Fréttablað á Norðurlandi vestra, kemur út vikulega.
-
Kíkja í heimsókn á BIRTU völlinn
Kormákur/Hvöt heimsækir Hauka á Ásvöllum klukkan 19:15 í kvöld, í sjöundu umferð 2. deildar karla. Leikurinn fer fram á BIRTU vellinum í Hafnafirði. Ætli Húnvetningar geti haldið súperframmistöðunni áfram eftir leik seinustu umferðar þar sem þeir prjónuðu yfir andstæðinga sína í 7-1 sigri.
-
Fyrstu mánuðirnir munu verða krefjandi
Samfylking og óháðir og Framsókn og óháðir á Skagaströnd hafa myndað saman meirihluta en Feykir sagði í gær frá fyrsta sveitarstjórnarfundi að afloknum kosningum. Í frétt á vef Skagastrandar segir að ný sveitarstjórn hafi því tekið til starfa og framundan séu fjölmörg spennandi verkefni sem fela í sér bæði tækifæri og áskoranir sem miða að því að efla þjónustu við íbúa og styrkja samfélagið okkar til framtíðar. -
Tindastólsmenn fá nágranna Fjallabyggðar í heimsókn
Lið Tindastóls fær til sín nágranna KF úr Fjallabyggð í heimsókn í dag, miðvikudaginn 10. júní. Stólarnir hafa farið frábærlega af stað enda eru þeir eina taplausa liðið í deildinni eftir sex umferðir. Leikurinn fer fram á Sauðárkróksvelli og hefst kl. 19:15. -
-
-
Ragnheiður Erla er nýr oddviti Skagastrandar
Fundur var haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar í gær en þar var meðal annars kosning oddvita og varaoddvita sveitarfélagsins nú að loknum sveitarstjórnarkosningum. Lagt var til að Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, sem er efst á lista Samfylkingar og óháðra, yrði kjörin oddviti og var það samþykkt með fimm atkvæðum. Alls sitja fimm í sveitarstjórn Skagastrandar. -
Gallery Trefill verður með sveitamarkað 20. júní
Sigurlaug Guðmundsdóttir opnaði Gallery Trefill á seinasta ári og starfsemi þess gekk vel. Þar eru handprjónaðar vörur eftir hana, fleiri á Hofsósi og í nágrenninu. Galleríið er í litlu húsi við hliðina á gömlu skemmunum á Óslandi en hugmyndin er sú að hafa makaði í þeim samhliða galleríinu. Einnig er kominn söluvagn við hlið gallerísins svo hægt er að bjóða fólki upp á kaffi og meðlæti á pallinum fyrir utan á góðviðris dögum.
Ljósmyndavefur Feykis
Ertu með snjalla hugmynd
varðandi myndefni?
feykir@feykir.is
-
Málið snýst um stjórnunarréttinn | Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
Kveðið er á um fullt vald Evrópusambandsins yfir vernd auðlinda sjávar í Lissabon-sáttmálanum, grundvallarlöggjöf þess (d-liður, 3. greinar TFEU). Enn fremur að einungis sambandið geti sett lög um þær. Ríki Evrópusambandsins geti það ekki nema með leyfi sambandsins eða til þess að framfylgja löggjöf þess. Eina leiðin til að komast undan yfirstjórn Evrópusambandsins innan þess er varanleg undanþága (opt-out) frá henni. Slíkar undanþágur hafa hins vegar ekki verið í boði fyrir umsóknarríki. Aðeins tímabundnar undanþágur og „sérlausnir“ sem breyta engu um að valdið fer til sambandsins. -
Stuð og stemning fram undan á Hofsósi
Bæjarhátíðin Hofsós heim mun standa yfir dagana 18.- 22. júní næstkomandi og hægt er að segja að nóg verði um að vera. Dagskráin er stútfull en í ár verður hægt að kíkja á markað í Höfðaborg, sjá sýningu hjá Brúðubílnum og skella sér í gusu í sánuvagni svo eitthvað sé nefnt. Hátíðin eins og hún er í dag hefur verið haldin síðan árið 2018 en bæjarhátíðir á Hofsósi er hægt að rekja til 1999 þegar haldið var upp á Jónsmessuhátíð. -
Sjómannadagsins var beðið með eftirvæntingu
Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur um allt land um síðustu helgi. Hér á Norðurlandi vestra fóru sveitarfélögin misjafnar leiðir í hátíðarhöldin. Þannig hafa Skagstrendingar þann háttinn á að þar eru standandi hátíð í fjóra daga, á Hofsósi og á Hvammstanga fagna sjómenn á sjómannadeginum en á Sauðárkróki er fagnað degi fyrr – mögulega af praktískum ástæðum. -
Arséne Wenger er mitt uppáhald | Eydís Ósk segir frá liðinu sínu
Eydís Ósk Indriðadóttir er með annan fótinn á Hvammstanga og hinn í Gröf á Vatnsnesi. Hún er kennari, bóndi, liðveitandi, ljósmyndari og björgunarsveitarkona í hjáverkum. Síðast en ekki síst er hún Arsenal-aðdáandi. Þar sem Nallarnir unnu sinn fyrsta Englandsmeistaratitil í 22 ár á dögunum þá var ekki úr vegi að plata Eydísi Ósk í að svara Liðinu mínu. Við byrjum á að fá hana til að grein fyrir sjálfri sér... -
Nemendur FNV vöktu athygli með næringarríkri vöru
Fimm nemendur í áfanganum Frumkvöðlafræði í FNV stofnuðu fyrirtækið Brodd. Þeir hafa þróað fæðubótarefni úr frostþurrkuðum broddi. Fyrirtækið vakti athygli á Vörumessu ungra frumkvöðla í Smáralind og í kjölfarið var strákunum boðið að taka þátt í Arctic Youth Championship í Tromsø í Noregi. -
Framkvæmdir á Hvammstangavegi
Vegagerðin er þessa dagana að hefja framkvæmdir á Hvammstangavegi. Um er að ræða sementsfestun og klæðingu, frá gatnamótum við Hringveg og að Hvammstanga. Samkvæmt tilkynningu á vef Húnaþings vestra ná framkvæmdir yfir alls 4900 m. kafla auk 250 m. kafla á Hringvegi 1. Borgarverk annast verkið að undangengnu útboði og eru verklok áætluð 15. júlí.
