    <language>is</language>
Vestur-Húnavatnssýsla | Feykir.is
„Ég er óskaplega þakklát fyrir hversu vel fólkið mitt tekur þessari stöðu“
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/1793109908_unnurvalborg_2025.jpg" alt=">Unnur Valborg sveitarstjóri í Húnaþingi vestra. MYND AF NETINU" />
Feykir hefur birt nokkrar fréttir vegna flutnings starfsfólks Ráðhússins á Hvammstanga í Félagsheimilið á Hvammstanga en flutningurinn kom til vegna þess að loftgæði í Ráðhúsinu voru óviðunandi og standið á húsinu mun verra en talið var. Feykir sendi Unni Valborgu Hilmarsdóttur sveitarstjóra nokkrar spurningar þar sem forvitnast var um ástandið.]]></description>
Árangur LEB er ótvíræður - en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm - Björn Snæbjörnsson skrifar
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/bjornsnaebjornsson.webp" alt=">Björn Snæbjörnsson formaður félags eldri borgara. Mynd: Auðunn Níelsson" />
Landsamband eldri borgara (LEB) hefur á síðustu fimm árum náð mikilvægum árangri í réttinda- og kjarabaráttu eldra fólks. Það er ástæða til að fagna þeim sigrum sem unnist hafa. Þeir eru ekki sjálfsagðir og komu ekki af sjálfu sér. Þeir eru afrakstur þrotlausrar baráttu, samstöðu og skýrrar kröfugerðar gagnvart stjórnvöldum. Núverandi stjórnvöld hafa sýnt okkur velvilja og það ber að þakka.]]></description>
Oddvitinn bregður á leik
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/s-lindal.png" alt=">Sigurður í hlutverki kennarans. Mynd: Skjáskot af Rúv." />
Sigurður Líndal Þórisson oddviti sveitarstjórnar í Húnaþingi vestra kann ýmislegt fyrir sér. Margir vita að Sigurður er leiklistarmenntaður og hefur verið virkur leikstjóri um árabil og sett upp fjölmörg leikrit, aðallega í Húnaþingum. Ekki hefur Sigurður verið áberandi á hvíta tjaldinu eða skjánum en nú ber svo við að hann hefur birtst í sjónvarpsþáttaröðinni; Fleiri Pabbahelgar eftir Nönnu Kristínu Magnúsdóttur sem sýnd er á Rúv þessar vikurnar. Sigurður er þarna reffilegur í hlutverki afleysingarkennara.]]></description>
Ríflega 100 umsóknir í Uppbyggingarsjóð Norðurlands vestra
Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra lokaði í síðustu viku fyrir styrkumsóknir vegna verkefna ársins 2027. Fram kemur í frétt á vef SSNV að alls bárust 104 umsóknir og var samtals sótt um 200.659.847 krónur. Alls reyndust 57 umsóknir vera vegna menningar- og samfélagsverkefna en að öðru leyti skiptust þar þannig að tíu umsóknir voru vegna stofn- og rekstrarstyrkja á sviði menningar og 37 umsóknir vegna atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefna.]]></description>
Pere og Fede yfirgefa lið Kormáks Hvatar
Fótboltavertíðinni á Íslandi lauk nú um liðna helgi en þá var síðasta umferðin spiluð í Bestu deild karla. Þar gerðust þau undur að lið KA féll niður í Lengjudeildina en vinir þeirra í Þór héldu sæti sínu. Það er sjaldan ró og friður í fótboltanum og vertíðinni ekki fyrr lokið en farið er að huga að næsta tímabili. Á Aðdáendasíðu Kormáks Hvatar má sjá að Húnvetningar verða að horfa á eftir þeim Pere Belmonte og Fede Russo yfir í lið Hauka í Hafnarfirði sem tryggðu sér sæti í Lengjudeildinni nú í haust.]]></description>
Laxveiði jókst um 35% á landinu í sumar – Húnvetnsku árnar koma vel út
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/1793016426_laxa_asum.jpg" alt=">Frá Laxá á Ásum. Mynd: Aðsend." />
Heildarfjöldi stangveiddra laxa í sumar var um 46.300 fiskar, sem er um 35 % meiri veiði en sumarið 2025 og um 12% yfir árlegri meðalveiði áranna 1974-2025. Laxveiðin í sumar var um 12.100 löxum meiri en í fyrra. Þetta kemur fram í bráðabirgðatölum Hafrannsóknarstofnunar. Aukning í laxveiði er í öllum landshlutum, þar á meðal í sjö helstu laxveiðiám Húnavatnssýslna. Þar jókst laxveiðin um rúmlega 50% eða um 1.385 laxa.]]></description>
Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… | Sigríður Framdalz Ólafsdóttir skrifar
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/sigridurframdalz.jpg" alt=">Sigríður Framdalz. MYND AÐSEND" />
