Fréttablað á Norðurlandi vestra, kemur út vikulega.
-
Fóru yfir mikilvægi hjálmsins
Í gær, þriðjudaginn 9. júní, heimsótti lögreglan á Norðurlandi vestra leikskólann Ásgarð á Hvammstanga. Lögreglan skoðaði hjól barnanna og ræddi við þau um mikilvægi þess að hjólin séu í góðu lagi, sérstaklega að bremsurnar virki sem skyldi. Einnig var lögð áhersla á að börnin noti alltaf hjálm þegar þau hjóla.
-
A-landsliðskona á Krókinn
Á Facebook síðu Körfuknattleiksdeildar Tindastóls má sjá að liðið hefur samið við Kolbrúnu Maríu Ármannsdóttur um að leika með kvennaliðinu á komandi tímabili. Kolbrún María kemur til Tindastóls eftir að hafa leikið í Þýskalandi, hún á að baki glæsil... -
Sjómannadagshelgin í myndum
Gaman var á sjómannadagshelginni á Hofsósi, Hvammstanga, Sauðárkróki og Skagaströnd en það má sjá á myndunum sem fylgja fréttinni. Stór fjagradaga hátíð var haldin á Skagaströnd sem lauk með Sjómannadagshalupi en á Hvammstanga hélf Félag eldri borgara í Húnaingi vestra kaffi til heiðurs sjómanna. -
-
-
Nýr björgunarbátur vígður
Haldið var upp á sjómannadaginn um helgina. Margir mis-munandi dagskrárliðir voru á Sauðárkróki, Skagaströnd og Hofsósi. Þegar dró að dagsskráarlokum á bryggjunni á Hofsósi vígði sr. Karl V. Matthíasson nýjan björgunarbát sem fékk nafnið stormur og er í eigu Björgunarsveitarinnar Grettir en báturinn er mikil styrking fyrir sveitina. -
Finnur og Björn heiðraðir á sjómannadaginn
Sjómannadagurinn var haldinn hátíðilegur síðastliðinn sunnudag og þá tíðkast meðal annars að heiðra menn fyrir farsælan feril. Tveir góðir félagsmenn í Félagi skipstjórnarmanna voru heiðraðir í félagsheimilinu Höfðaborg á Hofsósi á sunnudaginn. Það voru þeir Finnur Sigurbjörnsson skipstjóri á Múlabergi og Björn Jónasson skipstjóri á Málmey.
Ljósmyndavefur Feykis
Ljósmyndavefur Feykis
Ertu með snjalla hugmynd
varðandi myndefni?
feykir@feykir.is
-
Unnið við skólalóð Grunnskóla Húnaþings vestra
Í gær hófust framkvæmdir á skólalóð Grunnskólans Húnaþings vestra á Hvammstanga. Verkið snýr að endurgerð lóðarinnar sunnan- og vesta við skólabygginguna en sett verða upp leiktæki og gengið frá yfirborði lóðar, sett upp lýsing, gróður, bekkir og borð. -
Kíkja í heimsókn á BIRTU völlinn
Kormákur/Hvöt heimsækir Hauka á Ásvöllum klukkan 19:15 í kvöld, í sjöundu umferð 2. deildar karla. Leikurinn fer fram á BIRTU vellinum í Hafnafirði. Ætli Húnvetningar geti haldið súperframmistöðunni áfram eftir leik seinustu umferðar þar sem þeir prjónuðu yfir andstæðinga sína í 7-1 sigri. -
Fyrstu mánuðirnir munu verða krefjandi
Samfylking og óháðir og Framsókn og óháðir á Skagaströnd hafa myndað saman meirihluta en Feykir sagði í gær frá fyrsta sveitarstjórnarfundi að afloknum kosningum. Í frétt á vef Skagastrandar segir að ný sveitarstjórn hafi því tekið til starfa og framundan séu fjölmörg spennandi verkefni sem fela í sér bæði tækifæri og áskoranir sem miða að því að efla þjónustu við íbúa og styrkja samfélagið okkar til framtíðar. -
Tindastólsmenn fá nágranna Fjallabyggðar í heimsókn
Lið Tindastóls fær til sín nágranna KF úr Fjallabyggð í heimsókn í dag, miðvikudaginn 10. júní. Stólarnir hafa farið frábærlega af stað enda eru þeir eina taplausa liðið í deildinni eftir sex umferðir. Leikurinn fer fram á Sauðárkróksvelli og hefst kl. 19:15. -
Ragnheiður Erla er nýr oddviti Skagastrandar
Fundur var haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar í gær en þar var meðal annars kosning oddvita og varaoddvita sveitarfélagsins nú að loknum sveitarstjórnarkosningum. Lagt var til að Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, sem er efst á lista Samfylkingar og óháðra, yrði kjörin oddviti og var það samþykkt með fimm atkvæðum. Alls sitja fimm í sveitarstjórn Skagastrandar. -
Gallery Trefill verður með sveitamarkað 20. júní
Sigurlaug Guðmundsdóttir opnaði Gallery Trefill á seinasta ári og starfsemi þess gekk vel. Þar eru handprjónaðar vörur eftir hana, fleiri á Hofsósi og í nágrenninu. Galleríið er í litlu húsi við hliðina á gömlu skemmunum á Óslandi en hugmyndin er sú að hafa makaði í þeim samhliða galleríinu. Einnig er kominn söluvagn við hlið gallerísins svo hægt er að bjóða fólki upp á kaffi og meðlæti á pallinum fyrir utan á góðviðris dögum.
