    <language>is</language>
Ljósmyndavefur | Feykir.is
    <link>https://www.feykir.is</link>
Dagskrá Sæluviku og myndir frá setningunni
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/img_1684.jpg" alt=">Tónlistarfólkið góða sem spilaði við setninguna. MYNDIR: ÓAB" />
Sæluvikan hefur farið vel af stað og áfram heldur veislan í dag. Að vísu hefur áður auglýstum tónleikum Kvennakórsins Sóldísar sem fara áttu fram í kvöld á Hofsósi verið frestað og verða haldnir 21. apríl. Í dag verður opið í Safnahúsi Skagfirðinga þar sem hægt að skoða sýninguna í tilefni af 100 ára afmæli Indriða G. Þorsteinssonar og þá er opið í Vatnaveröld, smábátasafninu á Húsabakka frá kl. 13. Hlaupahópurinn 550 rammvilltar og Fætur toga verða með kynningu og hlaupaæfingu kl. 16:30 í FNV.]]></description>
Glæsileg árshátíð Kaupfélags Skagfirðinga
Árshátíð Kaupfélags Skagfirðinga var haldin sl. laugardagskvöld og er alveg óhætt að segja að öllu hafi verið tjaldað til þegar Síkinu á Sauðárkróki var bókstaflega breytt í höll. Gestir mættu á rauða dreg-ilinn og ekki nokkur leið að þekkja íþróttahúsið og ætlar blaðamaður að leyfa sér að fullyrða að svona hafi Síkið aldrei litið út.]]></description>
Myndir frá réttarstörfum og smalamennsku í Húnaþingi
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/aqy5zdvo.jpeg" alt=">Á leið í Víðidalstungurétt. MYNDIE: EYDÍS ÓSK" />
Það styttist óðfluga í fyrsta vetrardag en við getum nú varla verið annað en þakklát fyrir að mestu yndælt sumarveður sem oftar en ekki var bæði stillt og milt. Ef veðurspár næstu daga eru skoðaðar er ekki annað að sjá en að sæmilega milt veður sé í kortunum og skríður jafnvel yfir tíu gráðurnar um helgiina. Smalamennsku er að mestu lokið og almenn réttarstörf en Feykir falaðist eftir myndum hjá Eydísi Ósk sem myndaði af lipurð smalamennsku og réttarstörf á Vatnsnesinu.]]></description>
Ólsarar höfðu betur á Laugardalsvellinum
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/g-dtmp13.jpeg" alt=">Lið Tindastól í gærkvöldi. MYNDIR: DAVÍÐ MÁR OG FÉLAGAR" />
Tindastóll og Víkingur Ólafsvík mættust í gærkvöldi í útslitaleik Fótbolta.net bikarsins og var leikið á Laugardalsvelli. Það má kannski segja að helgin hafi verið knattspyrnufólki í Tindastóli nokkuð erfið en það fór svo að Ólsarar höfðu betur í leiknum og í dag varð það síðan ljóst að kvennalið Tindastóls fellur um deild eftir að vinir okkar í Fram unnu sinn leik gegn FHL.]]></description>
Hátt í 200 Skagfirðingar mættir á EuroBasket
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/eurobasket_01.jpeg" alt=">Lítill en göfugur hluti Skagfirðinga sem styðja lið Íslands á EuroBasket. Myndina á Ágúst Guðmundss…" />
Íslenska landsliðið í körfubolta hefur staðið sig með ágætum á EuroBasket sem fram fer m.a. í Póllandi þessa dagana. Góðar frammistöður hafa þó ekki enn skilað langþráðum sigurleik á stórmóti. Réttlætiskennd Íslendinga var síðan stórlega misboðið á sunnudag þegar Ísland varð að lúffa fyrir vanhæfu dómaratríói sem virtist hafa það eina markmið að tryggja pólsku heimaliði sigurinn – sem þeim tókst því miður. Feykir hafði samband við Palla Friðriks sem er á staðnum auk hátt í 200 Skagfirðinga.]]></description>
Hlaupið með bros á vörum í sjóðheitu sumarveðri
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/unknown-30.jpeg" alt=">Eldhressa hlaupadrottningar fyrir framan veitingahúsið Sauðá í Sauðárgili á Sauðárkróki. MYNDIR FRÁ…" />
Þær stöllurnar í 550 rammvilltar sem stóðu fyrir Sumarkjóla- og búbbluhlaupi á Sauðárkróki nú síðastliðinn laugardag virðast vera með einhvern spes samning við veðurguðina. Þetta var í annað skiptið sem þessi sprellfjörugi og búbblandi viðburður er haldinn á Króknum og í bæði skiptin hafa sumarkjólarnir verið einmitt rétti klæðnaðurinn miðað við veður og hitastig.]]></description>