Mest skoðað
Uppskriftir frá lesendum
Pistlar
-
Málið snýst um stjórnunarréttinn | Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
Kveðið er á um fullt vald Evrópusambandsins yfir vernd auðlinda sjávar í Lissabon-sáttmálanum, grundvallarlöggjöf þess (d-liður, 3. greinar TFEU). Enn fremur að einungis sambandið geti sett lög um þær. Ríki Evrópusambandsins geti það ekki nema með leyfi sambandsins eða til þess að framfylgja löggjöf þess. Eina leiðin til að komast undan yfirstjórn Evrópusambandsins innan þess er varanleg undanþága (opt-out) frá henni. Slíkar undanþágur hafa hins vegar ekki verið í boði fyrir umsóknarríki. Aðeins tímabundnar undanþágur og „sérlausnir“ sem breyta engu um að valdið fer til sambandsins.Meira -
Sjómannadagur 2026 | Högni Elfar Gylfason skrifar
Íslenskur sjávarútvegur er einn þeirra grunnþátta sem haldið hafa lífi í íslendingum frá landnámi til dagsins í dag ásamt því að auka hag og velsæld þjóðarinnar. Þar að baki er mikill fjöldi fólks sem lagt hefur á sig mikla og óeigingjarna vinnu við hættulegar aðstæður, en það vill stundum gleymast í þjóðfélagsumræðunni og pólitíkinni.Meira -
Fornverkaskólinn tók við Europa Nostra-verðlaunum á Kýpur
Föruneyti Fornverkaskólans hélt fyrir skemmstu til Kýpur til að taka á móti Evrópsku menningarminjaverðlaununum / Europa Nostra-verðlaununum, virtustu menningararfsverðlaunum Evrópu. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn þann 28. maí sl. í bæjarleikhúsi Nikósíu á Kýpur. Fornverkaskólinn var í hópi 30 sigurvegara sem hlutu viðurkenningu fyrir framúrskarandi menningararfsverkefni í Evrópu. Samkvæmt Europa Nostra sóttu um 500 sérfræðingar, sjálfboðaliðar, áhugafólk og stuðningsaðilar verðlaunaafhendinguna.Meira
Hr. Hundfúll
-
Miðvikudagur 15. apríl 2026
Áfram Vísnakeppni
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Tón-Lystin
-
„Það er alltaf allt í boði í tónlist, það er það besta við hana“ / EDDA BORG
Lesa meiraEdda Borg Stefánsdóttir frá Sauðárkróki er nú búsett á Akureyri. Hún er uppalin á Króknum, fædd 1991. „Ég er dóttir Stebba Gauks, starfar sem töframaður í Loðskinn, kenndur við Gauksstaði á Skaga, og Ollu Dísar, dóttir Gígju og Árna heitinna á Hólmagrund.“ Röddin er aðal hljóðfæri Eddu en einnig spilar hún á píanó og gítar. „Mig langar að læra á kontrabassa og blásturshljóðfæri líka, það er alltaf hægt að bæta við sig!“ segir hún eldhress. Helsta afrekið í tónlistinni segir hún einfaldlega hafa verið drífa sig loksins til að semja og fara í söngnám. Ég tek grunnpróf í Tónlistarskóla Akureyrar núna í apríl. Annars var auðvitað mjög skemmtilegt að fá að vera Tarantúla með Arnari og Helga,“ segir Edda og vísar þar í lagið Tarantúlur með Úlfur Úlfur.
Feykir á Facebook
Viðburðir á Norðurlandi vestra
Rabb-a-babb
-
Rabb-a-babb 159: Halldór Gunnar
Lesa meiraNafn: Halldór Gunnar Ólafsson.
Árgangur: 1972.
Hverra manna ertu og hvar upp alinn: Sonur Óla Benna og Gunnu Páls en þau ólu mig upp á Skagaströnd.
Hver er uppáhalds bókin þín og/eða rithöfundur? Sjálfstætt fólk. Hún hafði sterk áhrif á mig þegar ég las hana fyrst.