… varð mér á orði í gær eftir að hafa fyllt bílinn minn af eldsneyti. Eldsneyti sem er á innan við ári komið upp í sama verð og það var á þegar eldsneytisgjöld voru inni í verðinu. Núna borga ég sem sagt sama verð og áður, þökk sé meðal annars hækkun kolefnisgjalds, og svo greiði ég áætlað kílómetragjald einu sinni í mánuði til viðbótar.]]></description>
Ég myndi keppa við Indriða afa í spretthlaupi
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/herdis-erla-logadottir.jpg" alt=">Herdís Erla og Griffla í góðum gír. Mynd: Eydís Ósk" />
Íþróttagarpur í síðasta tölublaði Feykis var Herdís Erla Elvarsdóttir sem verður 14 ára 29. desember n.k. og er búsett á Hvammstanga. Hestamennskugen standa að Herdísi í báðar ættir en foreldrar hennar eru Fanney Dögg Indriðadóttir frá Grafarkoti í vestur Hún. og Elvar Logi Friðriksson frá Varmalæk í Skagafirði. Herdís Erla hefur því alist upp með hestum og er núna farin að láta að sér kveða á keppnisvellinum.]]></description>
Starfsmenn LNV leggjast gegn sameiningu lögregluembætta
Samkvæmt frétt á vef RÚV hafa starfsmenn Lögreglustjórans á Norðurlandi vestra skilað inn umsögn um frumvarp til laga um breytingar á lögreglulögum. Þar kemur fram að þeir leggjast gegn þeim hugmyndum um sameiningu og skipulag lögregluembætta sem birtast í frumvarpsdrögum. Það er mat starfsmanna að ekki hafi verið sýnt fram á nauðsyn þess að fækka lögregluembættum úr níu í þrjú eða að fyrirhuguð sameining muni bæta löggæslu á Norðurlandi vestra.]]></description>
Tölum saman | Leiðari 40. tölublaðs Feykis
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/islenskkjotsupa.jpg" alt=">Íslensk kjötsúpa. MYND AF NETINU" />
Leiðarinn er skrifaður á sunnudagskvöldi og suðvestanvindurinn gnauðar á herbergisglugganum. Það er búið að vera hvasst í allan dag og verður það væntanlega eitthvað áfram. Og mikið lifandi skelfing er rokið nú leiðinlegt.]]></description>
Margt smátt | Sigurður Líndal Þórisson skrifar
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/1792763236_hunathing_sigurdurlindal.jpg" alt=">Sigurður Líndal Þórisson. MYND AÐSEND" />
Margt smátt gerir eitt stórt. Þetta lærðum við flest þegar við eignuðumst fyrsta sparibaukinn. Ríkisstjórnin hefur lært þessi einföldu sannindi líka, og beitir þeim af hörku gegn heimilum landsins.Hækkanirnar og skerðingarnar sem skella á fólki árið 2027 virðast smávægilegar hver fyrir sig. Í frumvarpinu fer kílómetragjaldið úr 6,95 krónum í 8,05 á hvern ekinn kílómetra, krónutölugjöldin hækka um 5,2% og barnabætur standa í stað þriðja árið í röð. Skattleysismörkin fá enga raunhækkun og vaxtabæturnar falla niður. Króna hér, nokkur þúsund þar. Klink og smáræði. En þetta tínist til.]]></description>
Vilhelm Jensen hefur hafið störf hjá SSNV
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/ssnv_vilhelm.jpg" alt=">Vilhelmi Ívarsson Jensen starfar hjá SSNV á Sauðárkróki. MYND AF SSNV.IS" />
Vilhelm Ívarsson Jensen hefur verið ráðinn verkefnastjóri fjárfestinga og atvinnuþróunar hjá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og efur hann þegar tekið til starfa. Hann hefur aðsetur á starfsstöð SSNV á Sauðárkróki og með ráðningu hans eru starfsmenn samtakanna nú sjö.]]></description>
Lögreglan á Norðurlandi vestra – Vegna rjúpnaveiða
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/1792682627_rjupa.jpg" alt=">Rjúpnaveiðar að hefjast. Mynd: Facebook" />
Hinar árlegu rjúpnaveiðar eru fram undan og veiðimenn bíða þess með tilhlökkun að komast til fjalla, njóta útiverunnar og takast á við þá áskorun sem rjúpnaveiðar fela í sér. Veiðitímabilið á Norðurlandi vestra er frá 23. október – 17. nóvember. Samkvæmt lögum nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum þurfa veiðimenn að fara eftir þeim skilyrðum sem gilda um veiðar á villtum fuglum. Þeir sem stunda rjúpnaveiðar þurfa að hafa gilt veiðikort og bera það með sér á veiðum. Einnig þarf að hafa meðferðis skotvopnaskírteini.
