsson, ráðunautur hjá RML, þegar Feykir spurði hann út í stöðuna hjá bændum en slæm tíð hér Norðanlands hefur verið talsvert í umræðunni og þá áhrif hennar á sprettu og slátt.]]></description>