Mest skoðað
Uppskriftir frá lesendum
Pistlar
-
Málið snýst um stjórnunarréttinn | Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
Kveðið er á um fullt vald Evrópusambandsins yfir vernd auðlinda sjávar í Lissabon-sáttmálanum, grundvallarlöggjöf þess (d-liður, 3. greinar TFEU). Enn fremur að einungis sambandið geti sett lög um þær. Ríki Evrópusambandsins geti það ekki nema með leyfi sambandsins eða til þess að framfylgja löggjöf þess. Eina leiðin til að komast undan yfirstjórn Evrópusambandsins innan þess er varanleg undanþága (opt-out) frá henni. Slíkar undanþágur hafa hins vegar ekki verið í boði fyrir umsóknarríki. Aðeins tímabundnar undanþágur og „sérlausnir“ sem breyta engu um að valdið fer til sambandsins.Meira -
Sjómannadagur 2026 | Högni Elfar Gylfason skrifar
Íslenskur sjávarútvegur er einn þeirra grunnþátta sem haldið hafa lífi í íslendingum frá landnámi til dagsins í dag ásamt því að auka hag og velsæld þjóðarinnar. Þar að baki er mikill fjöldi fólks sem lagt hefur á sig mikla og óeigingjarna vinnu við hættulegar aðstæður, en það vill stundum gleymast í þjóðfélagsumræðunni og pólitíkinni.Meira -
Fornverkaskólinn tók við Europa Nostra-verðlaunum á Kýpur
Föruneyti Fornverkaskólans hélt fyrir skemmstu til Kýpur til að taka á móti Evrópsku menningarminjaverðlaununum / Europa Nostra-verðlaununum, virtustu menningararfsverðlaunum Evrópu. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn þann 28. maí sl. í bæjarleikhúsi Nikósíu á Kýpur. Fornverkaskólinn var í hópi 30 sigurvegara sem hlutu viðurkenningu fyrir framúrskarandi menningararfsverkefni í Evrópu. Samkvæmt Europa Nostra sóttu um 500 sérfræðingar, sjálfboðaliðar, áhugafólk og stuðningsaðilar verðlaunaafhendinguna.Meira
Hr. Hundfúll
-
Miðvikudagur 15. apríl 2026
Áfram Vísnakeppni
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Tón-Lystin
-
„Gull af mönnum er lag sem kemur öllum í gang“ | ALEX BJARTUR
Lesa meiraÞað er óhætt að fullyrða að loks þegar Litla hryllingsbúð Leikfélags Sauðárkróks var opnuð þá hafi Skagfirðingar og nærsveitungar átt bágt með að halda sig fjarri. Þeir voru margir flottir söngvararnir sem hófu upp raust sína á sviðinu í Bifröst, margir þeirra þekktar stærðir hér heima, en einn söngvarinn/leikarinn kom skemmtilega á óvart. Það var Alex Bjartur Konráðsson (árgangur 2002) sem söng fyrir Blómið. Geggjuð rödd.
Feykir á Facebook
Viðburðir á Norðurlandi vestra
19. júní kl. 14:00-18:00
Opinn dagur og uppskeruhátíð á Tyrfingsstöðum þann 19. júní!
Þann 19. júní ætlum við að gleðjast saman og halda opinn dag og uppskeruhátíð á Tyrfingsstöðum á Kjálka.
Í ár höfum við ýmsar ástæður til að fagna; Fornverkaskólanum hlotnaðist nýverið viðurkenning frá Europa Nostra, sem eru ein virtustu minjaverndarverðlaun í Evrópu. Verðlaunahátíðin fer fram 28. maí í Nikosíu á Kýpur og á opnum degi ætlum við að fagna áfanganum með vinum og vandamönnum og afhjúpa viðurkenningarskjöld sem Europa Nostra samtökin veittu Fornverkaskólanum.
Í ár eru einnig að verða 20 ár síðan Fornverkaskólinn og landeigendur á Tyrfingsstöðum gerðu með sér samning um endurbyggingu torfhúsanna á staðnum. Á námskeiðum í sumar er stefnt að því að ljúka endurbyggingu síðasta hússins, en á opnum degi bjóðum við öll velkomin að aðstoða okkur við að reka smiðshöggið á verkið, tyrfa yfir húsið og fagna áfanganum með okkur.
Viðburðurinn er öllum opinn, hvort sem er til að veita hjálparhönd, rabba við okkur og fræðast um torf eða til að skoða húsin.
Kaffi, drykkjarföng og léttar veitingar verða í boði, stefnt er að því að lifandi tónlist létti okkur lundina og meðlimir í Pilsaþyt heiðri okkur með nærveru sinni.
Stefnt er að því að hefja dagskrá kl. 14.00 (með fyrirvara um breytingar) en nánari dagskrá verður auglýst síðar.
Verið öll velkomin á opinn dag á Tyrfingsstöðum!
Rabb-a-babb
-
rabb-a-babb 57: Hulda Ragnheiður
Lesa meiraNafn: Hulda Ragnheiður Árnadóttir
Árgangur: Eðalárgangur
Fjölskylduhagir: Ég á mann, þrjú börn og eina fósturdóttur
Starf / nám: Fjármálastjóri Blönduósbæjar sem stendur og er í mastersnámi í bankastjórnun og alþjóðav...
