Leikfélag Sauðárkróks frumsýndi á föstudaginn síðastliðinn leikritið Á sama tíma að ári eftir Berndard Slade, í leikstjórn Ingrid Jónsdóttur. Verkið er sett upp í tengslum við Sæluvikuna eins og leikfélagið er vant að gera. Sýningin var einstaklega vel upp sett og hef ég sjaldan setið í leikhúsi þar sem jafn mikið er hlegið. Leikritið er hlýlegt og tekst að fanga á einstaklega mannlegan hátt hvernig tíminn mótar sambönd og sjálfsmynd. Leikmyndin var einföld en áhrifarík og skilaðu sínu.
Skagfirðingar þekkja öðrum fremur hversu mikil lífsgæði felast í því að búa hér. Hér er öflugt atvinnulíf, landbúnaður, sjávarútvegur og samheldið samfélag sem stendur saman á raunarstund. Samfélag sem slíkt er ekki sjálfsagt heldur ávöxtur samheldni og vináttu íbúanna. En það er líka staðreynd að alltaf má gott bæta. Undanfarin ár hefur ýmislegt setið á hakanum. Innviðir hafa víða látið á sjá. Framkvæmdir hafa ekki alltaf fengið nægilegan undirbúning, í sumum tilfellum hefur vantað bæði skýra forgangsröðun og samráð við íbúa, þar má gera betur. Miðflokkurinn vill leggja þar hönd á vogarskálarnar.
Ársþing Ungmennasambands Skagafjarðar var haldið 20. apríl nk. kl. 17:00 í Húsi frítímans við Sæmundargötu Sauðárkróki en þetta var 106. ársþing UMSS. Á þinginu fengu þau Helga Daníelsdóttir og Sigurður Bjarni Rafnsson afhent starfsmerki UMFÍ en þau hafa bæði unnið mikið og gott starf fyrir skíðadeild Tindastóls.
Það bar við í Sæluviku að Eyþór skáld Árnason frá Uppsölum í Blönduhlíð, en búsettur í höfuðborginni, stóð fyrir svokallaðri Ljóðavísitasíu. Hann heimsótti átta kirkjur í Skagafirði á fimm dögum og las upp úr ljóðabókum sínum og greip jafnvel í gítar. Hann sagði Feyki að túrinn hefði gengið alveg ljómandi vel. „Allavega skemmti ég mér mjög vel, kom í margar kirkjur sem ég hef aldrei komið í áður.“
Hafnar eru framkvæmdir við lagfæringar á körfuboltavellinum í Hlíðarhverfi á Króknum. Það má sjá myndir frá framkvæmdum á Facebook-síðu Þ. Hansen sem annast verkið. Feykir spurði Gunnar Pál Ólafsson, verkstjóra Þjónustumiðstöðvar á veitu- og framkvæmdasviði hjá sveitarfélaginu Skagafirði, hvað standi til.
Skráning er hafin fyrir Umhverfisdag FISK Seafood þann 9. maí 2026, kl. 10:00-12:00 Skipulag er með sama hætti og fyrri ár, þið skráið ykkur og veljið það íþróttafélag sem þið viljið styrkja. Þegar nær dregur verða birtar leiðbeiningar um hvaða svæði tilheyrir hverju íþróttafélagi.
Það er næsta víst að vorið er komið og grundirnar gróa þó ekki séu nú veðurkortin að keyra um þverbak í hækkandi hitatölum. Nú má líka reikna með því að líf færist í unga fólkið sem væntanlega tekur rafhlaupahjól til kostanna og þarf því að fylgjast vel með í umferðinni.
Lið Tindastóls og Stjörnunnar mættust í hörkuleik í Síkinu í gær og voru neglur nagaðar fram á síðustu sekúndu og jafnvel lengur. Líkt og stundum áður þegar þessi lið mætast þá fóru Stólarnir vel af stað, Stjarnan kom svo sterk inn og var í raun með undirtökin mest allan síðari hálfleik. Átján sinnum skiptust liðin á um að hafa forystuna og níu sinnum var allt hnífjafnt. Það voru hins vegar gestirnir sem voru yfir þegar það skipti öllu máli – í leikslok – og unnu því fyrsta bardagann í einvígi liðanna. Lokatölur 95-96.