Betri tíð með blóm í haga
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/505164634_10227185530441049_6201984859881165015_n.jpg" alt=">Myndað af Lágheiði og sér niður í Ólafsfjörð. MYNDIR: HALLDÓR GUNNAR" />
Norðanskotið sem gekk yfir í síðustu viku varð víða töluvert meira en skot. Verstu spár virtust gera ráð fyrir að það stæði frá mánudegi til miðvikudags. Ekki var reiknað með mikilli snjókomu og ef eitthvað þá átti veðrið að vera verst austan Tröllaskaga. En eins og stundum áður þá stóðst þetta ekki alveg; skotið stóð yfir í fimm daga og í Fljótum snjóaði eins og í þokkalegum vetrarmánuði. „Ekki hefði mér dottið í hug að sjá nýfallin snjóflóð eða snjóspýjur 10. júní,“ skrifar tíðindamaður Feykis í Fljótum á Facebook.]]></description>
Myndasyrpa frá brautskráningu FNV
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/fnv_brautskraning2025_04.jpg" alt=">Menn með klassíska djókið á hreinu. MYNDIR: PETUR OG ÓLI" />
Það var hinn merkilegasti brautskrárningardagur við Fjölbrautaskola Norðurlands vestra í gær eins og sagt var frá hér á Feykir.is í dag. Að venju var viðburðurinn myndaður í bak og fyrir, þrír ljósmyndarar mættir á svæðið og um 1800 myndir sem þarf að rúlla í gegnum. Hér má finna smá bragð af deginum í snefilmagni.]]></description>
Arney og Lydía hlutu viðurkenningar á Hólum
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/holasyning2025_ckollagr-00.jpg" alt="<Lydía og Arney með viðurkenningarnar sínar. MYNDIR: KOLBRÚN GRÉTARSDÓTTIR" />
Síðastliðinn laugardag fór fram reiðsýning brautskráningarnema til BS prófs í reiðmennsku og reiðkennslu við Háskólann á Hólum. Tíu nemendur útskrifast frá skólanum með BS próf í reiðmennsku og reiðkennslu nú í vor. Brautskráning fer fram miðvikudaginn 6.. júní í hátíðarsal skólans.]]></description>
Hitabylgja og heiðskýr himinn yljar landsmönnum
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/09_vididalur_02.jpg" alt=">Við Bergárfoss í Víðidal. MYNDIR: RÓBERT DANÍEL" />
Það hefur verið einmunatíð upp á síðkastið og aldrei þessu vant hafa allir landsmenn geta glaðst saman því góðviðrið hefur ekki skilið neinn útundan í þetta skiptið. Hlýjast var fyrir austan en þar var slegið hitamet í maí, ábyrgur mælir sýndi 26,8 gráðu hita nú fyrir helgi og sennilega hafa aðrir mælar sýnt miklu meiri hita.]]></description>
Myndaveisla úr Síkinu í boði Sigurðar Inga
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/leikur3_csigurduringi_mynd06.jpg" alt=">Arnar Björnsson með enn eina skutluna, NTBD; SIGURÐUR INGI" />
Af því að lífið er körfubolti - ekki saltfiskur (sem betur fer) – þá er rétt að bjóða lesendum Feykis upp á aðeins meira af leiknum í gær. Sigurður Ingi ljósmyndari var að sjálfsögðu í Síkinu og Feykir fékk að velja 20 frábærar myndir í góða myndamöppu til birtingar.]]></description>
Líf og fjör á öskudegi
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/481298595_1168805365254133_8612857636328433359_n.jpg" alt=">Það er vissara að hafa með sér sterka poka í nammiröltið. MYNDIR: FRÍÐA & SIVA" />
Dagarnir sem lýsa upp skammdegið eru senn á enda. Við erum að sjálfsögðu að tala um bolludag, sprengidag og öskudag. Það verður reyndar að viðurkennast að það er til fólk sem er bara alls ekki hrifið af þessum dögum. En yngstu kynslóðirnar eru nú jafnan nokkuð sáttar við öskudaginn og hann var einmitt í dag.]]></description>
Svipmyndir frá Rökkurgöngu í Glaumbæ
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/glaumbaer-068_resized.jpg" alt=">Það voru margir forvitnir um Rökkurgöngu Byggðasafns Skagfirðinga. MYNDIR: JÓNDÍS INGA HINRIKSDÓTTI…" />