Mótvindur // Fundur um ferðaþjónustu í Norðvesturkjördæmi // Í dag kl. 17.00
Samtök ferðaþjónustunnar, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða boða til mikilvægs fundar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi.
Fundurinn fer fram fimmtudaginn 22. október í Hjálmakletti, Menningarhúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi, og stendur á milli kl. 17.00 - 19.00. Fundurinn verður jafnframt sendur út í beinni útsendingu á vef SAF.
Húnaþing vestra hlaut viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026
Húnaþing vestra hlaut nýverið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. „Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem við höfum verið á sem er að skapa vinnustað þar sem við höfum öll jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif,“ segir í tilkynningu á vef Húnaþings vestra.]]></description>
Hálkan leynist víða og vissara að fara varlega
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/screenshot-2026-10-22-at-08.40.31.png" alt=">Umferðarkort Vegagerðarinnar frá því um kl. 8:30 í morgun. SKJÁSKOT" />
Vegfarendur á Norðurlandi vestra þurfa að hafa varann á sér þar sem víða er töluverð hálka og ekki gott að sjá hana – mögulega svokallaður svartís. Þannig er til að mynda mjög hált á Sauðárkróksbraut milli Varmahlíðar og Sauðárkróks og á Sauðárkróki og sömuleiðis er varað við hálku á Öxnadalsheiði. Þegar þetta er skrifað er unnið að mokstri á Þverárfjallsvegi en skaplegra færi er í Húnavatnssýslum þó þar megi eiga von á hálkublettum.]]></description>
Skúnaskrall – Öll saman
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/2bab3981-524b-418b-82b8-dc7101d87227.jpg" alt=">Páll Óskar að trylla Varmhlíðinga í Miðgarði. Mynd: Friðrik Þór" />
Barnamenningarhátíð Norðurlands vestra, öðru nafni Skúnaskrall, hófst í dag og verður mikið um dýrðir. Hátíðin er samstarfsverkefni allra sveitarfélaganna í landshlutanum og eitt af áhersluverkefnum SSNV. Hún hlaut veglegan styrk úr Barnamenningarsjóði og nýtur auk þess stuðnings Samfélagssjóðs Landsvirkjunar.
Í tilefni Bleika dagsins | Stefanía Hjördís Leifsdóttir skrifar
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/stafaniahjordis_bleikurdagur.jpg" alt=">Stefanía Hjördís. MYND AF FACEBOOK" />
Í Bleikum október langar mig að minna á mikilvægi þess að fara í reglulega skimun, fylgjast með breytingum á líkamanum og hlusta á eigið innsæi ef maður hefur á tilfinningunnini að eitthvað sé að. Í mínu tilfelli fann ég ekki hnút í brjóstinu heldur verk, ekki var talin þörf á nánari rannsókn og hálft ár leið þar til krabbameinið kom í ljós við hefðbundna skimum. Einskær heppni var að krabbameinið var ekki búið að dreifa sér. Þar getur skilið milli feigs og ófeigs.]]></description>
Starfsfólk Ráðhússins tekið til starfa í Félagsheimili Hvammstanga
<img src="https://www.feykir.is/static/news/sm/hunathing_felagsheimili.jpg" alt=">Félagsheimilið Hvammstanga hýsir nú starfsemi Ráðhúss Húnaþings vestra. MYND AF HÚNAÞING.iS" />
Líkt og komið hefur fram í Feyki þá var nýlega ákveðið að flytja starfsemi Ráðhúss Húnaþings vestra tímabundið í Félagsheimilið Hvammstanga þar sem loftgæði í húsinu töldust óviðunandi. Starfsemi Ráðhúss hefur nú þegar opnað á neðri hæð í neðri hæð. Gengið er inn um vestur inngang (Samstöðugangurinn).]]></description>
Hvaða áhrif hefur fjárlagafrumvarpið á þitt heimili? | Fréttatilkynning
Í dag opnar Framsókn vefinn utreikningur.is. Þar getur fólk fengið sundurliðað mat á því hvernig breytingar á sköttum, gjöldum og stuðningi við heimilin geta haft áhrif á heimilisbókhaldið.]]></description>