Félagarnir Óskar Pétursson og Björgvin Þ. Valdimarsson eru að gefa út nýtt lag sem heitir „Það varst þú“ en þetta er nýjasta lag Björgvins og textinn er einnig eftir hann . Óskar og Björgvin Þ. hafa unnið mikið saman í gegnum tíðina en á fyrsta diski Björgvins söng Óskar m.a. lögin Undir Dalanna sól, Kveðju heimanað og Mátt söngsins, auk lagsins Stúlkan mín sem Álftagerðisbræður sungu. Síðan gáfu þeir félagar út diskinn Allt sem ég er, árið 2009 en á þeim diski var Óskar aðalsöngvari. Á diskinum sungu þrír gestasöngvarar m.a. Björgvin Halldórsson en hann og Óskar sungu saman titillag disksins.
Það styttist í landsmótið á Hólum en það verður haldið 5. – 11. júlí. Eitt af því sem er nauðsynlegt á nútímamótum er miðlun upplýsinga en þar kemur HorseDay sterkt inn.
Smáforritið HorseDay hefur verið í mikilli þróun síðustu árin og sér HorseDay alfarið um niðurstöður hestamóta hérlendis. HorseDay hefur tekið við af gömlu góðu Landsmótskránni sem ekki er lengur gefin út á prenti en í smáforritinu er hægt að finna allar upplýsingar um landsmótið á einum stað. Síðan er skemmtilegur möguleiki að áhorfendur geta tekið beinan þátt með því að gefa einkunnir í forritinu og borið saman við einkunnir dómara.
Undanúrslitin í Bónus deild karla í körfubolta hefjast í kvöld þegar Íslandsmeistarar Stjörnunnar heimsækja Síkið. Þar bíða eftir þeim úthvíldir Tindastólsmenn og væntanlega klikkuð stemning. Partýtjaldið tekur á móti gestum frá kl. 17:00 í dag en þá er gert ráð fyrir vægri vestanátt, sólskini og tíu stiga hita – en hann verður örugglega miklu meiri í tjaldinu. Leikurinn hefst svo kl. 19:15 en húsið verður opnað kl. 18:00.
Leikfélag Sauðárkróks frumsýndi á föstudaginn síðastliðinn leikritið Á sama tíma að ári eftir Berndard Slade, í leikstjórn Ingrid Jónsdóttur. Verkið er sett upp í tengslum við Sæluvikuna eins og leikfélagið er vant að gera. Sýningin var einstaklega vel upp sett og hef ég sjaldan setið í leikhúsi þar sem jafn mikið er hlegið. Leikritið er hlýlegt og tekst að fanga á einstaklega mannlegan hátt hvernig tíminn mótar sambönd og sjálfsmynd. Leikmyndin var einföld en áhrifarík og skilaðu sínu.
Skagfirðingar þekkja öðrum fremur hversu mikil lífsgæði felast í því að búa hér. Hér er öflugt atvinnulíf, landbúnaður, sjávarútvegur og samheldið samfélag sem stendur saman á raunarstund. Samfélag sem slíkt er ekki sjálfsagt heldur ávöxtur samheldni og vináttu íbúanna. En það er líka staðreynd að alltaf má gott bæta. Undanfarin ár hefur ýmislegt setið á hakanum. Innviðir hafa víða látið á sjá. Framkvæmdir hafa ekki alltaf fengið nægilegan undirbúning, í sumum tilfellum hefur vantað bæði skýra forgangsröðun og samráð við íbúa, þar má gera betur. Miðflokkurinn vill leggja þar hönd á vogarskálarnar.
Félagarnir Óskar Pétursson og Björgvin Þ. Valdimarsson eru að gefa út nýtt lag sem heitir „Það varst þú“ en þetta er nýjasta lag Björgvins og textinn er einnig eftir hann . Óskar og Björgvin Þ. hafa unnið mikið saman í gegnum tíðina en á fyrsta diski Björgvins söng Óskar m.a. lögin Undir Dalanna sól, Kveðju heimanað og Mátt söngsins, auk lagsins Stúlkan mín sem Álftagerðisbræður sungu. Síðan gáfu þeir félagar út diskinn Allt sem ég er, árið 2009 en á þeim diski var Óskar aðalsöngvari. Á diskinum sungu þrír gestasöngvarar m.a. Björgvin Halldórsson en hann og Óskar sungu saman titillag disksins.
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Ungur maður er nefndur Þorsteinn Snær Róbertsson, fæddur 1994, og er frá sveitabýlinu Hvalshöfða í Hrútafirði. Hann er alinn upp á Reykjaskóla í Hrútafirði og fluttist síðar yfir á Hvalshöfða, sonur Hadísar Brynju Þorsteinsdóttur og Róberts Júlíussonar. Þorsteinn spilar á kassagítar og munnhörpu og segir það hafa verið sitt stærsta afrek á tónlistarsviðinu þegar hann spilaði nokkur kántrýlög sem hann hafði sett saman en með honum spiluðu bræður hans, Júlíus og Daníel...