Rökkurganga Byggðasafns Skagfirðinga fór fram í Glaumbæ sunnudaginn 1. desember. Hús safnsins voru skreytt hátt og lágt og eins og hefð er fyrir þá var sögustund í baðstofunni sem var vel sótt að venju. Þá komu félagar úr þjóðháttafélaginu Handraðanum, konur úr Pilsaþyt og félagar úr Kvæðamannafélaginu Gefjunni í heimsókn og voru með jólastarfsdag í gamla bænum. Andrúmsloftið í bænum var eins og við jólaundirbúning um 1900.]]></description>
Íslenskar göngudrottningar taka Kóngaveginn með trompi
Fyrr í sumar hélt gönguhópur sem kallar sig Föruneyti Írisar í vikuferð til Noregs, með það að markmiði að ganga hluta af gamalli póst-og þjóðleið sem kallast Kongeveien over Filefjellet á tungu þarlendra. Skemmst er frá að segja að ferðin heppnaðist vel og göngu-dagarnir þrír, ásamt dvöl í einstaklega fallegu umhverfi í Lærdal, Aasane og Bergen, heppn-uðust vel. Komu konurnar þrettán sem tóku þátt endurnærðar til síns heima viku síðar.]]></description>
Fjör í bakgarðinum hjá Eika og Bergrúnu á Menningarnótt
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/0e437e4b-4d2d-4be5-bdbf-2d251394d65f.jpg" alt=">Allir í stuði! MYNDIR FRÁ EIKA OG BERGRÚNU" />
Menningarnótt var í Reykjavík í gær og voru tónleikar og gigg um alla borg. Talið er að um 100 þúsund manns hafi mætt á Austurvöll þar sem Rás2 hélt stórtónleika. Í bakgarðinum hjá Eika Hilmis og Bergrúnu Ingimars var slegið upp tónleikum sem kölluðust Niður hlíðar héðan og segir Bergrún að um 100-130 manns hafi verið í garðinum þegar mest var.]]></description>
Vatnavextir og skriðuföll á Norðurlandi vestra
Óvenju mikið vatnsveður hefur verið á Norðurlandi síðustu tvo daga og regninu hafa fylgt vatnavextir og skriðuföll. Feykir sagði frá því í gær að Siglufjarðarvegi hefði verið lokað milli Ketiláss og Siglufjarðar og er hann enn lokaður. Skriða féll í Hofsá rétt ofan göngubrúarinnar á Hofsósi og skriður hafa fallið á Reykjaströnd og í Vatnsdal.]]></description>
Geggjuð Húnavaka!
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/451684736_10159989823205108_829391807185875169_n.jpg" alt=">Froðurennibrautin er sígild. MYNDIR: KRISTÍN INGIBJÖRG LÁRUSDÓTTIR" />
Eins og sagt hefur verið frá í Feyki var dagskrá Húnavöku þéttskipuð frá miðvikudegir og fram á sunnudag og allir gátu fundið eitthvað við sitt hæfi. Að sögn Kristínar Ingibjargar Lárusdóttur viðburðastjórnanda þá tókst Húnavakan geggjað vel, þó hún hefði verið til í betra veður á laugardeginum en þá þurfti að færa einhverja viðburði undir þak.]]></description>
Fjöldi íslenskra fjárhunda heimsótti Byggðasafn Skagfirðinga
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/img_2281.jpg" alt="<Það fór vel á með mönnum og dýrum. MYND: BSK" />
Í tilefni af afmæli enska aðalsmannsins Mark Watson (1906-1979) stóð Byggðasafnið fyrir dagskrá í Glaumbæ sl. fimmtudag í miklu blíðskaparveðri. Watson var mikill Íslandsvinur og eigum við honum margt að þakka, þar með talið rausnarleg peningagjöf til viðgerða á gamla torfbænum í Glaumbæ árið 1938 sem átti sinn þátt í að bærinn hefur varðveist. Watson hefur jafnframt verið titlaður bjargvættur íslenska fjárhundsins og er afmælisdagur hans "Dagur íslenska fjárhundsins".]]></description>
ÓB-mótið heppnaðist vel þó veðrið hafi strítt stúlkunum
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/img_2046.jpg" alt=">Valsstúlkur taka á móti verðlaunapeningum á ÓB-mótinu. MYNDIR: ÓAB" />
Um liðna helgi fór fram á Sauðárkróki árlegt ÓB-mót í fótbolta á vegum knattspyrnudeildar Tindastóls. Þar komu saman stelpur í 6. flokki hvaðanæva að af landinu og voru 116 lið skráð til keppni og keppendur rúmlega 700 talsins.]]></description>
Hretið virðist ekki hafa skaðað æðarvarpið að ráði
Æðarvarpið á Hrauni var gengið í vikunni um leið og fært var eftir hretið sem virtist ekki hafa skaðað að ráði. Í færslu á Facebook segir Gunnar Rögnvaldsson að fuglinn hafi verið spakur og dúnninn ekki blautur umfram venju.]]></description>